HAREN-mótaröðin stendur undir nafni.

Það blésu ferskir vindar í fyrsta mótinu sem haldið var síðasta dag apríl-mánaðar.  Eftirvæntingin var mikil og ekki laust við að léttur spennuhrollur gerði vart við sig á fyrsta teig...kannski var það bara veðrið.  En veðrið lagaðist eftir 3 holur og við tók eintóm gleði.   Eins og oft áður léku flestir illa, fáir sæmilega og einn vel. Skipt hafði verið í lið, ungir-gamlir, og unnu gamlir yfirburðarsigur. Tommi virðist alls líklegur þetta sumarið. Til að mynda var fréttaritari staddur í fermingarveislu í félagsheimili úti á landi og þar höfðu menn hafði fregnir af honum við æfingar nú um helgina þar sem hann fékk t.d. léttan örn á 2. holu Hlíðavallar (driver-wedge-wedge og vola...ofan í fór hann).

Fastir leikdagar höfðu verið ákveðnir á aðalfundi félagsins.  Strax hefur þurft að fresta móti og er það anda mótaraðarinnar.  Eins og forseti USA þá hefur mótastjóri 100 hveitibrauðsdaga til að sanna sig (enginn pressa hr. mótastjóri) hann þarf reyndar ekki nema að ná 5 mótum til að gera betur en fráfarandi mótastjóri Smile.  Eftir lauslega talningu þá eru 26 mánudagar á þessu sumri þ.a. það er gott rými fyrir fullt af mótum.

Mikil tilhlökkun er fyrir næsta móti en þá mætir Jón Ari Ólafsson, also from Kjolur Mosfellsbaer,  beint frá Múmíndal í Noregi. Þar er búin með 2 ár (af 4) í s.k. golfmenntaskóla og bíða menn spenntir eftir að sjá hvað hann hefur fram að færa þetta sumarið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband