20.9.2024 | 11:50
Mót-17. Mosó. 2. september.
Spilavika 17 var haldin í smá blæstri en annars þokkalegasta veðri annan dag september mánaðar. Spilaðar voru seinni níu holurnar.
Hergeir sem leiddi Fram mótaröðina áður en hann fór í hjólafrí til Króatíu sýndi að hann hafði engu gleymt á þessum tveimur vikum sem duttu út og spilaði hreint frábærlega. 22 punktar á kappann og efsta sætið tryggt. Tryggvi var einnig á flugi með 21 punkt og aðra vikuna í röð með 20+ punkta. Haffi nældi sér í þriðja sætið með 18 punkta.
Röðun manna í efstu sætum í heildarstigakeppninni breyttist ekki við þessi úrslit en Hergeir jók aftur við forystuna á topnnum. Eggert er í öðru sæti og Gauti í því þriðja.
Vegna slæmra veðurskilyrða í september duttu tvær spilavikur út, 9. sept og 16. sept.
Þetta er því síðasta spilavikan sem telur fyrir lokamótið sem haldið er á sunnudaginn næstkomandi, 22. september.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2024 | 11:47
Mót-16. Mosó. 26. ágúst.
Hér kemur síðbúin samantekt á spilaviku 16 sem leikin var 26. ágúst.
Vegna þess hve seinir rástímar náðust fyrir tvö hollana var tekin ákvörðun um að láta aðeins fyrri níu holurnar gilda í mótaröðinni sökum birtuskilyrða. Eitt hollið fór fyrr af stað og kláraði allar 18 holurnar en aðeins fyrri níu töldu hjá þeim í mótaröðinni líkt og hjá öðrum.
Tryggerinn var í stuði og landaði 20 punktum á fyrri níu og vann með yfirburðum. Málarinn síkáti (nema þegar hann er ósáttur með spilamennsku sína) skilaði einnig góðum fyrri níu með 17 punkta. Ríkjandi meistari, Jói Fel, minnti loks á sig í sumar með solid 16 punktum og var þriðji.
Í heildarstigakeppninni gerðust þau tíðindi helst að Eggert þjarmar nú verulega að Hergeiri í efsta sætinu og aðeins munar einum punkti. Svokallaður suðupunktur!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2024 | 10:21
La Sella 2024 dagskrá
Jæja þá er bara vika í golfferð til La Sella. Allir orðnir spenntir. Það er komin dagskrá og keppnisfyrirkomulag. Það á liklega eftir að breytast eitthvað en það á bara eftir að koma í ljós. Kærufrestur er til hádegis í dag.
Það verður keppt í einstaklingskeppni þar sem 200 euro verða í boði ásamt montrétti í ár í ungir vs. gamlir.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 20. september 2024
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar