9.10.2012 | 11:00
Snuddu Haren leikmannakynning 2012 - Friðrik Nikulásson
Næst kynnum við til leiks Friðrik Nikulásson eða Frikki Nikk, stundum kallaður. Hann er einn af 5 meðlimum Snuddana. Þar gegnir hann veigamiklu hlutverki en hann hefur verið gjaldkeri hjá Snuddunum frá stofnum þess félags. Hann sér um allar safnanir fyrir golfferðirnar og tryggir það að Snuddurnar komist reglulega í golfferðir. Hann er eins og margir úr þessum hóp alinn upp í Framhverfinu, þó hann hafi verið geymdur hinum megin við Kringlumýrarbrautina. Það eru ekki margir sem trúa því en Frikki var mikil skytta í handboltanum á yngri árum og stærstur meðal jafningja. Hins vegar hefur hann lækkað talsvert hin seinni ár. Drengurinn er einnig örvhentur en spilar samt golfið eins og ófatlaður. Frikki er í GR og hefur því ekki verið formlega á Snuddu Haren mótaröðinni en hefur þó mætt þar oft og títt sem gestur og þekkir því hópinn vel. Frikki er gamall Leedsari, en einnig hefur hann haldið með liðum eins og Plymouth, Barnsley, Brighton, Hull, Newcastle, Liverpool, Arsenal, City, Aston Villa svo eitthvað sé upptalið en núverandi ást hans er á Mutd. Það getur þó breyst þegar til Spánar er komið. Þrátt fyrir að vera ekki með lægstu forgjöfina í hópnum er hann gríðarlega högglangur. Hann helsti óvinur er þó hversu villtur hann getur verið. Á góðum degi er hann þó illviðráðanlegur á golfvellinum.
Fréttaritarinn hitti Friðrik á Monte Carlo þar sem hann var að skrá sig í aðdendaklúbb Winnie Jones og Wimbledon og tókum við hann tali.
Fullt nafn: Friðrik Nikulásson
Gælunafn: Nicklaus
Hæð: 182 cm
Þyngd: 85 kg á góðum degi
Áhugamál: Golf meðal annars
Skóstærð: 41
Limastærð: Breytileg
Mottó: Illu er best skotið á frest
Uppáhaldsfélagslið í ensku: Manchester Utd.
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Fram
Golfklúbbur: GR, Golfklúbbur Reykjavíkur
Forgjöf: 20,3
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 18,8
Besta skor á hring: 88 í Grafarholti
Flestir punktar á hring: 43 punktar á Princes Golf Club, Sandwich, UK, 2011
Vandræðalegasta golfmómentið: Húkk í bíl vallarstjórans í 3 holu í Grafarholti, bílnum var lagt í hvarfi en ég náði honum samt.
Uppáhaldsgolfvöllur: Korpan af Íslenskum völlum
Tegund járnasett: Ping G10
Tegund driver: Ping G10, 9 gráður
Tegund pútter: Ping Anser
Uppáhaldskylfan í pokanum: 8
Lægsta skor á eina holu: 2
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni: Herbergisfélaginn
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni: Herbergisfélaginn
Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni: Það verða óvænt úrslit
Fararstjórinn óskar Friðriks góðs gengis á Spáni
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 68461
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.