19.8.2025 | 14:55
Mót-13. Mosó. 11. ágúst, 2025.
Ef einhver trúir ekki álögum á tölunni 13 þá gæti það hafa breyst síðasta mánudag. Þrettánda keppni sumarsins var sú fámennasta til þessa, aðeins fimm spilarar mættu til leiks. Ástæðan var mögulega sú að það var ekta íslenskt skítaveður, rok og rigning. Það fór líka svo að ákveðið var að láta slag standa eftir fyrri níu holurnar, því menn voru þá þegar orðnir gegnblautir og hraktir. Þetta var samanleg ákvörðun hópsins.
Skorið á fyrri níu var það lakasta sem hefur sést í sumar, aðeins 11,8 punktar að meðaltali.
Einn spilari virtist þó nokkuð ónæmur fyrir veðuraðstæðum þennan dag (honum sjálfum til mikillar furðu) og skilaði 16 punktum í hús. Haffi, sem er ríkjandi meistari, landaði þarna öðrum sigrinum í röð á Hliðarvelli og nánast með sömu uppskrift og vikuna áður, með því að spila á bogey. Eftir að hafa X-að fyrstu holuna þá spilaði hann næstu átta holur á sínu pari, 6x holur á bogey, eina á pari og eina á double bogey. Þetta hljómar kannski ekkert afrek en þeir sem voru á staðnum og voru að kljást við vindinn og rigninguna geta vitnað um það að það var ekki auðvelt að spila gott golf þennan eftirmiðdag. Gauti heldur einnig áfram að spila vel og kom annar á 13 punktum.
Enn breytist staðan í heildarstigakeppninni. Haffi er nú orðinn efstur og Tóti í öðru sæti. Átta spilarar hafa nú náð því að spila 10 keppnir í sumar og fer leikurinn að snúast um að losa út lélegu mót sumarsins í þeim keppnum sem eftir eru fram að lokamóti.
ÚRSLIT:
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2025 | 14:48
Mót-12. Flúðir. 8. ágúst, 2025.
Fram open var í ár haldið á Flúðum og að venju er keppnin hluti af mánudags mótaröðinni og það sem meira er stórmót að auki. Þetta var tólfta keppni sumarsins og mættu 10 spilarar til leiks. Það var allhvasst á Flúðum þennan dag en sólríkt og þokkalegur hiti. Völlurinn fyrirgefur ekki mikið og þurftu spilarar því að kljást við vindinn ásamt því að halda boltanum á braut. Skorið var ekki sérlega hátt (28,5) miðað við venjulegt skor á mánudagsmótaröðinni, en þegar upp var staðið og allt var talið reyndist skor okkar spilara heldur betur standast samanburð við skor annarra keppenda á mótinu.
Mánudagsmótaröðin skilaði þremur vinningum í hús. Viktor gerði sér lítið fyrir og vann punktakeppi karla á 35 p. Glæsilegur árangur það. Tóti var í 7. Sæti með 33 punkta og Eggert í 12. sæti með 31 punkt. Þrír af tíu spilurum okkar (30%) voru því meðal topp 15% hæstu í mótinu í punktakeppni. Að auki hlaut Írunn 1. sæti í höggleik kvenna. Þá rötuðu ein nándarverðlaun í hús, þar sem Viktor setti 60 cm frá pinna á einni par 3 holunni (og setti niður fugl). Viktor og Írunn fá aukapunkt fyrir frammistöðuna.
Niðurstaðan er ótvíræð; mánudagsmótaröðin er sko engin "mánudags" mótaröð heldur bísna sterk keppni sem við getum verið stolt af.
Þessi úrslit breyta heldur betur stöðunni í heildarstigakeppninni. Það munar aðeins 4 stigum á 5 efstu mönnum. Hergeir sem leiddi fyrir þessa keppni var erlendis og því fjærri góðu gamni. Viktor og Tóti eru núna efstir og jafnir með 100 stig, Haffi með 99 stig og Tryggvi og Hergeir þvínæst með 96 stig. Fleiri eru að bætast í hópinn að hafa lokið 10 keppnum og pakkinn því að þéttast heldur betur.
ÚRSLIT:
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2025 | 10:08
Mót-11. Mosó. 4. ágúst, 2025.
Ellefta og fámennasta keppni sumarsins fór fram í frábæru veðri í lok Verzlunarmannahelgarinnar á Hlíðarvelli. Þeir sem mættu til leiks voru ekki sviknir af aðstæðunum því eftir rok og rigningu um helgina brast á æðislegt veður seinnipart mánudagsins. Völlurinn var enn rakur og flatirnar tóku því vel við. Spilararnir sjö nýttu sér vallaraðstæður vel og úr varð hæsta meðalskor á mótaröðinni í ár (31,1 punktur).
Sumir spiluðu hreint frábærlega á mánudaginn. Hergeir spilaði fyrri níu á 2 yfir pari (7x pör takk fyrir og 2x skollar) og 21 punktur, 16 punktar á seinni níu skilaði honum 37 punktum. Eggert sýndi snilli sína á seinni níu með 5x pörum og 4x skollum og 21 punkur í hús á seinni níu og 34 punktar alls. Þrátt fyrir þessa snilld tókst Hafsteini að skáka þeim félögum og öðrum spilurum dagsins og hreppa efsta sætið, með einhverri mestu jafnaðar spilamennsku sem sést hefur á vellinum, 2 pör, 2 double bogey og 14 bogey. Eins og einhver sagði "leiðinlegt golf er gott golf!". Hafsteinn spilaði fyrri níu á 18 punktum og seinni níu á 19 punktum, samtals 37 punktar.
Skondið atvik varð á 13 flöt (par 5) þar sem Hergeir púttaði fyrir fugli af ca. 2ja metra færi. Hann var mjög afslappaður yfir púttinu og setti boltann örugglega ofaní án allra fagnaðarláta (eini fugl dagsins). Þegar frændinn óskaði Hergeiri til hamingju með fuglinn þá kom undrunarsvipur á Hergeir sem hélt að hann væri að pútta fyrir pari. Flottur fugl í höfn hjá Hergeiri og það er kannski bara betra að vita ekki að maður sé að pútta fyrir fugli
.
Í heildarstigakeppninni er Hergeir í forystu, Tryggvi í öðru og Hafsteinn er kominn upp í þriðja sætið. Bæði Haffi og Hergeir hafa spilað 11 keppnir og fellur því slakasti árangur þeirra út fyrir skori gærdagsins. Nokkrir aðrir spilarar (4x) eru með 9 keppnir. Sumir eiga fleiri keppnir inni og eiga það reyndar flestir sameiginlegt að vera fyrir neðan miðbik töflunnar eins og hún stendur í dag. Það eru því góð tækifæri fyrir marga spilara að blanda sér í baráttuna um bikarinn. Stærsta helgi sumarsins er framundan með stórmóti á föstudaginn (Fram open á Flúðum) og svo mánudagsmóti í kjölfarið. Þrefaldir vinningspunktar í boði fyrir þá sem hitta á réttan takt á næstu dögum.
ÚRSLIT:
STAÐAN:
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2025 | 10:29
Mót-10. Mosó. 28. júlí, 2025.
Tíunda keppni sumarsins fór fram í roki og rigningu á Hlíðarvelli síðasta mánudag (28. Júlí). Þrátt fyrir leiðindaveður mættu níu spilarar til leiks og létu ekki veðrið á sig fá. Hafandi sagt það þá var skorið ansi lágt eða aðeins 26,4 punktar að meðaltali. Það er lægsta meðalskor sumarsins og nokkru verra en í strekkingnum í Grindavík (27,7) fyrr í sumar til samanburðar. Sumir kunna þó vel við sig í roki og rigningu.
Það er óvanalegt að sjá hærra meðalskor á fyrri níu (13,3 p.) vs seinni níu (13,1 p.) eins og reyndin var í þetta skiptið.
Læknirinn kom á óvart og sigraði veðrið og vallaraðstæður og náði 36 punktum. Hrikalega vel gert. Gauti hefur verið að laumast upp töfluna með leynd (svarti hesturinn) og er nú kominn í toppbaráttuna. Hergeir spilar sjaldan betur en í roki og rigningu og skilaði 34 punktum í hús. Viktor var svo með 31 punkt en aðrir voru með undir 30 punktum.
Hergeir átti stórkostlegt innáhögg á holu 1, setti eitt fet frá holu af ca 150 metra færi í hörkuvindi. Auðveldur fugl í höfn og 4 punktar eftir eina holu. Svona glæsihögg verðskuldar aukastig.
Í heildarstigakeppninni er Hergeir núna kominn í forystu, Gauti er kominn í annað sætið og Tryggvi í því þriðja. Þess má geta að nú eru fyrstu menn, frændurnir Haffi og Hergeir, komnir með 10 keppnir undir belti. Heildarstigaskor byggir á 10 bestu keppnunum og því fer pakkinn að þéttast á næstunni. Ef litið er til hæsta meðalskors pr. Keppni breytist röðun efstu manna á þann hátt að TT er efstur (10,1 p), Gauti og Tóti jafnir í öðru (9,1 p) og Hergeir í fjórða (8,7 p.).
ÚRSLIT:
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.8.): 1
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 68696
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



















vitaminid
















