Mót-10. Grindavík. 22. júlí.

Tíunda vika mótaraðarinnar var spiluð í Grindavík. Tíðindamaður var ekki á staðnum en völlurinn kuð vera í frábæru standi, líklega mikill áburður í öskunni. Samkvæmt óáreiðanlegum heimildum voru sumar holurnar stærri en hefðbundið er á golfvöllum, nokkrar þeirra afar djúpar og rauk gufa úr sumum. ðŸ˜¬ En níu garpar mótaraðarinnar létu ekki gosóróa á sig fá og kláruðu góðan hring.
Þar spilaði Siggi best allra, með 36 punkta. Gárungar segja að þetta sé nánast heimavöllur Sigga í ár en hann bæði vinnur í nágrenninu og ferðast um svæðið til og frá flugvellinum, sem er ósjaldan. Halli kom í öðru sæti með 35 punkta, ferskur eftir góða endurheimt í sumarbússtaðnum og Viktor í þriðja með 34 punkta.
 
Haukur afrekaði það að vera fyrstur til að spila 10x mót. Hann hefur ekki minnst út einn mánudag það sem af er í ár og hlýtur að sjálfsögðu aukastig fyrir það.
 
Í heildarstigakeppninni jafnaðist leikur talsvert þar sem Haffi spilaði ekki. Hann leiðir þó ennþá með fimm stiga mun á Hergeir og  er með 10 stiga forystu á Eggert sem er í þriðja sæti. 
mot-10-a
 mot-10-c  mot-10-b

Mót-9. Mosó. 15. júlí.

Níunda spilavika Fram mótraðarinnar var spiluð í dandalablíðu, einum degi sumarsins, hlýtt, léttskýjað og nánast logn. Vogurinn skartaði sínu fegursta og vallaraðstæður voru frábærar, eins og sést á myndinni hér að neðan, sem tekin var kl 11:05 við lok hringsins hjá tiðindamanni. 
Greinilegt er að það er verið að buffa röffið upp fyrir komandi stórmót og því var talsvert erfiðara að slá boltann rétt utan brautar en venjulega. Líklega vógu þessar vallaraðstæður á móti frábærum veðurskilyrðum því skorið var yfir línuna ekki eins hátt og vænta mætti.
 
Haffi átti þó frábæran dag og landaði sínum besta hring í sumar, 87 högg, 2 fuglar (3ja og 6. hola) og 40 punktar. "Overkill" eins og Tommi orðaði það því næstbesta skorið var 36 punktar en það var hinn sjóðheiti Eggert málari sem hreppti 2. sætið. Þriðji kom svo Tommi með 35 punkta. 
Bæði Haffi og Tommi ásamt Viktori voru í aftasta hollinu sem fór mjög seint út, um kl hálf sjö og hringnum lauk ekki fyrr en rúmlega ellefu. Tíðindamaður fékk því litlar sem engar fréttir úr fyrri tveimur hollunum.
 
Haffi heldur því forystunni í heildarstigakeppninni 4. vikuna í röð og Hergeir hefur endurheimt annað sætið. Staðan gæti þó breyst talsvert á næstu vikum þegar fjöldi spilamóta milli þátttakenda jafnast meira en nú er, en 10 stigahæstu mótin munu telja hjá hverjum.
 
Hér að neðan samantekt á úrslitum 9. spilaviku og heildarstaða í mótaröðinni.
 
mot-9-amot-9-b
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
mot-9-c
mot-9-mynd

Mót-8. Mosó. 8. júlí.

Mikið var undir í spilaviku 8 í mótaröðinni þar sem Hergeir hafði tilkynnt um Risamót. Það er heldur óvanalegt en kærkomin tilbreyting að risamót sé spilað á heimavellinum.
Margir hugsuðu gott til glóðarinnar og mættu þrettán spilarar til leiks. Veðrið var prýðilegt og skorið var bísna gott yfir línuna. 
Aldrei hafa jafn mörg úrslit ráðist á skrifstofu bráðabana eins og núna eða 7 af 10 efstu sætunum, þar af 4 spilarar með 33 punkta (sæti 7-10). Þetta gilti þó ekki um tvö efstu sætin en Viktor náði heilum 40 punktum með flottri spilamennsku, ekki síst á fyrri níu. Hanna kom var hársbreidd á eftir eftir stórgóðan hring með 39 punkta. Þá komu þrír spilarar jafnir með 38 punkta, Gauti, Tommi og Tóti. Þeir spiluðu allir mjög vel á seinni níu en Gauti sínu best á 22 punktum og tók því 3ja sætið. Tommi og Tóti voru jafnir á seinni níu með 21 punkt, jafnir á 3 síðustu holunum (7 p) en Tóti var með fleiri punkta á síðustu sex holunum. Tóti hreppir því fjórða sætið en Tommi það fimmta.
 
Tryggvi sem er þekktur fyrir að tæta í burtu eftir slæma hringi, virðist vera farinn að róast nokkuð með árunum. Hann byrjaði fyrri níu skelfilega og náði aðeins 5 punktum en hann gafst þó ekki upp og náði 18 punktum á seinni níu.  TT gerði stólpagrín að frammistöðu sinni í skálanum eftirá og hlýtur aukastig að launum en það er tvöfalt að þessu sinni vegna risamótsins.
 
Þar sem forystusauðurinn missteig sig illa í rísamótinu breyttist landslagið í heildarstigakeppninni talsvert mikið. Nú eru fjölmargir komnir í baráttuna og útlit fyrir harða keppni framundan. Haffi heldur forystunni 3ju vikuna í röð, en þó naumlega. Gauti er komin í annað sætið eftir góða frammistöðu undanfarið.
 
Hér að neðan eru töflur með úrslitum í spilaviku átta og staðan í heildarkeppninni.
 
mot-8-a
mot-8-b
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
mot-8-c
 
 
 

Mót-7. Brautarholt. 1. júlí.

Vegna meistaramótsviku á Hlíðarvelli var spilað í Brautarholtinu í þetta skiptið. Að venju gildir einnig hringur spilaður í meistaramóti á spiladegi. Það átti við í einu tilviki.
Það var blés hressilega á spilara þennan mánudaginn í Brautarholtinu, sérstaklega á fyrri níu en aðeins skaplegri aðstæður voru á seinni níu. Það sést líka vel á skorinu að flestir bættu og jafnvel stórbættu punktaskorið á seinni níu.
 
Eggert "El Chapo" lét þó vindinn ekki á sig fá og skilaði hreint ótrúlegum hring á 37 punktum. Frábærlega gert í krefjandi aðstæðum. Haukur spilaði einnig mjög vel á 33 punktum sem skilaði öðru sæti. Þriðja sætið náðist á 28 punktum og var það Haffi sem spilaði í rokinu á Hlíðarvelli í meistaramótinu.
Þetta er í fyrsta sinn sem 3ja sætið fer undir 30 punkta, en hingað til hefur þurft hið minnsta 33 punkta til að landa 3ja sætinu. Þetta skor endurspeglar vel þær krefjandi aðstæður sem spilað var við þennan mánudag.
 
Hér að neðan má sjá úrslit 7. spilaviku. Haffi leiðir í heildarstigakeppninni aðra vikuna í röð, en hann er einn tveggja spilara sem hafa spilað allar sjö spilavikurnar og fleiri mót telja því hjá honum en flestum öðrum. 
 
mot-7-amot-7-b
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
mot-7-c
 
 
 

Mót-6. Mosó. 24. júní.

Það gekk á með hressilegum skúrum í Mósó í gær þar sem 13 spilarar kepptu um stigin í boði.

Skorið var óvenju jafnt og þurfti að grípa til skrifstofu-bráðabana í allnokkrum tilvikum.
Mótið vannst á 37 punktum og var það doktorinn geðþekki G Laxdal sem landaði sigrinum. Samspilarar Gauta sögðu hann hafa verið hreint magnaðan í sandinum og afrekaði að ná svokölluðu "sandsave í fjögur skipti á hringnum. 
Geri aðrir betur! Gauti hlýtur tilnefninguna sandmeistari og mætir næst í doppóttum bol (ala fjallameistarinn í Tour de France) og fær að sjálfsögðu aukastig að launum.
tour
Haffi spilaði solid golf og skilaði sér á 36 punktum í öðru sæti og Haukur í þriðja með 35 punkta.
Þrír spilarar voru svo jafnir í 4-6 sæti með 34 punkta, Hanna, Írunn og Tóti og þar þurfti að grípa til skrifstofu bráðabana til að úrskurða um röðun.
Hanna og Írunn voru báðar með 17 p á seinni níu en Hanna hafði betur með 6p (vs. 5p.) á síðustu 3 holunum. 
Tóti spilaði fantavel á fyrri níu (22 p.) en mun síður á seinni níu, sem nota bene voru fyrri níu holurnar í gær þar sem ræst var út á 10. holu.
 
Í heildarstigakeppninni hafa þau tíðindi gerst að Hergeir er ekki lengur í toppsætinu en hann hefur haldið í það síðan í annarri spilaviku. Haffi hefur nú tyllt sér í toppsætið og kuð það vera í fyrsta sinn sem hann vermir það sæti á öllum þeim fjölmörgu árum síðan hann hóf keppni í mótaröðinni. Sumir læra seint en læra þó. Minnt skal á að það er aðeins búið að spila 6 mót og enn eru fjölmörg mót eftir á mótaröðinni (amk 10). 
 
Í næstu viku verður meistaramót GM í gangi á Hlíðavelli og færist keppnin því líklega á annan völl af þeim sökum. Mótanefnd vinnur í málinu.
mot-6-a
mot-6-b
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
mot-6-c

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c
  • mot-17-b
  • mot-17-a
  • mot-16-c
  • mot-16-b
  • mot-16-a
  • La Sella 2024

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.10.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband