Snuddu Haren Spánn 2012 - Haraldur Túkall Gunnlaugsson

elvisIMG 1744Halli undirbýr Blassst !

 

Jæja, þá er komið að mótstjóranum sjálfum, Haraldur Þór Gunnlaugsson.  Þetta er aðal driffjöðurinn í golfhópnum, heldur utan um mótin, mótafyrirkomulagið, skipulagið og öllu því sem tilheyrir.  Halli er líka eigandi af síðunni, sem við skrifum inná, en upphaflega ætlaði hann að nota hana til að skrá andlega íhugun sína en eini vinirnir sem skráðu sig á síðuna hjá honum voru Guðjón L. Og Vítamínið.  Nú er síðan orðin aðalvettvangurinn til að halda utan um golfferðir, golfskipulag og allt sem tengist golfinu hjá Snuddu Haren.    Haraldur er enn einn Framarinn í hópnum, og enn ein handboltastjarnan í hópnum.  Hann er mikill spilamaður, margfaldur Íslandsmeistari í lokuðum bridge með fjórum laufum, 8 faldur bikarmeistari í félagsvist án atrennu og nú síðast Íslandsmeistari Tottenham klúbbsins í Olsen Olsen.   Hann þykir mjög lunkinn með allt sem hann setur í hendurnar á sér, sama hvort það sé kylfa, spil, spaðar eða kjuði.   Haraldur hefur farið í ófáar golferðirnar með okkur.  Fyrst með Haren hópnum og svo hefur hann einnig farið í eina Snuddu ferð og það var akkúrat á Oasis Plantio fyrir 2 árum.  Hann hefur séð um tónlistina í þessum ferðum við góðan orðstír fram af kvöldi , en það er þó ekki jafn fjölmennt á dansgólfinu undir morgun, þegar hann byrjar á Sigurrós.........  Eitthvað hefur heyrst að undirbúningurinn gangi illa hjá mótstjóranum þar sem hann eigi við eymsli að stríða.  Grunar þó að hann sé að beita einhver herkænsku hérna.    Ef einhver sér Halla vera að leika MR. BEAN á kvöldin, þá er hann ekki að því, hann verður svona haltur og ráfar um eftir nokkra drykki.   Vinsamlegast styðjið við hann ef þið verðið vitni af þessu.  Halli mun halda utan um allt mótafyrirkomulag úti og hefur hann nú þegar sent dagskrána.  Halli er mikill golfsnillingur og leiddi mótaröðina lengi vel fram að lokamóti í Borgarnesi, þar sem hann reið ekki feitum hesti, enda með hugann við norskar raflagnir. 

 

Ritarinn náði tali af drengnum þegar hann var að skipuleggja Ryder Cup 2014 með Montgomeri

 

 

 

Fullt nafn

Haraldur Þór Gunnlaugsson

Gælunafn

Túkallinn, engisprettufaraldur Haraldur, hipp hopp halli

Hæð

178

Þyng

94

Áhugamál

Bridge, félagsvist J, billi, skvass, hnit, karfa og smá golf

Skóstærð

41-42

Limastærð

NO COMMENT

Mottó

Að vinna Sigga í golfferðinni

Uppáhaldsfélagslið í ensku

Tottenham

Uppáhaldsfélagslið á Íslandi

Fram

Golfklúbbur:

GKJ

Forgjöf

15,5

Lægsta forgjöf sem þú  hefur haft

14,7

Besta skor á hring

83 slög á Hellu

Flestir punktar á hring

47p

Vandræðalegasta golfmómentið

Þegar HB skaut í ungan dreng sem var að pútta 200 metrum fyrir framan okkur.  Öskraði eins og stunginn grís og við HB frusum á staðnum.  Fór samt betur en á horfðist og á endanum var þetta smá marblettur.

Uppáhaldsgolfvöllur

HUSA á Spái og Grafarholt á Íslandi

Tegund járnasett

Cobra

Tegund driver

Taylormade

Tegund pútter

Ping Anser

Uppáhaldskylfan í pokanum

Var alltaf 5 rescue þangað til ég fór að draga allt til vinstri, ætli 60 gráðurnar séu ekki að verða uppáhalds eins og hjá honum Sigga vini mínum.

Lægsta skor á eina holu:

Það er tveir yfir, hef samt tvisvar sett í af löngu færi, einu sinni 165 metrum og síðan í Borgarnesi um daginn af 100 metrum en í bæði skiptin verið með víti og lokaskor fugl og parJ

Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni.

H.Elíasson er alltaf jafn flottur á velli

Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni

Glanni glæpur

Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni

Ég ætla mér að vinna þetta sjálfur að sjálfsögðu.

 

Fararstjórinn óskar mótstjóranum góðs gengis á Spáni


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 68461

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband