24.7.2012 | 11:19
H.Bragason kætir Framara
Fyrrum meistar mótaraðarinnar og fyrrum mótstjóri, H.Bragason hefur verið gerður að lukkudýri Framara í meistaraflokki knattspyrnu og það virkar vel. Tveir góðir sigarar eftir að hann var settur á bekkinn. Að sama skapi hefur hann ekki getað látið sjá sig á Harenmótaröðinni undanfarið þegar leikir rekast á. Hann heldur samt ennþá þriðja sæti og fjöldi móta eftir. Aðrar fréttir af fótboltaköppum mótaraðarinnar þá má geta þess að Siggi Vítamín gat ekki tekið þátt í gær þar sem hann var að spila í utandeildinni þar sem hann hamraði einn í geitina. Það er ljóst að Sigurður verður að taka sig verulega á (t.d. með því að mæta) ef hann ætlar að eiga von um að halda bikarnum í Kópavoginum.
Tommi kom sá og sigraði í gær og gaman hvað sumir eru að ná að lækka sig á mótaröðinni. Kannski ekki skrítið þar sem félagsskapurinn er einstakur. Heggi stabíli var í öðru sæti og sigraði Reyni með betra skor á seinni níu. Reynir er alvarlega farinn að blanda sér í toppbaráttuna og er á uppleið í golfinu. Bíllinn hjá Binna stóðst 18 holurnar með trixum en það er ljóst að hann verður að vinna í bílnum í vetur til að hann verði í toppstandi á næstu leiktíð. Annar eru úrslit og staða eftirfarandi:
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 68464
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.