29.8.2010 | 21:26
Úrslit Harenmótaraðar 2010
Föstudagurinn 27. ágúst var stóri dagurinn á Haren mótaröðinni. Þá fórum við átta saman austur fyrir fjall og tókum 36 holur á tveimur frábærum völlum. Sextán stig voru í boði fyrir þann sem myndi vinna bæði mótin. Við byrjuðum í punktaleik í Öndverðarnesi þar sem ekki var hægt að kenna veðri um slælegan árangur. Það fór svo að lokum að gestur mótaraðarinnar hún Hanna Þúður vann okkur kallana með 36 p. Siggi kláraði á 33 p. og Jón Ari á 32p. Með því settu þeir mikla spennu í mótaröðina sem Heggi var búinn að vera með nokkra yfirburði í. Við skelltum okkur síðan í Kiðjabergið þar sem búið var að panta bíla fyrir mannskapinn. Skipt var í fjögur lið í Texas og lið eftirfarandi: Hanna og Siggi V (+9 í forgj.), Haukur og Tommi (+5 í forgj)saman í holli. Í hinu hollinu voru síðan Halli og Jón Ari (+6 í forgj) saman í liði á móti Hegga og Reyni (+8 í forg.). Þetta reyndist verða gríðaleg spenna þar sem Halli og Jón spiluðu á +2 án forgjafar og Haukur og Tommi spiluðu á +1 án forgjafar. Það fór svo að lokum þegar búið var að reikna þetta fram og til baka að Tommi og Haukur höfðu unnið á betri seinni og skipti þá mestu máli birdy á 16. holu. Með því fékk Haukur B. átta stig í baráttunni og um Haren bikarinn og stóð uppi sem sigurvegari 2010. Við óskum Hauki innilega til hamingju með bikarinn og hann fær nafnið sitt greipt á bikarinn en í fyrsta sinn var veittur farandbikar fyrir mótaröðina. Meistarar frá 2005-2009 koma fram á bikarnum. Á næstunni munu verða settar inn myndir og myndbönd frá þessum frábæra síðasta degi mótaraðarinna. Hér eru lokaúrslit Harenmótaraðar 2010:
Haren 2010 Mót 1 Mót 2 Mót 3 Mót 4 Mót 5 Mót 6 Mót 7 Mót 8 Mót 9 Mót 10 Samtals Bestu 5 Röð Halli 2,5 3 0 4,5 4,5 3 0 1 3 6 27,5 21 5 Haukur 5 1 3 6 4,5 0 2 2 1 8 32,5 26,5 1 Heggi 4 3 4 2 2 4 4 6 2 2 33 22 4 Siggi 0 3 5 3 3 0 3 3,5 7 4 31,5 22,5 3 Jón Ari 2,5 1 1 4,5 0 2 0 5 6 6 28 24 2 Tommi 1 0 2 1 0 1 0 3,5 5 8 21,5 19,5 6 Reynir 0 1 0 0 1 0 1 0 4 2 9 9 7 TEXAS
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 22
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 68505
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.