20.6.2013 | 09:04
Mót nr. 6
Það urðu töluverð afföll í mót nr. 6 á Hlíðavelli. Allskonar fyrirsláttur frá því að vera á fundi yfir í að hafa borðað of mikið af bjúgum og fengið illt í magann. Það voru þó 7 hetjur sem mættu og spiluðu misgott golf. Raggi Kristjáns vann sinn fyrsta sigur á mótaröðinn með því að leika seinni 9 betur en almannatengill tíðandamannsins. Sigurður týndi sveiflunni sinni í Ártúnsbrekkunni en sem betur fer fann löggan hana og verður hún boðin upp á árlegu reiðhjóla-uppboði. Ljóst að TT gæti orðið sterkur ef hann legði meiri ástundun í leikinn, orðið svona eins og í körfunni, alveg óstöðvandi þegar hann hrekkur í gírinn. Þegar í hús var komið mátti sjá H.Elíasson á æfingu með 10 ára og yngra liðinu í Gkj (tekur greinilega alvarlega stöðu sína á heimslistanum og fer algjörlega í "back to basics)
. Hér koma úrslitin og ef þau eru óskýr þá má smella á myndina.
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 68458
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.