21.9.2012 | 23:22
Harenmótaröðinni 2012 lýkur á morgun i Borgarnesi
Á morgun verður svaka spenna í Borgarnesinu þegar Harenhópurinn slær botninn í frábært sumar. Búið að skipta í fyrstu lið og eru ráshópar eftirfarandi:
Halli+Raggi
Reynir+Siggi
Tommi+Frikki
Hanna+Irunn
Heggi+Binni
Haukur+Ingvar
Annars er dagskráin frá Sigga Vítamín þannig.
Þá er komið að lokamóti sumarsins í Snuddu Haren Iceland soClosed 2012. Það hafa verið haldin mót í sumar reglulega á mánudögum og hefur það reynst fyrirkomulag nokkuð vel. Lokamótið verður haldið í Borgarnesi laugardaginn 22.september. Þátttakendur eru 12 talsins.
1. Ragnar Lárus
2. Haraldur Þór Túkall
3. Hergeir EL
4. Tommi hóst
5. Ingvar Stef
6. Reynir Stef
7. Haukur FROM KJÖLUR MOSO
8. Binni Rolls (sá einhver boltann minn)
9. Sigurður Vítamín
10. Frikki Nikk (gestur)
11. Frú Hanna Hauks (gestur)
12. Frú Irunn Tomms (gestur)
Gott að vita:
· Spilaðar verða 36 holur
· Rástímar fyrri hringinn eru frá 9.30 til 9.50
· Rástímar fyrir seinni hringinn eru frá kl. 14-14.20
· Fyrri 18 holurnar eru tvöföld keppni. Bæði er einstaklingskeppni í punktakeppni og svo er líka betri bolti, það er 2 saman í liði og betra punktaskor á holu telur.
· Seinni 18 holur er spilað Texas scramble
· Mótastjóri er Haraldur túkall sonur Gunnlaugss
· Búið er að leigja 5 golfbíla (2 þurfa því að labba), ég veit að Binni Rolls ætlar að labba og því vantar bara einn í labbið.
· Búið er að leigja ekki rútu heldur langferðabíl. Ekill er H.Elíasson, sonur pabba síns og mömmu (tek það fram að hann á gríðarlega fallega systir) nei Raggi, ekki þessi eldri)
· Eftir 36 holu spilað verður borðað í Borgarnesi (golfskálanum)
· Veisla heima hjá Tomma beint eftir matinn í Borgarnesi. Hann verður með rautt og hvítt á staðnum og bjór. Þeir sem vilja drekka eitthvað annað hjá Tomma koma með það sjálfir.
· Drykkir og matur yfir daginn sjá menn um sjálfir
Dagskráin er svona:
6:00 Elías junior vekur pabba gamla með einum gráum
7:15 Hópreið Hergeirs stoppar hjá Sigga í Lautasmára 8
7:30 Hópreið Hergeirs stoppar hjá Tomma í Funafold 35 (Hópreiðin stoppar hérna eftir golfið, ef menn vilja fara með bíla sína þangað, en það verður enginn ökufær)
7:35 Hópreið Hergeirs stoppar hjá Halla í Hamravík 34
7:45 Hópreið Hergeirs stoppar hjá Ragga í Bakkastöðum 1 (hér þurfa allir að vera komnir um borð sem ætla með Hópreiðum (þeir sem ætla á eigin bílum, vinsamlegast látið okkur vita)
09:00 Mætt á Hamarsvöll í Borgarnesi, gengið frá greiðslum og bílum, bjórar fylltir á golfpokann
09:30 Mót hefst
09:31 Rollsinn rafmangslaus
09:32 Halli túkall klikkar á upphafshöggin og fer ekki fram yfir rauða teiginn, bjór fyrir 12 manns takk, það voru allir að horfa
13:30 fyrri hring lokið og menn fá sér að borða milli hringja (hraðar hendur)
14:00 Ræst út í seinni hringinn Texas scramble
18:15 Golfi lýkur
19:00 Matur og drykkir í Borgarnesi (golfskálanum)
19:45 Hópreiðin leggur af stað í bæinn (mjög létt yfir Hópreiðinni á þessum legg)
21:00 Lokahóf Snuddu Haren Iceland soClosed 2012 hefst í Funafold 35 hjá Tómasi hóst
21:01 Fordrykkur
21:30 Hringt í Jenna (leyfilegt að skamma hann)
22:00 Verðlaunaafhending fyrir árangur sumarsins, veit verða verðlaun fyrir forgjafaflokk 0-5 í forgjöf og svo frá 5-10 í forgjöf, aðrir fá skammarverðlaun
22:30 Halli gerir tilraun til að fá alla í fatapóker
23:00 DJ Reynir stýrir músik kveldsins
23:00 Haukur verður með örfund í einu herberginu (ca 5 mín). Aðeins hann og skynsemin eru boðuð á þenna fund. Niðurstaðan er að hann á að hella meira vín í sig.
00:00 Allir á dansgólfinu, nema Halli er einn að spila félagsvist á 4 borðum
01:00 Nóttin er ung
Ef einhverjar spurningar eru hafið samband.
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 68464
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.