1.11.2011 | 13:09
Öldungamótaröðin klárast
Já allt tekur enda og hin geysiskemmtilega öldungamótaröð kláraðist í gær. Keppendur koma síðan heim í dag og má búast við góðum móttökum í Leifstöð. Tíðindamaðurinn hefur fengið þjónustufólk flugstöðvarinnar að skilja eftir tvo rafdrifna hjólastóla fyrir Hermínu og Sigríði Grönfeld svo að þær eigi auðvelt með að komast í gegnum tollinn. Það er líklegt að það verði þegið fegins hendi hjá þeim. Það má svo búast við því að dagbók Sigríðar verði birt hér á blogginu á næstunni og að sjálfsögðu endanleg úrslit. Sigríður vinnur að handbók fyrir útreikningar í íþróttaviðburðum og vonandi verður þessi bók einng birt hér á blogginu. Það eru komnar nýjar myndir í albúmið Öldungamótaröðin 2011 og það má búast við miklu fleiri myndum þegar hetjurnar koma til baka.
Með kærri kveðju um góða heimferð.
Tíðindarmaðurinn
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 10
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 68474
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góða ferð félagar. Búið að vera stórskemmtilegt að fylgjast með ævintýrum ykkar í suðurlöndum. Bíðum spenntir eftir úrslitum...kannski að ELO-stig komi við sögu?
. kv. HB
H.Bragason from Kjölur Mosfellsbæ (IP-tala skráð) 1.11.2011 kl. 14:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.