15.10.2012 | 09:48
Sjö daga sæla
Kæru félagar
Ég var djúpt snortinn þegar fararstjórinn Sigurður tilkynnti mér á vormánuðum að hann hefði ákveðið að skipuleggja golfferð í kringum þrítugsafmælið mitt í október, sjö daga sælu" eins og hann orðaði það. Ég var ekki síður hissa þegar hann tilkynnti að hann hefði valið einvalalið til þátttöku og þurft að synja nokkrum öflugum. Hann fullvissaði mig um að ágangurinn hefði verið slíkur að hann hefði getað fyllt aðra vél en það verður að bíða betri tíma og þess vegna voru nokkrir settir út úr hóp. Menn eins og Beggi Fló og Ingvar Stef fengu ekki náð fyrir augum einvaldsins og ekki var talið annað en skynsamlegt að skilja samviskuna hans Hauks Braga eftir heima. Þar sem Rollsinn komst ekki í gegnum skoðun þá var hann kyrrsettur á staðnum. Þrátt fyrir að þessir fyrrnefndu þungavigtarmenn sitji heima, þá er ég ævinlega þakklátur farastjóranum og formanni afmælisnefndar fyrir allt umstangið.
Þó að um sjö daga veislu sé að ræða, þá verður aðalveislan þann 18. okt. Formaður afmælisnefndar er búinn að skipuleggja heljarinnar dagskrá í tilefni dagsins þar sem golf kemur eitthvað við sögu. Eftir golfið verður vitanlega boðið til veislu á hótelinu þar sem menn gæða sér að kræsingum og geta raðað í sig að vild, fengið eins oft á diskinn og menn treysta sér í. Þá verður einnig í boði að sulla eitthvað frameftir í innlendum drykkjum. Það er því ljóst að formaður afmælisnefndar hefur engu til sparað að gera daginn sem eftirminnilegastan.
Enn og aftur verð ég að hrósa Vítamíninu - undirbúningur afmælisferðarinnar hefur verið óaðfinnanlegu og ég er hreint orðlaus yfir hvað stefnir í flotta ferð. Eina sem ég get sagt er að gera orð eðalFramara að mínum allt of mikið, allt of mikið Siggi minn"
Krakkarassgatið
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 68461
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.