27.10.2011 | 18:51
3 dagur á Ballena
Glæsilegu félagar
Þá er golfinu lokið þennan daginn. Það var frekar vindasamt í dag og því var ákveðið að taka einungis 18 holur og sofa út. Byrjað var að spila við Jón Andra og Ragnhildi Sig og var fyrirkomulagið holukeppni, samanlagðir punktar. Öldungarnir töpuðu með 3 holum. Eftir 18 holur var svo ákveðið að spila par 3 holu völlinn hérna en hann er mjög flottur, brautir frá 100 m upp í 190 metrar. Þar var spilað hin víðfrægi dollaraleikur við Ragga Hilmarss. Hergeir spilaði eins og herforingi og var komin á -2 eftir 2 holur og endaði hann á 30 höggum, Siggi 35 högg og Raggi 36 högg. Frekar erfitt að spila í dag í rokinu en spáin er góð framundan.
Stardusinn átti gott moment í dag þegar hann setti einn boltann upp á hús, svo vel dundi í, einnig stóð kona í garðinum og er hún núna komin á blóðþynningslyf og hjartapillur. Stardusinn lét þó ekki bugast og tók annan bolta og hann fór inn í næsta garð við hliðina á. Í þessum töluðu orðum er verið að skipta um rúður í því húsi.
Einnig ber að minnast þess frá því í gær, að hin veraldarvani Hermína ráðlagi Stardus að taka með golfskóna frá golfskálanum og geyma þá út á svölum. Það gerðum við en þeir gleymdust þar. Úrhellisrigning var í nótt, svo þeir voru ekki alveg þurrir í morgun. Takk fyrir þetta Hermina mín.
Annars er Hermína að spila mjög stöðugt golf og sjaldan í vandræðum. Raggi er að vaxa ásmegin en Stardusinn er bara með hægðir og lægðir.
Þangað til næst
Later
Staðan eftir daginn:
Dagur 2 | Stigaskor | ||||||||||
| Punktar | Högg | Dollarakeppni | Stig $ | Holukeppni við Jón og Röggu | Stiga Punktar | Sund | Fegurð á velli | Naktir á svölunum | Loka ekki hurðinni á klósettinu | Samtals |
Hergeir | 30 | 87 | 900 | 3 | 1 | 2 | 0 | 4 | 1 | 0 | 11 |
Siggi | 28 | 97 | 700 | 2 | 1 | 1 | 0 | 4 | 1 | 0 | 9 |
Raggi | 32 | 89 | 200 | 1 | 1 | 3 | 0 | 4 | 1 | 0 | 10 |
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
GoGo Big Easy
Here´s yar pep up song
http://www.youtube.com/watch?v=wBHuTCrjm_o
Geira Her Fan Club (IP-tala skráð) 28.10.2011 kl. 15:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.