21.5.2013 | 21:54
Mót nr. 3.
Það voru 8 snillingar mættir til leiks á Hlíðavelli í gærkveldi. Virkilega skemmtilegt að sjá Binna Stefáns mættan, ekki með nýjan títaníum-driver eins og sumir heldur með nýtt títaníum-hné. Rolsinn skilin eftir í skottinu og bara arkað af stað. Binni sagðist bara þurfa smá WD40 skot við og við en ef mig minnir rétt þá þurfti Rolsinn það líka. Haffi var mættur og virkar á tíðindamanninn sem "one to watch" sumar. Það verður töluverð lækkun í forgjöf í sumar ef hann ástundar sportið og mætir í mótin. Ekki amalegt að fá einn City mann í viðbót á mótaröðina enda var City-mönnunum strax raðað saman í lið og léku eins og City gerir þ.e. óaðfinnanlegan fallegan leik. Raggi Hilmars "the new guy one tour" var mættur, bláedrú og flottur. Náði samt ekki sínu besta í gærkveldi en ef ég þekki minn mann rétt þá er "stund hefndarinnar" þegar runninn upp. Ingvar St. skoraði fínt í gær þrátt fyrir að hafa neglt kúlunni í stein og í hnéið á sér. Þegar tíðindamaðurinn skoðaði meiðslin eftir hringinn gat hann ekki betur séð en kúlan hafi farið inn í hnéið. "Ingvar drífðu þig beint á bráðavaktina og láttu fjarlægja kúluna, þetta hefði verið lagi ef hún hefði farið í gegn" (þetta var kvót úr amerískir bíómynd). Sigurður hafði greinilega tekið öll vítamínin sín og lét ekki veður eða annað trufla sig við að ná sínum 36 pkt. Að sögn þeirra sem til sáu þá var pútterinn sjóðheitur þegar komið var á 100 mtr. Glæsilegt. Heggi reið ekki feitum hesti frá þessu móti, sennilega er hann að ná sér niður eftir hlaupin í vetur og ná göngutaktinum en það mátti stundum sjá hann stökkva á stað með pokann og hlaupa eitthvað út í buskann, það lagaðist þó þegar á leið hringinn. En hér koma loksins úrslitin og staðan:
06. | maí | 2013 | 13. | maí | 2013 | 20. | maí | 2013 | ||
Haren 2013 | pkt | stig | extra | pkt | stig | extra | pkt | stig | extra | Staðan. 6 bestu + extra. |
Jón Ari | 23 | 1 | 1 | |||||||
Halli | 25 | 3 | 1 | 4 | ||||||
Haukur | 30 | 5 | 3 | 28 | 4 | 3 | 32 | 6 | 1 | 22 |
Hergeir | 25 | 1 | 1 | |||||||
Tommi | 24 | 2 | 24 | 3 | 2 | 30 | 5 | 12 | ||
Reynir | 19 | 1 | 1 | |||||||
Ingvar | 34 | 7 | 2 | 9 | ||||||
Beggi | ||||||||||
Siggi | 20 | 2 | 1 | 36 | 8 | 3 | 14 | |||
Haffi | 29 | 4 | 4 | |||||||
Raggi K. | ||||||||||
Binni | 25 | 2 | 2 | |||||||
Raggi H. | 28 | 3 | 3 | |||||||
Hanna | 29 | 4 | 2 | 2 |
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 68458
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ætlar tíðindarmaðurinn og meistarinn frá því í fyrra að klára mótið strax????
Haraldur Þór, 22.5.2013 kl. 06:48
Hann virðist allavegana ekki þjást af ritstíflu svona í upphafi móts. Það kemst enginn mynd á þetta fyrr en 6 mót eru búin. Að vísu höfðu menn á orði eftir síðasta mót að þeir vildu láta fleiri mót gilda og jafnvel e.k. 80% reglu. Mótastjórinn verður að svara fyrir það.
Tíðindamaðurinn (IP-tala skráð) 24.5.2013 kl. 13:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.