Færsluflokkur: Íþróttir

8. Mót. -Mosó 24. júní

Þrátt fyrir að einhverja meinta stórlaxa hafi vantað á mánudagskvöldið þá létu 7 snillingar það ekki aftra sér og mættu galvaskir í 8unda mót sumarsins. Hefðbundin tíðindamaður var reyndar ekki á svæðinu þar sem hann var í viðskipta/laxveiðiferð með moldríkum, rússneskumm olígarka, eiganda Hallahipp cool

Meðfylgjandi pistill var fengin frá ungum, bráðefnilegum blaðamanni sem var á svæðinu:

 

Spilað var á mánudaginn við mjög fínar aðstæður, afar hlýtt, að mestu skýjað en nokkur vindur.

Menn fóru misvel af stað, en hlutirnir fóru virkilega á skrið á seinni níu. Þar landaði Ragnar Lárus fugli á 14 holu og kom í hús  með 23 punkta á s9 og 36 punkta alls.
Þessi frábæri seinni hálfleikur hans dugði til að baka alla keppendur utan einn, bakarameistarann sjálfan.
Jói Fel skilaði 37 punktum í hús og 39 ef Mullarinn hefði fengið að standa í talningunnilaughing
Jói beilaði á veiðinni en landaði feitum sigri í  golfinu í staðinn.
 

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.B.banar
1Jói37 
2Ragnar L36 
3Tóti339
4Jón Ari33 
5Eggert31 
6Haffi27 
7Viktor21 

 

STAÐAN:

SætiNafn6.mai13.mai20.mai27.mai3.jún10.jún17.jún24.júnSamtals
1Jói50 425254606460382
2Hergeir48465472444662 372
3Tóti40 485838506650350
4Viktor3444504250364642344
5Halli60544650364452 342
6Haukur38606064 4072 334
7Tommi54504462 5458 322
8Eggert36 365440485446314
9Sig.Egill44483248 4280 294
10Ingvar  408060 48 228
11Jón Ari46  6646  48206
12Haffi32   34385644204
13Ragnar L.30 3456   54174
14Tryggvi   4032 60 132
15Hanna 423044    116
16Jónas El   60  50 110
17Óli42   48   90
18Reynir  28 42   70
19Ingólfur   46    46
20Írunn  38     38

7. Mót. -Mosó 17. júní, RISAMÓT-

Það voru 13 glaðir kappar mættir í 7.mót ársins. HOS-mótaröðin gaf PGA mótaröðinni ekkert eftir og hélt RISA-mót í tilefni að 17.júní á meðan US-open fór fram hjá hinum. Frábært veður og aðstæður og nokkrir mættir á stuttbuxum.

Nokkuð óvæntur sigurvegari stóð upp í lokin en það var enginn annar en vipp-snillingurinn Sigurður Egill. Siggi hefur undanfarið haft hljótt um sig á topplevelinu en loks sprakk kallinn út. Sigga líkar ekkert betur en högg undir 30 mtr og helst þar sem bönker eða vatn er á milli hans og holunnar. Gríðarlega soft spilari sem fetar mjótt einstigi milli fínleika og mýktar. Væri líklega hægt að nota myndband af drive-sveiflunni í golf-jóga tímum.

 

Staðan er snúin og tvísýn. Hergeir situr efstur eins og mallar þetta eins og gamall traktor. Síðan er strollan þétt þar fyrir aftan og engin leið enn að spá um sigurvegara. Þetta verður eitthvað í lok sumars.

Næsta mót verður samkvæmt venju á mánudag. Talsvert afföll verða þar sem nokkrir góðir ætla að halda norður í land til að æfa fínhreyfingar með veiðistöng. Sigurður Egill mun leiðbeina.

 

Úrslit kvöldsins: 

SætiNafnPkt.B.banar
1Sig.Egill41 
2Haukur37 
3Tóti349
4Jói34 
5Hergeir32 
6Tryggvi319
7Tommi31 
8Haffi31 
9Eggert29 
10Halli27 
11Jónas El26 
12Ingvar25 
13Viktor22 

 

Staðan:

SætiNafn6.mai13.mai20.mai27.mai3.jún10.jún17.júnSamtals
1Hergeir48465472444662372
2Halli60544650364452342
3Haukur38606064 4072334
4-5Tommi54504462 5458322
4-5Jói50 4252546064322
6Viktor34445042503646302
7Tóti40 4858385066300
8Sig.Egill44483248 4280294
9Eggert36 3654404854268
10Ingvar  408060 48228
11Haffi32   343856160
12Jón Ari46  6646  158
13Tryggvi   4032 60132
14Ragnar L.30 3456   120
15Hanna 423044   116
16Jónas El   60  50110
17Óli42   48  90
18Reynir  28 42  70
19Ingólfur   46   46
20Írunn  38    38

6. Mót. -Mosó 10. júní-

Það var sól og og hægur vindur sem heilsaði 10 góðum kylfingum á HOS-mótaröðinni á öðrum í Hvítasunnu. Völlurinn í toppstandi og engar afsakanir fyrir slöku skori, nema mögulega sólstingur. Það var því frekar óvænt að aðeins þrír spilarar nýttu tækifærið og skiluðu inn frábæru skori á meðan hinir glímdu við sólsting. Tóti var krýndur sigurvegari á 19ándu holu en þegar hann setti skorið inn í vélina síðar um kvöldið fækkaði punktunum og hafnaði hann því í 3.sæti. Það hleypti Bakarameistaranum í gullsætið og hirti hann þar með allt sætabrauðið sem í boði var og er vel af því kominn. Þrír efstu fá allir fína forgjafarlækkun í kaupbæti. Þó skorinu væri misskipt þá þurfti bráðabana nánast um öll sæti. Keppnin er sannarlega hörð um stigin.  

Hergeir situr sem fyrr á toppnum en þéttur hópur spilara fylgir fast á eftir. Það eiga eftir að verða miklar hræringar áður en yfir líkur.

Næsta mót er áætlað á þjóðhátíðardaginn, 17. júni, og talsverðar líkur eru á að um RISA-mót verði að ræða. Kemur í ljós í vikunni hvað hæstvirtur Mótastjóri ákveður.

 

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.B.banar
1Jói389
2Tommi38 
3Tóti37 
4Eggert309
5Hergeir30 
6Halli29 
7Sig.Egill289
8Haukur28 
9Haffi279
10Viktor27 

 

STAÐAN:

SætiNafn6.mai13.mai20.mai27.mai3.jún10.júnSamtals
1Hergeir484654724446310
2Halli605446503644290
3Tommi54504462 54264
4Haukur38606064 40262
5Jói50 42525460258
6Viktor344450425036256
7Tóti40 48583850234
8-9Sig.Egill44483248 42214
8-9Eggert36 36544048214
10Ingvar  408060 180
11Jón Ari46  6646 158
12Ragnar L.30 3456  120
13Hanna 423044  116
14Haffi32   3438104
15Óli42   48 90
16Tryggvi   4032 72
17Reynir  28 42 70
18Jónas El   60  60
19Ingólfur   46  46
20Írunn  38   38

5. Mót. -Mosó 3. júní-

Það voru 12 harðjaxlar mættir á mánudagskvöldið til að berjast um stigin dýrmætu. Aðstæður voru krefjandi, mikill og kaldur norðanvindur. Ef ekki hefði verið fyrir sólina þá hefði hitastigið stappað við kaldan ísskáp. Tíðindamaðurinn var ekki á svæðinu þannig að litlar fréttir var að hafa  af mótinu. Það er þó ljóst að rokið og svalinn hafa spilað stóra rullu í skori leikmanna. 

Annað mótið í röð kemur Ingvar sterkur til leiks og nær afbragðsskori miðað við aðstæður. Nokkrir grjótharðir rokspilarar koma svo í næstu sætum en fínspilarnir reka lestina. 

Hinn gamalreyndi HAREN-meistari, Herra Geir, hefur tyllt sér á toppinn...í bili. Ef ég þekki kauða rétt þá verður það sæti ekki látið af hendi baráttulaust.

Við vonum að aðstæður verði betri í næsta móti og sem flestir blómstricool

 

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.B.banar
1Ingvar32 
2Jói Fel309
3Viktor30 
4Óli29 9
5Jón Ari29 
6Hergeir29 
7Reynir27
8Eggert27 
9Tóti26 
10Halli25 
11Haffi22 
12Tryggvi69 holur

 

 

STAÐAN:

SætiNafn6.mai13.mai20.mai27.mai3.júnSamtals
1Hergeir4846547244264
2Halli6054465036246
3Haukur38606064 222
4Viktor3444504250220
5Tommi54504462 210
6Jói50 425254198
7Tóti40 485838184
8Ingvar  408060180
9Sig.Egill44483248 172
10Eggert36 365440166
11Jón Ari46  6646158
12Ragnar L.30 3456 120
13Hanna 423044 116
14Óli42   4890
15Tryggvi   403272
16Reynir  28 4270
17Haffi32   3466
18Jónas El   60 60
19Ingólfur   46 46
20Írunn  38  38

4. Mót. -Akranes 27.maí, RISAMÓT-

Það voru 16 gulir og glaðir mættir í sunny Akranes í gærkvöldi. Var vel við hæfi að mótaröð þeirra bestu héldi sitt fyrsta Risamót í heimabæ toppliðs PepsiMax deildarinnar. Völlurinn er í frábæru standi, bæði brautir og green og ekkert sem gat hamlað góðu skori nema slæs, húkk og slæm pútt, eitthvað sem menn þessarar mótaraðar kannast lítið viðsmile

Maður kvöldsins var klárlega Ingvar Stefáns. Ingvar lenti í vandræðum með að finna völlinn þar sem hann reiddi sig á Google-maps og endaði með að leggja bílnum sínum í bílskúr við Stillholt 25 við lítinn fögnuð húsráðanda sem hafði ætlað sér að nota skúrinn í bónvinnu um kvöldið. Eftir smá orðastað við húsráðanda komst meistarinn á mótstað. Þar sá hann á eftir hollinu sínu leika fyrstu holu vallarins. Ingvar lét þetta ekkert á sig fá og mætti á teig nr. 2 og endaði svo með að rústa mótinu með heila 39 pkt. Takk fyrir Túkall. Sannarlega vel gert Ingvar og til lukku með forgjafarlækkunina.

HOS-meistari 2017, TT, mætti loks til leiks. Smávegis ryð í gangi á golfvellinum en hefur engu gleymt í reykspólinu og skyldi eftir smá gúmmí á bílastæðinu hjá Leynicool. Komaso TT, við stöndum með þér!

Stöðutaflan er á fleygiferð, og menn ferðast upp og niður eftir nýja ELÓ-stigakerfinu. Fullt af ELO-stigum þarna úti sem bíða eftir nýjum eigendum. Þetta verður gríðarlega spennandi allt til enda. 

 

ÚRSLIT KVÖLDSINS;

SætiNafnPkt.B.banar
1Ingvar39 
2Hergeir34 
3Jón Ari33 
4Haukur329
5Tommi32 
6Jónas El.31 
7Tóti30 
8Raggi L299
9Eggert29 
10Jói269
11Halli26 
12Sig.Egill26 
13Ingólfur25 
14Hanna25 
15Viktor21 
16Tryggvi<10 

 

STAÐAN:

SætiNafn6.mai13.mai20.mai27.maiSamtals
1Haukur38606064222
2Hergeir48465472220
3-4Halli60544650210
3-4Tommi54504462210
5Sig.Egill44483248172
6Viktor34445042170
7Tóti40 4858146
8Jói50 4252144
9Eggert36 3654126
10-11Ragnar L.30 3456120
10-11Ingvar  4080120
12Hanna 423044116
13Jón Ari46  66112
14Jónas El   6060
15Ingólfur   4646
16Óli42   42
17Tryggvi   4040
18Írunn  38 38
19Haffi32   32
20Reynir  28 28

3. Mót. -Mosó 20.maí-

Það voru 14 mættir til leiks í þriðja mót sumarsins. Aðstæður voru frábærar, dandalablíða svo til allan hringinn. Eins og farfuglarnir þá tínast keppendur til leiks. Gaman að sjá bræðurnar mæta loks til leiks og það átti svo sannarlega eftir að draga til tíðinda með þá kappa.

Annað mótið í röð kemur gamli klúbbmeistari, 2.flokks, Golfklúbbsins Kjalar sterkur inn og setti í 40 pkt. og fær fína forgjafarlækkun í kaupbæti. 

Staðan eftir 3 mót er nokkuð jöfn á toppnum, frá fyrsta og niður fjórða sæti. Lítið þarf að gerast til að miklar breytingar eigi sér.  Það gæti gerst strax í næsta móti en þá er áætlað að halda RISAmót. Keppendur bíða spenntir eftir ákvörðun mótstjóra í þeim efnum.

Annars er saga kvöldsins sú að þegar eðalhollið, Halli, Ingvar og Reynir voru staddir á 11.braut.  Hringir þá síminn hjá Ingvari. Samkvæmt áræðanlegur heimildum á 19ándu holu þá segir sagan að þarna hafi verið bruggað launráð sem gekk út á það skjóta Halla út úr keppni kvöldsins.  Að launum átti Ingvar að fá nokkuð gott sæti á listanum ásamt dularfulla innhringjandanum. Ingvar gekk hratt í verkið og miðaði á Halla en missti marks en hitti í staðinn beint í legginn á Reyni. Ekki var að sökum að spyrja, Retro OUT með "tsieltiT" tattoo um aldur ævi framann á leggnumlaughing. Stórt knús á Reyni með ósk um skjótan bata innocent.  Ingvar færir þér svo ískalda Malt á sjúkrabeðið cool

 

Úrslit kvöldsins:

SætiNafnPkt.B.banar
1Haukur40 
2Hergeir33 
3Viktor31 
4Tóti309
5Halli30 
6Tommi29 
7Jói27 
8Ingvar26 
9Írunn259
10Eggert25 
11Ragnar L.25 
12Sig.Egill24 
13Hanna20 
14Reynir14Shot out

 

STAÐAN:

SætiNafn6.mai13.mai20.maiSamtals
1Halli605446160
2Haukur386060158
3-4Tommi545044148
3-4Hergeir484654148
5Viktor344450128
6Sig.Egill444832124
7Jói50 4292
8Tóti40 4888
9-10Hanna 423072
9-10Eggert36 3672
11Ragnar L.30 3464
12Jón Ari46  46
13Óli42  42
14Ingvar  4040
15Írunn  3838
16Haffi32  32
17Reynir  2828

 


2. Mót. -Mosó 13.maí-

Það voru 7 góðir spilarar mættir í blíðuna í Mosó í gærkvöldi. Talsverð afföll urðu á lokametrunum fyrir mótið og geta þeir sem ekki mættu nagað sig í handabökin því aðstæður voru frábærar, dandalablíða og völlurinn í toppstandi.

Mótið sjálft var frekar tíðindalítið en á endanum stóð uppi óvæntur sigurvegari. Spilamennska hans var hálfgert skrípó. Mátti sjá hann hingað og þangað í móanum kringum völlinn en einhvern veginn tókst honum að henda í nokkuð gott skor sem byggðist m.a. á ævintýralegum púttum sem stundum komu úr öðrum póstnúmerum en 270 cool.

Stærstu fréttirnar frá gærkvöldinu voru kannski þær; að á meðan leikar stóðu sem hæst þá fæddist stúlkubarn í Reykjavík. Þar var í heiminn mætt fyrsta afabarn Hergeirs El. Talsverð spenna var í holli Hergeirs þar sem útvíkkunartölur frá Reykjavík bárust jafnóðum og punktar voru reiknaðir. Það gat aldrei endað vel og allt fór í tómt rugl. Þetta þýddi kærur og endurútreikninga, og kom í ljós í morgun að mótið hafði verið mun meira spennandi heldur en fyrstu tölur gáfu til kynna.

Hanna slúttaði svo kvöldinu með feiknagóðu reykspóli þ.a. svifryk var með hæsta móti í höfuðborginni í daglaughing

 

ÚRSLIT
SætiNafnPkt.B.banar
1Haukur35 
2Halli329
3Tommi32 
4Sig Egill289
5Hergeir28 
6Viktor25 
7Hanna23 

 

STAÐAN:

SætiNafn6.mai13.maiSamtals
1Halli6054114
2Tommi5450104
3Haukur386098
4Hergeir484694
5Sig.Egill444892
6Viktor344478
7Jói50 50
8Jón Ari46 46
9-10Óli42 42
9-10Hanna 4242
11Tóti40 40
12Eggert36 36
13Haffi32 32
14Ragnar L.30 30

1. Mót. -Mosó 6.maí-

Það voru 13 valmenni mætt í fyrsta mánudagsmót sumarsins sem haldið var í blíðviðri í Mosó í gærkvöldi. Völlurinn flottur og alla aðstæður ákjósanlegar til golfiðkunnar.

Skor flestra var bara með ágætum, svona í sumarbyrjun. Meistari síðasta árs, Tommi Yfirlögfræðingur, fór vel af stað í titilvörninni og náði öðru sæti eftir grimmann skrifstofubráðabana við bakarameistarann og byggingarfræðinginn.

Það var hinsvegar Rafvirkinn sem var í mesta stuðinu og sigraði mót kvöldsins með því að landa 33 pkt. Halli átti líklega tilþrif kvöldsins þar sem hann setti "eagle" á 13ándu braut með því að skutla niður 10+ mtr pútti. Að sögn heimildarmanna þá vöfðust 10+ mtr púttin ekki fyrir honum í hringnum en mínus 1 mtr púttin voru erfiðari og vildu ekki í. Svona er nú golfið óútreiknanlegt.

Málarameistarinn átti fyrsta reykspól árisins, þó ekki fyrr en að einum kaffibolla loknum. Kappinn var ekki ánægður með frammistöðuna og hyggur á hefndir, strax næsta mánudag.

Mætingin var mjög góð í þetta fyrsta mót ársins og höldum því endilega áfram. 

 

Úrslit kvöldsins
SætiNafnPkt.B.banar
1Halli33 
2Tommi329 holur
3Jói32 
4Hergeir32 
5Jón Ari319 holur
6Sig.Egill31 
7Óli30 
8Tóti29 
9Haukur279 holur
10Eggert27 
11Viktor22 
12Haffi20 
13Ragnar L.19 

 

STAÐAN 2018
SætiNafn6.mai
1Halli60
2Tommi54
3Jói50
4Hergeir48
5Jón Ari46
6Sig.Egill44
7Óli42
8Tóti40
9Haukur38
10Eggert36
11Viktor34
12Haffi32
13Ragnar L.30

 


HOS-2019 fer af stað í kvöld

Þá leggjum við af stað enn eitt árið.

Allt verður með svipuðu sniði og undanfarin ár.

Við ætlum að breyta aðeins stigagjöfinni og verður hún með eftirfarandi hætti:

Mánudagsmót Risamót
Fjöldi Leikm.Stig Fjöldi Leikm.Stig
160 180
254 272
350 366
448 464
546 562
644 660
742 758
840 856
938 954
1036 1052
1134 1150
1232 1248
1330 1346
1428 1444
1526 1542
1624 1640

 

Semsagt efstu mönnum er umbunað aðeins meir en verið hefur. 

Skrifstofubráðabanar eru háðir á 19ándu holu.

11 bestu mótin telja.

Eins og alltaf þá mun stig úr Lokamóti bættast í einu lagi við áunnin stig sumarsins.

Vonum að allir séu klárir og vel stemmdir.

Heimavöllurinn hefur sjaldan litið jafnvel út og þetta vorið og því ekkert til fyrirstöðu til að slá í gegn í sumar cool.

 


Las Colinas 2018

Jæja þá eru ekki nema fimm dagar í Spánarferð hjá Rjómanum úr hópnum og dvalið verður í húsi á Las Colinas, frábært svæði um 70km frá Alicante. Dagskráin er komin:dagskrá

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 68453

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband