23.9.2024 | 10:20
Mót-18. LOKAMÓTIÐ í Mosó. 22. september.
Lokamót Fram mótaraðarinnar fór fram í geggjuðu veðri sunnudaginn 22. september.
Líklega eitt besta spilaverður sumarsins, nánast logn 9-10 stiga hiti og sólríkt.
Fyrirkomulag lokadagsins sem bauð upp á fjölmörgum stig, þýddi að allnokkrir spilarar áttu góða möguleika á sigri.
Spilað var risamót á 18 holum en auk þess var liða keppni með betri bolta þar sem tveir voru saman í liði (valið saman fyrirfram).
Liðakeppnin reyndist mjög jöfn og voru 3 lið jöfn í 2-4 sæti með 42 punkta.
Efsta liðið voru Eggert og Hanna en þau skiluðu saman 43 punktum. Þar munaði talsvert um tvo fugla hjá Hönnu.
Liðakeppni - lokamót | punktar | röð | ||
Lið 1 | Hergeir | Jói Fel | 38 | 6 |
Lið 2 | Eggert | Hanna | 43 | 1 |
Lið 3 | Gauti | Siggi | 42 | 3 |
Lið 4 | Haffi | Viktor | 42 | 4 |
Lið 5 | Haukur | Tómas | 41 | 5 |
Lið 6 | Tóti | Tryggvi | 42 | 2 |
Einstaklingskeppnin reyndist einnig fremur jöfn. Aðeins munaði 6 punktum á fyrsta sætinu (37 p.) og 10. sæti (31 p.). Haffi spilaði ansi stöðugt golf og landaði 37 punktum og varð eftur í lokamótinu. Tryggvi Tryggva var nýlentur frá Ameríku en lét það ekki aftra sér að koma beint á Mósó og spilaði fantavel á 36 punktum. Siggi Ás kom svo í þriðja sætinu með 35 punkta.
Heildarstigakeppnin
Þegar útkoma lokamótsins var lögð saman við stigastöðu 10 bestu hringja sumarsins var niðurstaðan eftirfarandi;
Haffi varð efstur með 133 stig. Hann náði 30 stigum í lokadeginum og fór úr 4. sætinu í það fyrsta.
Eggert hóf daginn í öðru sæti og hélt því sæti með 126 stig í heildina og 17 stig á lokadeginum.
Hergeir, sem var í forystusætinu fyrir lokadaginn, átti óvenju rólegan dag og bætti aðeins 5 stigum í sarpinn og endaði með 120 stig.
Af öðrum áhugaverðum úrslítum má nefna að Tryggvi átti mjög góðan dag og bætti við sig 30 stigum og endaði í 4-5 sæti ásamt Gauta.
Í töflunni hér að neðan sjást úrslit og stigagjöf á lokadeginum:
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 23. september 2024
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar