13.8.2024 | 11:16
Mót-13. Öndverðarnes. 9. ágúst. -FRAM-open-
Fram Open mótið var haldið í Öndverðarnesi 9. ágúst í eindæma blíðu. Ellefu spilarar úr mótaröðinni mættu til leiks enda til mikils að vinna þar sem um risamót er að ræða og tvöfaldir punktar í boði. Það sýndi sig glöggt að keppnin á Fram mótaröðinni heldur spilurum í góðu formi því tveir í okkar hópi komust á pall í mótinu fyrir hæsta punktaskor; Siggi í 3ja sæti með 40 p. og Haukur í 2. sæti einnig með 40 p. en betri seinni níu. Hergeir var ekki langt undan með 39 p. og þá Tóti með 38 p.
Það er við hæfi að hrópa ferfalt húrra fyrir glæsilegum árangri spilara okkar í Fram mótaröðinni á Fram open mótinu; húrra, húrra, húrra, Húrrra.
Það þurfti að grípa til bráðabirgðaskrifstofubana í þremur tilvikum. Haffi og Eggert voru saman á golfbíl á mótinu og spiluðu nánast eins; 18+17 = 35 p. Haffi var þó með frábæran endasprepp á síðustu þremur holunum (9p.) og tekur því bráðabanann. Halli og Tryggvi voru báðir á 33 p. en Halli var með fleiri punkta á seinni níu. Þá var blóðug botnbarátta um síðasta stigið í boði fyrir þetta mót á milli Hönnu og Tomma. Bæði voru þau á 27 punktum en Hanna hafði betur á seinni níu. Tommi situr því eftir í júmbósætinu þetta skiptið.
Nú eru 9 spilarar á mótaröðinni (af 15) búnir að leika 10 hringi og því er heildar stigataflan farinn að taka á sig gleggri mynd. Hergeir jók við forystu sína og er nú með 105 stig. Lægsta stigaskorið í heildarskori Hergeirs eru 8 stig og því verðug áskorun fyrir hann að bæta við heildarskorið. Það má segja að hann hafi unnið vel fyrir hjólaferðinni framundan og 2ja vikna fríinu frá golfinu.
Eggert er í 2. sæti með 100 stig og Haffi í 3. sæti með 98 stig. Haukur tók risastökk upp töfluna með sigrinum í Fram open og er nú farinn að blanda sér í toppbaráttuna með 93 stig í 5. sæti.
Ekki er öll nótt úti fyrir spilara því enn eru nokkur mót eftir í ágúst til að laga heildarskorið áður en haldið verður veglegt lokamót í september með tilheyrandi punktasprengju.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2024 | 11:10
Mót-12. Mosó. 5.ágúst.
Tíu spilarar mættu til leiks á frídag verzlunarmanna. Eitt holl (Tommi, Írunn og Haukur) fór snemma af stað og uppskar að sleppa við steypiregn sem síðari hollin lentu í á seinni níu holunum. Tvö bestu skorin komu samt úr rigningarhollum þannig að bleytan virtist ekki hafa mikil áhrif á spilara. Eggert hitaði upp með nokkrum pillum sem dr. Gauti hafði skrifað uppá og nokkur umræða var um að það þyrfti að taka upp lyfjapróf á mótaröðinni :D. Halli sem mætti ferskur til leiks eftir langvarandi dvöl í sumarbústaðnum í sumar aftók að taka að sér það hlutverk að sjá um þvagprufurnar.
Gauti landaði sínum öðrum sigri á mótaröðinni í sumar með 38 punkta og hafði betur í skrifstofubráðabana við Hergeir, sem er að spila fantavel þessa dagana. Haukur kom svo í þriðja sæti með 36 punkta en Haukur hefur verið að sækja í sig veðrið að undanförnu eftir rólega byrjun.
Miklar breytingar eru í heildarstigtöflunni þar sem Haffi sem hefur leitt mótið síðustu 6 vikur fellur niður í 4 sæti eftir dapurt gengi undanfarnar vikur. Hergeir hefur aftur náð toppsætinu eftir að hafa vermt það í 4 vikur fyrr í sumar og Eggert er kominn í 2. sætið og Gauti í það þriðja. Það er þéttur pakki á toppnum og nú eru nokkrir farnir að fylla upp í 10 spilavikna viðmiðið og því er komin betri heildarmynd á stöðutöfluna.
Halli hélt uppi góðri stemningu á 19. holu og fær aukastig að launum.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2024 | 11:04
Mót-11. Mosó. 29. júlí.
Frábær mæting var mánudaginn 29. júlí í vikunni fyrir Verzlunarmannahelgina og þokkalegasta veður. Þar bar helst til tíðinda að litlu munaði að tíðindamaður missti putta þar sem hann var að slá innáhögg á 3 flöt til vinstri við flötina. Bolti frá 2. teig kom á mikilli ferð beint á Haffa, sem leit upp þar hann heyrði kallað "Four". Það var sjokkerandi moment að sjá kúlu koma á fleygiferð aðvífandi að því er virtist beint í haushæð. Ekki var ráðrúmrúm til að bregðast við en Haffi snéri hausnum til hliðar og í sömu anddrá kom hár hvellur þar sem boltinn small á ógnarhraða í mitt haldið á golfkerrunni. Kúlan small í hlið vísifingurs hægri handar og þeyttist af handfanginu upp en sem betur fer ekki í höfuð tíðindamanns. Puttinn bólgnaði upp samstundis og er ennþá verkur til staðar 2 vikum síðar. Þetta var "Trump" heppni í þessu, Haffi slapp með skreppinn og smávægileg meiðsli og bara sentimetra spursmál að mjög illa hefði geta farið.
Þessi saga er góð áminning fyrir alla að gæta vel að þeim hættum sem leynast á golfvellinum.
Hér er samantekt á úrslitum þessa mánudags þar sem Tommi landaði sigri. Alls voru 5 spilarar með 31 punkt og Haffi hafði þar sigur í skrifstofubráðabana.
Í heildarkeppninni heldur Haffi naumri forystu á frænda sinn með einu stigi. Allt að þéttast á toppnum núna og spenna framundan.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 13. ágúst 2024
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar