Snuddu Haren Spánn 2012 - Reynir Stefánsson

DSC02225DSC02148DSC02184

 

 

Næstum kynnum við til leiks Reynir Stefánsson eða Gorgeir Loftsson eins og hann er oft kallaður.  Þessi piltur er meðlimur í Snuddunum og einnig ofvirkur formaður þess félags.  Hann er sá sem hefur haldið félaginu gangandi og verið drifkraftur félagsins.  Reynir er fæddur 1972 í Framhverfinu og er alinn þar upp.  Hann á langan og farsælan handboltaferil að baki sem varamaður á bekknum í yngri flokkum Fram.  Eftir þann feril snéri hann sér að þjálfun og náði góðum árangri þar og þjálfaði meðal annars Þór og KA fyrir norðan en hann flutti þangað og bjó þar í nokkur ár, en er nú kominn í bæinn og eyðir flestum sínum frístundum í svefnherberginu og afrekaði það að eignast 2 börn á innan við einu ári.  Reynir hefur gert það gott í tölvuheiminum en hann byrjaði hjá Nett á Akureyri en starfar nú sem yfirmaður hjá Advania og sér um að koma öllum vírusum í umferð.  Reynir er þekktur fyrir að eiga „gullnar setningar" eins og ég kem bara hvítur heim, þegar hann var rekinn í bolinn á Spáni eftir að hafa sofnað á maganum í nokkrar tíma í sólbaði.  Blöðrurnar á bakinu á honum voru eins og hólarnir í Vatnsdal um kvöldið.  Fræg setning er einnig „hvað svo" þegar við voru komnir niður á strönd á Spáni en hann vissi ekkert hvað átti að gera á strönd.   Nokkrum mínútum seinna kom hann æðandi á fjórhjóli fram hjá öllum sem voru í sólbaði.   Margir kannast við setningar úr golfinu, þegar einhver á slæm högg, þessi er týndur, þessi er out of bounds, þetta er bara víti.

Eins og margir í hópnum er Reynir harður Liverpool maður og hefur farið á ófá leikina með þeim.  Á seinni árum hóf Reynir að stunda golfið og hefur náð góðum árangri þó hann vilji hafa forgjöfina lægri.  Ég hef mikla trú á Reyni á Spáni en hann getur verið illviðráðanlegur í punktasöfnun, því hann fær alltaf punkt á hverri holu, sama hver höggafjöldinn er.

Við hittum pilt þar sem hann var að leika í Dressmann auglýsingu og tókum hann tali.

 

 

 

Fullt nafn Retro  Stefson

Gælunafn Roy/Goggi

Hæð 195 cm ( á tám)

Þyngd Rúmlega póstnúmerið mitt

Áhugamál, langar að læra golf en hef ekki tíma fyrir áhugamál

Skóstærð, ég er eins og L í laginu, nota skóstærð 44, (nei Siggi ég er ekki eins og Þ )

Limastærð, bíddu ætla gá

Mottó Það er til lausn á öllu

Uppáhaldsfélagslið í ensku Liverpool

Uppáhaldsfélagslið á Íslandi Fram

Golfklúbbur: Kjölur Mosó

Forgjöf má fara meira lækkandi en er 23,9

Lægsta forgjöf sem þú  hefur haft  23,7

Besta skor á hring 92 högg, Fram Open 2010

Flestir punktar á hring 43 punktar á Hesperia, Spain 2010

Vandræðalegasta golfmómentið þegar Hilmar henti mér út úr golfbíl þegar bílinn var á fullri ferð

Uppáhaldsgolfvöllur Grafarholt / Jaðar

Tegund járnasett Talor Made Burner Plus

Tegund driver Taylor Made Burner Draw

Tegund pútter  Macgregor putter frá 1993

Uppáhaldskylfan í pokanum 7 járn

Lægsta skor á eina holu: 2 högg á par 3

Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni Íþróttaálfurinn

Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni,  Glanni glæpur, þessi með hökuna

Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni, það fer vel

 

Fararstjórinn óskar Reyni góðs gengis á Spáni

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 68461

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband