Snuddu Haren 2012 - Hergeir Elíasson

 

 

 

 

Fram 1986234

 

 

Leikmaður sem við kynnum númer 2 er enginn annar en H.Elíasson from Kjölur Mosó.  Hergeir eða Heggi eins og hann er oft kallaður er fæddur í Framhverfinu, fljótlega eftir stríð.  Þeir sem muna ekki eftir honum , þá var hann bílstjórinn í lokamóti Haren í Borgarnesi, enda kominn af miklum ökumannsættum, en móðir hans var kjörinn ökumaður ársins frá árunum 1950 til 1970 af Umferðastofnun Ríkisins.  Þessi unglingspiltur frá fljótt uppgötvaður sem mikið fótboltaefni og var fljótt tekinn inn í knattspyrnuakademíu Alberts Guðmundssonar og átti að búa til framtíðarstjörnu.  Kvennafarið og Bakkus sigruðu þann draum að lokum en þess ber að geta að hann stundar enn knattspyrnu á fimmtudagskvöldum í Álftamýrarskóla (eftir myrkur) og fara góðar sögur þar af honum og greinilegt að hann hefur þetta allt saman ennþá, nema hraðann og tæknina. 

Hergeir hefur komið víða við en hann fluttist til Danmerkur og hóf nám þar.  Eftir námið lág leiðin til Píluskins þar sem hann starfaði við að gefa gömlum verkamönnum bjór og gammel á morgnana og í hádeginu.  Eftir árangursríkt starf í Danaveldi fór hann í útrás (langt á undan öðrum) til Samúa, Færeyja, Noregs og fleiri góðra staða.  Hann komst fljótlega í landslið Samúa í bananaklifri og á nokkur landsmetin þar.

Nú eftir langan of farsælan feril hefur hann sest að í Safamýri 11 og gerst bóndi.  Hann leggur áherslu á garðrækt en útilokar ekki að gerast svínabóndi seinna meir.  Hann dvelur nú löngum stundum í garðinum en guð má vita hvað hann er að gera þar.

Inni á milli þegar hann er ekki „arfavitlaus" í garðinum stundar hann golfið.  Hergeir er með þeim sterkari á Snuddu Haren mótaröðinni og endaði í 2.sæti þar í sumar.  Virkilega stabíll kylfingur og fáir með svona mjúka John Daily sveiflu.  Þar verður mikið vænst af honum á Spáni.  Eins og einn góður maður sagði "one to watch".

 

Við náðum tali af pilti þar sem hann var í vinnunni út á golfvelli í Mosó að rölta á milli holla og biðja um vinnustaðaskírteini.  Fréttaritarinn tók þó eftir að hann var sjálfur með golfsett.

 

Fullt nafn : Hergeir Elíasson

Gælunafn :  Heggi, Elíasson Iceland, Hús kötturinn

Hæð : 188cm

Þyngd : 93 kg

Áhugamál : Garðvinna nr1 og Golf

Skóstærð : lítil

Limastærð : lítil

Mottó : Af hverju að gera það í dag, sem maður getur fengið aðra til að gera á morgun.

Uppáhaldsfélagslið í ensku : Gunners

Uppáhaldsfélagslið á Íslandi : Fram

Golfklúbbur : Gkj

Forgjöf : 11,9

Lægsta forgjöf sem þú  hefur haft : 10,0

Besta skor á hring : 75 högg Selsvöllur Flúðum  (2010)

Flestir punktar á hring : 45 p. Hlíðavöllur Mosó (2004)

Vandræðalegasta golfmómentið : Þegar ég húkkaði dræfið í framrúðuna á golfbíl í Portúgal.

Uppáhaldsgolfvöllur : Hlíðavöllur / Barsebæk Svíþjóð og Faleolo Samoa

Tegund járnasett : Ping i3

Tegund driver : Taylor Made R7

Tegund pútter : Ping Ansker

Uppáhaldskylfan í pokanum : 7

Lægsta skor á eina holu : 3 á par 5

Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni : Mótstjórinn

Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni : Formaður afhendingar nefndar

Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni : Ég vinn, ekki spurning

Fararstjórinn óskar Hegga góðs gengis á Spáni

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 68461

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband