SnudduHaren Spánn 2012 - Jónas Björnsson

DSCN2180IMG 5552 resize

 

 

Þá er komið að því - Jónas Björnsson.  Jónas er sonur pabba síns og bróðir Hermanns og Gústaf Adolf, en margir úr hópnum þekkja alla þá bræður vel úr boltanum.   Jónas hefur ekki verið að spila með okkur á mótaröðinni en mig minnir þó að hann hafi komið einu sinni og leit bara stórvel út á vellinum.  Jónas er eins og  bræður sínur, góðir í öllu sporti og láta þeir oft leikina líta auðvelda út.  Gæti því trúað að hann muni vaxa ásmegin úti og er bara nokkuð líklegur.  Jónas er einn af 9 Frömurum í ferðinni, mikill Framsóknarmaður og sá eini í 12 manna hópnum (ekki þó ólíklegt að Guðni Ágústsson og Halldór Ásgrímss verði úti).  Jónas fór í nám á Bifröst.  Áhugamálin hans eru skotveiði, veiði, var liðtækur á skíðum.  Þess má geta að hluti úr hópnum og meðal annars Jónas fara alltaf í fljótin í ágúst að veiða (og eitthvað smá í tánna).    Hann starfaði einu sinnu sem stýrimaður á trillu sem hann átti í Ólafsfirði, en trillan var frekar ótraust og lagði hann því ekki í að sigla frá bryggjunni, heldur lagði stunda á hornasílisveiðar frá bryggjunni.  Kvótafrumvarpið fór svo illa með hann þegar þeir skattlögðu hornsílin og hætti hann þá rekstri.    Sagan segir að hann muni verða DJ inn í ferðinni og verður eingöngu spilað Ríó Tríó.  Jónas er alltaf léttur og er mikil vænts af honum á Spáni.

Við náðum tal af pilti þegar hann var að æfa í Básum í laumi.

 

Fullt nafn            Jónas Björnsson

Gælunafn           Johnny/Nasi er þá bara aðallega frá Halla

Hæð                      178, komst inní lögguna, lágmarkshæð

Þyngd                   95, var mun léttari í löggunni

Áhugamál           íþróttir og skotveiði       

Skóstærð            43          

Limastærð          15 cm, meðalstaða hækkar væntanlega í hitanum á Spáni.

Mottó                  alltaf að gera betur en næsti maður

Uppáhaldsfélagslið í ensku         Man City/Chelsea/ West Ham

Uppáhaldsfélagslið á Íslandi       Fram/Þór AK

Golfklúbbur:      GA

Forgjöf 16,5

Lægsta forgjöf sem þú  hefur haft          12,5

Besta skor á hring           79

Flestir punktar á hring   52

Vandræðalegasta golfmómentið             Bráðabani um 3ja sætið í Mosó í meistaramóti 2002/3.  Var löngu kominn í hús og farinn að teiga nokkra þegar í ljós kom að ég þyrfti í bráðabana.  Sjankaði upphafshöggið á 1. út fyrir 8. og víti, 3ja höggið endaði á miðri 8. Það eru um 75 áhorfendur til vitnis um þetta J

Uppáhaldsgolfvöllur      Kiðjaberg

Tegund járnasett            ping i3  

Tegund driver   R5 Taylor Made

Tegund pútter Oddyssey 2 ball, nýjasta kylfan í pokanum lagði 28 ára gömlum Wilson

Uppáhaldskylfan í pokanum      Driverinn

Lægsta skor á eina holu:              2

Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni        Geri ekki upp á milli góðra manna,(framsóknarblóð?)

Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni             Þessi er auðveld, undirritaður.  Á fegurðarverðlaun til vitnis um það úr 4. bekk R í Álftamýrarskóla

Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni                               Besti maðurinn vinnur.  Vissi ekki að það væri keppni, hefði þá hagað undirbúningi með öðrum hætti.

 

Fararstjórinn óskar Jónasi góðs gengis á Spáni


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 68461

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband