SnudduHaren Spánn 2012 - Ólafur Þór Vilhjámsson

óli þór

 

 

Næst kynnum við til leiks hinn útlendinginn en hann mun koma fljúgandi frá Írlandi.  Óli er alinn upp í Framhverfinu en var þó staðsettur eins og Frikki hinum megin við Kringlumýrarbraut á Háteigsveginum og stundaði nám í Æfingadeildinni.  Hann var í handboltanum eins og margir aðrir og var mikil skytta.  Hann gat svifið mjög lengi í loftinu og var maður ekki alltaf viss hvort hann myndi lenda aftur.  Idolið hans í handboltanum hlýtur að hafa verið Atli Hilmarsson.  Einnig þótti Óli mjög liðtækur í billard og sögur segja að hann hafi alltaf rúllað Halla Gunnlaugs upp þar ?  Hann var einnig mikil vígamður og var í skátunum og einhverja hluta vegna ákvað Óla að skýra sína deild Horror.  Þeir voru með aðstöðu í kjallara í Tónabæ þar sem 365 er með sína starfsemi í dag.  Þeir ákváðu að breyta félagsheimilinu í skemmti stað og voru reknir úr húsi þegar það komst upp.  Þeir félagar í Horror náðu einnig að kveikja í kofa sem skátafélagið átti á Hellisheiði sem var að mestu notaður fyrir drykkjuferðir þar sem foreldarnir héldu að þeir væru í skátaferðum þangað til hann brann.  Ólafur er mikil græjumaður en á unglingsárum fór hann út í að þróa og hanna hátalara.  Hann lagði mikla vinnu í hönnun og ætlaði að koma þessum græjum á markað og verða ríkur.  Eitthvað klikkaði samt hönnunin og praktískahliðin, því þeir voru það stórir að þeir pössuðu ekki inn í nein herbergi.

Við rennum svolítið blint í sjóinn með golfhæfileika hans.  Hann hefur ekki verið með okkur á mótaröðinni  en mætti þó í eitt skipti og sást þá vel að hann er með þetta í sér.  Spurning er hvernig sólin og bjórinn fer í hann en sögur segja að hann sé í stífum æfingabúðum á Írlandi og golfið hafi forgang fram yfir vinnuna.  Hann svarar líka síðustu spurningunni í viðtalinu vel og spurning hvort hann búi yfir þessum eiginleikum.  Það er okkur sönn ánægja að kynna hann til leiks enda Liverpool maður.  Hvað er komnir margir Liverpool menn, nennir einhver að telja.

 

Fullt nafn:  Ólafur Þór Vilhjálmsson

Gælunafn:  Óli

Hæð:  183

Þyngd:  75

Áhugamál: Golf, skíði, útivist og góður félagskapur

Skóstærð:  44

Limastærð:  Sama og meðalstærð japanskra karlmanna

Mottó: Það er allt hægt

Uppáhaldsfélagslið í ensku: Liverpool

Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Fram

Golfklúbbur: GR

Forgjöf: 14,2

Lægsta forgjöf sem þú  hefur haft: 13,9

Besta skor á hring: 81,  4 október 2010

Flestir punktar á hring: 46 punktar - 9 september 2008

Vandræðalegasta golfmómentið: Þau eru svo mörg, sýni ykkur eitt eða fleiri á Spáni

Uppáhaldsgolfvöllur: PGA International, Dublin, Írlandi

Tegund járnasett: Ping G15

Tegund driver: Ping G20, 9.5 gráður

Tegund pútter: Spalding, ef ég man rétt

Uppáhaldskylfan í pokanum:  ég geri ekki á milli þeirra (trúi því að þær verði afbrýðissamar ef maður notar eina oftar en aðrar).

Lægsta skor á eina holu: 2

Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni: Sama regla og með kylfurnar, en það gæti breyst eftir Spánarferðina.

Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni: Beauty boy   halli gunn

Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni: Ég tel að sá sem vinnur keppnina í ár verði að vera virkilega hæfileikaríkur þar sem hann þarf að:  þola mikið áfengi, finna ekki fyrri þynnku,  geta sofið lítið, vera ávallt jákvæður, geta tekið þátt í hópkynlífi og geta haldið á kylfu.

 

Fararstjórinn óskar Ólafi góðs gengis á Spáni


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 68461

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband