9.10.2012 | 13:08
Snuddu Haren Spánn 2012 - Sigurður Óli Kolbeinsson



Næstu kynningum við til leiks þennan með fallega fornafnið Sigurður Óli Kolbeinsson. Þetta er kannski sá maður sem menn þekkja síst í hópnum. Hann kemur inn í þetta í gegnum Tomma gullfisk. Það hafa þó einhverjir séð hann þar sem hann hefur spilað með okkur einstaka sinnum í Mosó og sumir kannski muna eftir honum frá Akureyri, þar sem hann spilaði með okkur. Ég fletti í gegnum gömul Séð og Heyrt blöð og fann þar nokkrar upplýsingar um pilt. Einnig sá ég eina grein um hann í blaði sem heitir 10 góð prjónaráð frá 1985. Hann er alinn upp á Akureyri og sótti svo nám í Verslunarskólanum. Sigurður starfar í dag sem dyravörður hjá Vörður, með áherslu á lög og reglur. Á yngri árum var hann stórhuga og með mikið frumkvæði og með stóra drauma. Hann opnaði þvottahús í Kringlunni á síðust öld. Hann er því sérfræðingur í hvernig á að strauja föt og brjóta saman. Hann mun senda ykkur leiðbeiningar hvernig á að pakka og þvo golffötin fyrir ferðina. Einnig mun hann kenna ykkur þegar út er komið hvernig megi ná bru.dblettunum úr lakinu á herberginu ykkar, þegar þið hafið lokið ykkur af. Þarna liggur hans sérgrein. Hann býr yfir þeim gæfukosti að vera grjótharður Liverpool maður og ætti því að vera með nokkuð breytt bak.
Hann er með lægstu forgjöfin í hópnum í golfinu og greinilega hörkukylfingur þar á ferð. Sögur segja að hann búi yfir högglengd og sé mjög höggviss en óvinur hans sé pútterinn, þá sérstaklega stuttu púttin. Ég hugsa að fréttaritarinn geti gefið honum nokkur góð ráð þar. Byrja að nota pútterinn af 70 metrum og stuttu púttin verða sneið af köku.
Fréttaritari náði tali af Sigurði þegar hann var að bera út Morgunblaðið á laugardagsmorgni með hund í bandi.
Fullt nafn Sigurður Óli Kolbeinsson
Gælunafn: Siggi Óli
Hæð: 180 cm
Þyngd: svona 89,7 kg.
Áhugamál: Golf, skotveiðar, fjallgöngur, í
Skóstærð: 43
Limastærð: 16,7 cm en eitthvað minna akkúrat núna.
Mottó: Að hafa gaman af því að vinna og leiðast að tapa
Uppáhaldsfélagslið í ensku: Liverpool
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: hmmm... KA, FH, Valur eða Blikar ef ekkert gengur hjá hinum félögunum.
Golfklúbbur: Keilir
Forgjöf: 9,3
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 9,3
Besta skor á hring: 75 högg (3 yfir) í Mosó 2012. Ótrúlega léttur völlur.
Flestir punktar á hring: 41 að mig minnir
Vandræðalegasta golfmómentið: Þegar ég tapaði fyrir Haffa í sumar, án forgjafar!
Uppáhaldsgolfvöllur: Stadium Course á Bro Hof Slotten í Svíþjóð en hér heima er ég alltaf svolítill sökker fyrir Grafarholtinu
Tegund járnasett: Titleist AP2, Titleist Vokey SM wedgar
Tegund driver: Taylor Made R360 ca. 10 ára gamall og skemmdur eftir Tomma. Hann er ótrúlega mikil eyðileggingarmaskína
Tegund pútter: Odyssey two ball, allt of stuttur, líka Tomma að kenna.
Uppáhaldskylfan í pokanum: 52 gráðu wedginn
Lægsta skor á eina holu: 2
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni: Það verður að vera Tommi, hann er sá eini sem ég þekki almennilega og svo vinn ég hann alltaf.
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni: Þekki nú ekki alla en er Reynir ekki ansi fallegur?
Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni: Ég vinn en Haffi vinnur fatlaða flokkinn, Special Snuddu ....
Fararstjórinn óskar Sigurður góðs gengis á Spáni
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 68461
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.