27.9.2012 | 10:33
Lokamót í Snuddu Haren soclosed in Iceland 2012
Þá er lokið Snuddu Haren 2012. Mótaröðinni var slúttað með glæsilegum hætti. Haldið var 36 holu lokamót í Borgarnesi. 9 leikmenn af 10 voru mættir til leiks ásamt 3 gestaspilurum. Kjötgerðarmaðurinn var fastur í loftmalakoff. Veðurspáin var ekkert allt of góð fyrir daginn en óhætt er segja að Veðurguðinn hafi fært okkur þessu miklu blíðu, blanka logn og gulir geislar. Keppnisfyrirkomulag var þannig að hægt var að ná 36 stigum fyrir daginn, en á fyrri 18 holur voru spilaðir samtímis, betri bolti og punktaleikur í einstaklings, 24 stig í boði fyrir fyrri daginn og 12 fyrir seinni hringinn í 18 holu Texas. Óhætt er að segja að Diggerinn hafi komið gríðarlega sterkur til leiks og náði í 33 stig af 36 mögulegum. Glæsilegt. Einnig spilaði Tommi mjög vel og náði í 32 stig þennan daginn. Sigurður, Tommi og Haukur náðu einnig að lækka í forgjöf, Tommi 37p, Haukur 38p og Sigurður V 40 p. Noregsfarinn var mikil vonbrigði á hringnum og greinilegt að Noregsbröltið situr mikið í honum og heldur honum frá æfingum. Hann átti að vísu högg dagsins á 1.holu þegar hann setti hann beint í af 100 metra færi. Einnig fréttist af H.Elíasson klína honum á barmabrúnina á 2.holu sem er par 3. Eftir hringinn var svo dýrðar veisla í golfskálanum þar sem var boðið um á lambalæri og kalkún að hætti golfskálans. Færum við þeim bestu þakkir en þarna er frábær þjónusta og gott viðmót starfsfólks, sem vildi allt fyrir okkur gera. Lokahófið var svo haldið hjá Tomma eftir nokkur pissustopp á leiðinni heim. Menn voru misvel á sig komnir og mikil vonbrigði þegar kjúklingarnir í hópnum fóru að týnast heim fyrir kvöldfréttir. Gömlu mennirnir gáfu ekkert eftir og þeir síðustu voru að svamli fram yfir 2. Mikil spenna var í verðlaunaafhendingunni þar sem Haukur vann mótið með yfirburðum. Formaður afhendinganefndar ákvað þó að setja smá leikrit í gang þegar hann var búinn að afhenda bikarinn og sagði að útreikningurinn hafi verið rangur. Upphófst mikil reikistefna en en breytingin eftir útreikninga var að Haukur var með 10 stigum meira en tilkynnt hafi verið. Við óskum sigurvegaranum til hamingju og einnig öðrum með sinn árangur. Þetta er búið að vera frábært season og er hópurinn að dafna og stækka. Þetta er flottur kjarni og vonandi verður framhald á. Ég vil nota tækifærið og þakka mótstjóranum og hans aðstoðarmönnum fyrir frábært skipulag í sumar og þeirra vinnuframlag. Þeir sem eru svo á leið erlendis 16.okt, muna að halda sveiflunni í formi og einnig drykkjunni, mér sýnist sumir ekki vera í neinu drykkjuformi.
Over and out
Vítamínið
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 68464
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju Haukur Downtown Sally
Og takk buddies fyrir símtalið þarna um nóttina, ég vakti víst hálft hótelið
Johnny Ara of Træna (IP-tala skráð) 5.10.2012 kl. 17:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.