6.sept...Lokamót HOS-mótaraðarinnar 2014. Hringir 19 og 20.

Stórglæsilegur lokamótsdagur var haldinn s.l. laugardag.  Mikil spenna ríkti þar sem ansi margir voru tilkallaðir en í lok dags var aðeins einn útvalinn.  Leiknir voru 2 hringir á tveimur völlum.  Um morguninn var leikin betri bolti á heimavelli mótaraðarinnar í Mosó en síðan var haldið í Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar þar sem leikið var Texas Scramble.  Það er ekki hægt að segja annað en menn hafi sett í 5.gír um morguninn. Þegar inn var komið höfðu 4 leikmenn lækkað forgjöf sína verulega...sem er alveg magnað Smile.  

Úrslit morgunsins:

NafnPkt. 
Halli41 
Haffi 40 
Frikki40 
Tommi39 
Hergeir 34 
Haukur 32 
Binni31 
Siggi30 
Ingó28 
Reynir26 
Jón Ari25 
Tryggvi17 

Þegar þarna var komið við sögu hafði planið algjörlega gengið upp, allir á góðum tíma og einn leikmaður búinn að reykspóla í burtu Grin.  Forystusauður mótaraðarinnar, Hergeir El. náði að hanga í snillingunum og fór með þægilega forystu í Kópavoginn.   Í Texas Scramble getur verið gott að eiga traustan vin (hlusta má á það lag hér á síðunni í flutningi bestu söngvara landsins Smile).  Og það var nákvæmlega það sem H.Elíasson fékk að reyna.  Reynir Stefáns spilaði eins og snillingur og sigldi sigrinum í höfn með honum.  Það voru hinsvegar tvíburarnir Tommi og Jenni sem stálu senunni í Leirdalnum þar sem þeir sungu hástöfum þemalagið úr Indiana Jones svo ómaði um allan dalinn...nærbuxum frá konum á svölum í Salahverfi hreinlega rigndi yfir þá félagaSmile.

Úrslitin í Texas:

Nöfn Nettó-högg 
Hergeir - Reynir69 
Haffi - Ingó70 
Halli - Frikki70
Tommi - Raggi H 71 
Haukur - Kristófer72 
Siggi - Jón Ari75

Þar með var lokastaðan ráðin.  Hergeir Elíasson er HOS-meistari 2014 !  Það er alveg magnað í ljósi þess Hergeir hefur ekki verið að spila mikið í sumar en hefur sýnt gríðarlegt stabílitet þegar mikið var undir.  Hann var t.d. tvöfaldur RISA-meistari sem vóg þungt í lokaniðurstöðunni. 

Lokastaða.

6.sept lokastada HOS

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband