24.4.2012 | 11:23
HAREN-seasonið 2012...við það að hefjast !
Það voru 4 sterkir mættir á teig í fyrsta fasta tíma á mánudegi. Mótastjórinn, lögfræðingurinn, fjármálastjórinn og ritstjórinn. Það kom illa í bakið á mótastjóranum sú ákvörðun hans að fresta fyrsta móti ársins þar sem hann skoraði 30 pkt. á 14 holum og sigraði einstaklingsleikinn létt. Annars voru liðinn þannig að saman léku; mótastjóri og lögfræðingur gegn ritstjóra og fjármálastjóra. Þetta var ansi sveiflukenndur leikur þar sem mótastj./lögfr leiddu allan tímann. Með harðfylgji tókst ritstj./fjármálastj. að jafna leikinn á 9undu. Þá tók mótastjórinn sig til og opnaði einn grænan classic og hellti uppá liðið sitt (andstæðingarnir fengu ekkert). Það var ekki að sökum að spyrja hann raðaði inn fuglunum og endaði leikur með 10 pkt sigri mótastjóra og lögfræðingsins. Munaði þar með engu að hamborgari hefði þurft að fylgja bjórnum.
Þetta var hin mesta skemmtun í aldeilis frábæru veðri á Hlíðavelli og ljóst að menn mæta grimmir til leiks þegar mótastjórinn flautar loks mótið á. Fjármálastjórinn kom svo sterkur inná 15. holu og fékk sér 2 kalda og setur þar með nýtt viðmið.
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.