15.10.2012 | 08:29
SnudduHaren Spánn 2012 - Sigurður Egill Vítamín
Síðast en alls ekki síst kynnum við fararstjórann til leiks. Sigurður Egill Vítamín/Mæjó" Þorvaldsson er síðasta Snuddan sem kynnt er til leiks. Hann er eins og margir í hópnum uppalinn í Framhverfinu, fyrst á Háaleitisbraut og síðar í Álftamýrinni, þar sem þeir feðgar héldu bestu partýin. Siggi hóf síðar búskap með Röggu sinni í Álftamýrinni og var heimili þeirra alltaf opið fyrir félaganna, og ekki voru veislur þeirra síðri en feðganna.
Siggi er þeim hæfileikum gæddur að hann er góður í öllum íþróttum sem hann kemur nálægt. Margfaldur Íslandsmeistari í handbolta með yngri flokkum Fram, unglingalandsliðsmaður í þeirri grein, spilar enn fótbolta í hæsta gæðaflokki í utandeildinni og í enn meiri gæðum á fimmtudagskvöldum í Álftamýrarskóla. Þá er hann aðaldriffjöðurin í Harlem Globetrotters hópnum sem hittist í körfubolta á þriðjudögum í Árbænum. Ekki lætur Siggi þar við sitja, heldur stundar golfið af miklum krafti, svo miklum að hann er kallaður Torfi í þröngum vinahóp, en grastorfurnar fá sko sannarlega að finna fyrir því þegar Siggi sveiflar og er uppá sitt besta. Siggi er einmitt frægur fyrir virkilega skemmtilegar sveiflur og verður spennandi að sjá hvaða sveiflu hann mætir með til Spánar.
Siggi er mikill félagsmálafrömuður. Hann situr í stjórn handknattleiksdeildar Fram þar sem hann sér um alla heimaleiki félagsins, er í foreldraráði bæði hjá HK og Breiðablik - í handbolta, fótbolta og körfu, dansráði hjá djassballetskóla Báru og verður farastjóri með 50 spræka Hkinga í keppnisferð til Svíþjóðar milli jóla og nýárs. Sigurður er fremstur meðal jafningja í foreldrahóp hjá Breiðablik sem kalla sig Grænu flíspeysurnar" og hannaði m.a annars slagorðið Ekkert hik Breiðablik". Þá má ekki gleyma hans mikilvæga starfi sem ritara Snuddanna, en það starf tekur líklega mestan tíma af öllu fyrrnefndu og heilt ritsafn sem liggur eftir hann á þeim vettvangi. Þá er hann einnig formaður húsfélagsins Lautasmára 8.
Fyrrgreindu sinnir Siggi af miklum áhuga og eljusemi ásamt því að vera aðalfararstjóri í Snuddu-Haren ferðinni til Spánar, aðstoðarmótastjóri Snuddu-Haren mótaraðarinnar og formaður afhendingar- og afmælisnefndar.
Ál er hans ær og kýr, en hann hefur starfað í álverinu í Straumsvík frá 17 ára aldri - er leiðtogi þar, slökkviliðstjóri og formaður skemmtinefndar og starfsmannafélagsins.
Sigurður er líklegur til stórafreka á Spáni og líklegur til að vinna verðlaun fyrir flottustu sveifluna og glæsilegustu dressin. Það er ekki hjá því komist að velta því fyrir sér Er hans tími kominn" . Bjóðum fararstjórann og dugnaðarforkinn Sigga sæta velkominn til leiks:
Fullt nafn: Sigurður Egill Þorvaldsson
Gælunafn: Vítamínið, Siggi Stardus, Skammturinn, Tommi
Hæð: 187 cm og fer stækkandi
Þyngd: 2 stafa tala
Áhugamál: Íþróttir og almennt skemmtanahald
Skóstærð: 43
Limastærð: Nokkur X
Mottó: To loose is not an option
Uppáhaldsfélagslið í ensku: YNWA
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Fram
Golfklúbbur: Kjölur Mosó
Forgjöf: 16,4
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 14,0
Besta skor á hring: 82 högg á Flúðum 2009
Flestir punktar á hring: 43 punktar GKG 2012 (held ég hafi einhvern tímann á síðustu öld fengið í kringum 50 punkta, vissi ekki þá hvað punktar væru, fór úr 36 í forgjöf í 27).
Vandræðalegasta golfmómentið: Man aðallega eftir frá öðrum eins og athafnir að henda sér út úr bíl og riverballs. Annars lítur maður alltaf vandræðalega út þegar maður spilar með þessum snillingum á Snuddu Haren mótaröðinni. Man þó eftir að þegar ég var að spila með Óla Már Sigurðss á 185 metra par 3 að ég tók driver en hann 7 járn, frekar vandræðalegt og hann var bæði lengri og nær holu.
Uppáhaldsgolfvöllur: Arcos Garden Spáni
Tegund járnasett: Callaway X-18
Tegund driver: King Cobra 9.0 ° stiff
Tegund pútter: Oddesey 2 ball
Uppáhaldskylfan í pokanum: Pútterinn
Lægsta skor á eina holu: 2 högg (örn, par 4 á Flúðum)
Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni: Jón Ari, óborganlegur, en ég hugsa að ég velji af þeim sem er að fara núna, FORNLEIFAFRÆÐINGINN
Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni: Gamli töffari, ber af, annars finnst mér Goggi og Hvíti hákarlinn alltaf flottir, ekki bara í golfinu
Hvernig fer Snuddu Haren 2012 á Spáni: Hergeir er alltaf líklegur, hef samt trú á Himma, óþolandi stabíll.
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 68461
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.