12.10.2012 | 15:13
Snuddu Haren Spánn 2012 - Tómas Sigurðsson
Þá er komið að því - Tómas Sigurðsson en samt er þetta ekki Tommi vinur hans Jenna enda kann hann ekki eltingarleikinn. Þetta er fyrsti Víkingurinn sem við kynnum til leiks og alltaf gott að hafa one Icelandic Viking". Tommi byrjaði í fasteignarbransanum og er hann sennilega þekktastur fyrir söluna á Goldfinger til Geira. Einnig þótti hann sýna mikil klókindi þegar hann tókst að selja Eden eftir að það brann . Hann er upprennandi stjarna í gítarleik og fengum menn smá smjörþef að því eftir Borgarnes ferðina en menn voru þó almennt sammála að hann ætti ekki að syngja með þegar hann glamrar á kassann. Ekki var hann mikið í boltanum ólíkt flestum í hópnum, en ekki er hægt að neita að hann er góður með golfboltann. Honum finnst gaman að kortleggja Íslands og á orðið mikið safn af Íslandskortum. Námsferillinn hjá honum var að hann byrjaði í verkfræði en endaði í lögfræði þar sem hann starfar nú hjá Iðnaðarbankanum. Áhuginn seinni ár snérist að karate og er hann kominn með ljósgulrauðfölleit svartabelti í þeim fræðum og oftar en ekki eyða þau hjónakornin löngum stundum á kvöldin að slást. Ekki veit ég hver vinnur alltaf en Tommi var ansi krumpaður í Borgarnesi. Hann er því ráðinn sem lífvörður fyrir hópinn úti ef eitthvað bjátar á. Golfhæfileikana þarf ekki að deila um og þetta er einn af þeim sem er one to watch" á Spáni. Þetta er fyrsta ferðin sem Tommi fer með okkur Snuddu Haren genginu.
Við náðum tali af pilti þegar hann var í karatetíma hjá Ágústu Johnsen.
Fullt nafn | Tómas Sigurðsson |
Gælunafn | Tommi |
Hæð | 182 cm |
Þyngd | 102 kg |
Áhugamál | Golf og gítarspil |
Skóstærð | 42 |
Limastærð | "Im big in Japan" |
Mottó | Tíminn líður þótt illa gangi og boltinn fer alltaf í holuna að lokum |
Uppáhaldsfélagslið í ensku | Man U |
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi | Víkingur R |
Golfklúbbur: | Kjölur Mos. |
Forgjöf | 12,6 |
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft | 12,2 |
Besta skor á hring | 80 högg - fjórum sinnum takk og síðast með double bogey á 17. og 18. á Hlíðavelli |
Flestir punktar á hring | 46 punktar á Urriðavelli 25. maí 2003 - 98 högg. Forgjöfin féll úr 34 í 28. Sex heilir niður takk. |
Vandræðalegasta golfmómentið | Að drepa andarunga á golfvelli í Aylesbury á Englandi og nokkrum árum síðar þegar ég endurtók leikinn og drap fullvaxna gæs á æfingasvæðinu á Seltjarnarnesi með vel slegnu og háu höggi með 8 járni. Ég vonaðist til að enginn sæi mig og beið með að labba út á æfingasvæðið þar til hinn sem var að æfa var búinn. Þá gekk ég með sandwedge í annarri hendinni niður æfingasvæðið og fann fuglinn, steindauðan og gekk með hann í annarri og wedginn í hinni. Ég hélt ég hefði komist óséður upp með þetta þegar ég mætti vinnufélaga svona útbúinn. |
Uppáhaldsgolfvöllur | Hlíðavöllur |
Tegund járnasett | Ping i10 |
Tegund driver | Cobra offsett, anti slice |
Tegund pútter | Odyssey 2 ball |
Uppáhaldskylfan í pokanum | Dræverinn |
Lægsta skor á eina holu: | 2 högg - eða eitt högg og 5 cm. |
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni | Hergeir - ekkert smá stabíll. |
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni | Vítamín er fallegur þegar hann mætir í litríku buxunum. |
Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni | Ég er í fanta formi og hlýt að vera sigurstranglegur
|
Fararstjórinn óskar Tomma góðs gengis á Spáni
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 68461
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.