2.9.2012 | 21:03
Nyrsti 18 holu golfvöllur í heimi
Þar sem mótstjórinn er staddur þar er golfmót og eitt slíkt var haldið í dag á golfvelli nálægt Tromsö. Það er víst nyrsti 18 holu golfvöllur í heimi en þrátt fyrir það er þetta skógarvöllur. Brautirnar eru frekar daprar þar sem það vantar gras víða en flatirnar eru nokkuð góðar. Allir teigar eru með gervigrasi. Umhverfið á þessum velli er æðislegt og við vorum svakalega heppnir með veður, logn og 17 stiga hiti. Allar par 5 brautir á þessum velli eru um 470 metra sem er bara nokkuð þokkaleg lengd. Keppendur í dag voru aðeins tveir en við vorum svo heppnir að hafa kylfubera með okkur sem stóð sig líklega best. Við þurftum að leigja okkur kylfur sem voru ekki að nýjustu gerð, kaupa okkur golfbolta og hanska. Skorið hjá mótsjóranum var á endanum 99 slög og 26 punktar. Binni pinni var eitthvað yfir 100 högg en vann punktaleikinn á 29 punktum.
Það er eru myndir af þessum nyrsta 18 holu velli í heimi í myndalbúmi Tromsö golf 2012
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 68464
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.