Færsluflokkur: Íþróttir
10.5.2016 | 12:28
9. maí....mót nr. 2. -Mosó-
Sjaldan hefur sést fallegri hópur en þeir sem mættu til leiks á öðru móti HOS-mótaraðarinnar. Veðrið var fínt, sól og örlítill vindur til að kæla menn. Greinilegar framfarir eru á hópnum frá fyrsta móti og skorið hefur batnað í takt við það. Það bar til tíðinda að Hafsteinn sigraði í fyrsta skipti á mótaröðinni. Skoraði flotta 20 pkt. á seinni níu og setti um leið persónulegt höggleiksmet á seinni (41 högg). Til lukku með það Haffi .
Gömlu Zetorarnir Halli og Sig. Egill eru hægt og rólega að trekkja sig í gang og skoruðu á þriðja tug punkta eftir að hafa skorað á annan tug í fyrsta mótinu. Verður það á fjórða tug í næsta móti ?...við bíðum spenntir .
Skemmtilegt atvik átti sér stað á seinni hlutanum þegar Óli sagði Ragnari Lárusi að hann væri í "zone-inu" eftir að Raggi hafði hitt tvö góð drive í röð. Í kjölfarið paraði Raggi hina erfiðu 16ándu braut. Fór svo eitthvað hugsa og efast tilvist þessa "zones" og hvarf þá jafnskjótt úr því og hann hafði lent í því og urðu punktarnir ekki fleiri eftir það . Meira um "zone-ið" síðar
.
Úrslit kvöldsins:
Röð | Nafn | Pkt. | Bráðabanar |
1 | Haffi | 34 | |
2 | Haukur | 32 | |
3 | Binni | 31 | |
4 | Eggert | 30 | |
5 | Tommi | 29 | |
6 | Hanna | 28 | |
7 | Sig.Egill | 26 | |
8 | Óli | 24 | |
9 | Halli | 22 | |
10 | Raggi L.Kr. | 18 |
Staðan:
Sæti | Nafn | 2.maí | 9.maí | Samtals |
1 | Haukur | 30 | 29 | 59 |
2 | Eggert | 29 | 27 | 56 |
3 | Haffi | 23 | 30 | 53 |
4 - 5 | Tommi | 24 | 26 | 50 |
4 - 5 | Binni | 22 | 28 | 50 |
6 | Raggi L.Kr. | 25 | 21 | 46 |
7 | Sig. Egill | 21 | 24 | 45 |
8 | Halli | 20 | 22 | 42 |
9 | Beggi | 28 | 28 | |
10 | Hergeir | 27 | 27 | |
11 | Sig. Óli | 26 | 26 | |
12 | Hanna | 25 | 25 | |
13 | Óli | 23 | 23 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2016 | 09:14
2. maí. Mót nr. 1 -Mosó-
"Here we go again". Þá er HOS-draumaleikhúsið lagt af stað enn eitt árið. Sýningin verður mögnuð þetta árið. Leikendur aldrei komið jafnvel undirbúnir til leiks. Menn búnir að vera í æfingabúðum jafnt á St. Andrews, USA, Spáni, Básum og úti á Nesi. Það má því búast við miklum göldrum á vellinum í sumar.
Hlíðavöllur heilsaði þetta árið með norð-vestan kalda og fjári mikilli skítalykt í lofti. Menn héldu þó sprækir af stað út vorið og buðum gestum og gangandi uppá "show" hér og þar um völlinn. Í lok dags reyndist skorið ekkert sérstakt en hinsvegar mjög jafnt og gripið til skrifstofubráðabana um nokkur sæti. 2 neðstu sætin voru hinsvegar kyrfilega frátekin af Halla og Sigurði Egil...það gengur bara betur næst félagar eða eins og þeir segja í leikhúsinu þá má ekki allt ganga upp á general-prufunni...tu tu
Úrslit kvöldsins:
Röð | Nafn | Pkt. | Bráðabanar |
1 | Haukur | 31 | |
2 | Eggert | 30 | 17 |
3 | Beggi | 30 | 13 |
4 | Hergeir | 29 | |
5 | Sig. Óli | 27 | 13 |
6 | Raggi L.Kr. | 27 | 11 |
7 | Tommi | 26 | |
8 | Haffi | 23 | 13 |
9 | Binni | 23 | 8 |
10 | Sig. Egill | 19 | |
11 | Halli | 16 |
Staðan:
Sæti | Nafn | 2.maí |
1 | Haukur | 30 |
2 | Eggert | 29 |
3 | Beggi | 28 |
4 | Hergeir | 27 |
5 | Sig. Óli | 26 |
6 | Raggi L.Kr. | 25 |
7 | Tommi | 24 |
8 | Haffi | 23 |
9 | Binni | 22 |
10 | Sig. Egill | 21 |
11 | Halli | 20 |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2015 | 23:53
Extra!! Extra!!! Strákarnir fastir í Barcelona
Goggi, Túkallin og Vítamínid misstu af vélinni heim vegna seinkunnar á tengiflugi og sitja núna á Ibis ad fa ser einn fyrir svefninn. Koma vonandi heim á morgun kútarnir.
Over and out
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2015 | 23:49
Reynir sigurvegari í Alcaidesa
Thad var enginn annar en Goggi mega sem rulladi upp motinu a Alcaidesa. Rigning og almennur slappleiki gerdi thad ad verkum ad ekkert var spilad á sídasta degi.
Til Hamingju Reynir
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2015 | 08:35
Ennþá kalt á toppnum!!
Spiluðum 36 holur í dag með svipuðu fyrirkomulagi, nema að við tókum í leiðinni þátt í lokamóti Heimsferða á staðnum. Túkallinn og Malli saman í liði og að sjálfsögðu í fyrsta holli hvað forgjöf varðar. Seinni hringur sömu lið í Texas og tvær rauðvín teknar með á hringinn og bara einn bjór á mann:)
Halli og Malli náðu á fyrstu þremur holunum að vinna upp forgjöfina (3högg) og það stefndi í afhroð hjá Gogga og Vítamíninu. Að sjálfsögðu má aldrei afskrifa þá félaga og Goggi kom sterkur inn með góðum fugli sem var settur í af löngu færi og þeir félagar komu sterkir til baka og áttu tvö högg eftir 12 holur. Þá duttu Hilmar og túkallinn í gang og náðu þremur fuglum á fjórum holum og á meðan klikkuðu snillingarnir aðeins og þeir sáu ekki til sólar eftir það.Niðurstaðan varð sú að Manni og Hallahipp spiluðu á parinu án forgjafar plús 3 á fyrri og mínus þrír á seinni. Goggi og Mr.V 7 höggum á eftir fyrir utan forgjöf. Spennan magnast, Reynir efstur en tveir einu stigi á eftir.
Staðan:
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 08:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2015 | 21:14
Kalt á toppnum!!!
Góður dagur að baki, 36 holur teknar í dag og sama dagskrá. Betri bolti og punktaleikur í fyrri hring og Texas í seinn. Goggi og Malli á móti Vítamíninu og Túkallinum!!! Gríðalega spennandi betri bolti þar sem Malli fór á kostum á seinni og setti tvo fugla þegar mótherjarnir klikkuðu aðeins og þeir unnu á jöfnu og betri seinni. Færsla frá tíðindamanninum kemur fljótlega en svona eru úrslitin eftir 6 daga:
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2015 | 17:49
Staðan eftir 5.dag
Elsku kútarnir mínir. Við höfum náð 36 holum síðust þrjá daga og spennan er gríðarleg. Goggi leiðir frekar óvænt en aðrir stutt á eftir. Dagskráin er alltaf eins. Betri bolti milli liða og einstaklingskeppni annan hringinn og Texas hinn hringinn. Það verður eitthvað meira sett inn á eftir fyrir þá sæm býða spenntir.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2015 | 21:43
Day funf, alles klar
Nú erum við gamlir!!! Áttum rástíma kl 10 og vorum vaknaðir kl 8!! Aldrei verið jafn tímalega á teig og biðum í 40 mínútir eftir að komast út. Skelfilegt, sumir orðnir gamlir! Menn farnir að vakna á nóttinni til að pissa En Golfið í dag byrjaði á Texas HAlli Hipp og Roy á móti Manna og Sigga sæta sem unnu með einu hoggi. Rass!!! Seinni 18 voru sömu lið, betri bolti og einstaklings keppni. Annan daginn í röð vann Roy 34 punktar, Vítamínir 33 pkt og Hipp með 32, aðrir minna. Í betri boltanum unnu Hipp og Roy með 2 punktum. Lífið er ferlega erfitt hérna úti, sól og 28 stiga hita. Að sjálfsöðu er 33 manna hópur frá Heimsferðum kominn í helstu leikina með okkur.
Ha !! Sko !! dansa !!neiiii Ha - sko !! Túkalinn hefur aldrei dansað jafn mikið seinustu 10 ár :-) er búinn að vera einn að leika í 5 daga. Einna helst að segja frá að Siggi og Knútur eru að skipuleggja næstu Suddu/Haren ferð með Stínu. Los Lagos !! Lífið er........yndisl............
Jæja 36 kvikindi lögð í dag. Verðum að játa að við erum ekki að nýta okkur "all included#" í drykkjunum, or not.
Black and white þema á barnum í kvöld. Mættum allir í bleiku. Eina sem var þurrt eftir sundlaugaferðir. Early ris á morgun í nýjan völl. 7.45, já sæll, hættum sennilega fyrir klukkan fimm út af því.
Refsingar á eftir, rassar, boltinn glerharður...........cant wait.
Love you all
ps. er konan þín með bílpróf, nei bíllinn var svona þegar ég keypti hann
Elskum ykkur öll, líka Digger og Ásinn, Axel, Haffa, Tomma og alla hina mánudagsgúrkurnar.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2015 | 21:11
Dagur 4
Jæja steikur
Dagur 4 , gleymdist að skrifa í gær, Halli gat ekki vistað eftir langa vist, þeas félagsvist. Skelltum okkur í golf í dag. Brakandi blíða 25 kvikind og smá sólargeisli, Reynir henti í vörn 89 enn brann samt á bakinu, þó að hann hafi verið í bol. Teknar voru 36 holur þennan daginn , allt golfholur. Reynir og Malli voru saman í liði og unnu þeir Sigga og Halla (þeir sem eru ekki bunir að átta sig á því þá erum við 4 í golfferð). Reynir var hógvær og var ekkert að láta aðra vita að hann hafi unnið. Hann var auðmýktin uppmáluð og var alls ekki að nudda okkur upp úr tapinu. Annars mættum við og seint í matinn eins og vanalega, en fengum þó allavegna nokkrar gúrkur og síðasta tómatinn. Ég held að íslendingahópurinn sé farinn að kannast við okkur. Annars var ekki djúsað lengi í gær, duttum í koju um 6.30. Morgunmatur 7.30.
Fyrir ykkur sem voru að fylgjast með nuddinu hjá Mucles Boy þá var það afboðað þar sem hann treysti sér ekki í það. Hann fékk endurgreitt, auk þess að hann fékk frí sólarvörn, númer 89.
Annar voru komin úrslit með stöðunni eftir dag 4 en fljótlega annað kvöld (samt sama kvöld) kemur staðan og ferðasagan eftir dag 5.
Over and out
Later
ps. þeir sem hafa ekki heyrt í kaffibrúsakörlunum eiga margt eftir.
PPS. Hefur konan þín bílpróf, Nei bíllinn var svona þegar ég fékk hannn
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.10.2015 | 21:12
Staðan eftir fjóra daga
Jæja þá er komin staða eftir fyrsta alvöru hringinn okkar en það voru kláraðar 36 holur í dag. Aukastigin fyrir sundlaugaleikinn eru ekki ennþá komnin inn en Goggi og Vítamínið eru rólegir ennþá enda komnir á fimmtugsaldurinn og aðeins farið að hægja á þeim.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 54
- Frá upphafi: 68456
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar