15.9.2014 | 12:03
Kynning á leikmönnum í HOS Florida 2014
Glæsilegu kylfingar
Þá hefst hin formlega leikmannakynning fyrir golfferðirnar. Nú skal haldið til Florida í krókódíla land og upplifa Lacoste menninguna. 8 galvaskir HOS menn muna prýða þessa ferð og standa vaktina á erlendri grundu, sem er jú mjög mikilvægt uppá kynningu á land og þjóð.
Fyrst munum við kynna til leiks nýliða á HOS mótaröðinni, Axel nokkurn. Þetta er fyrsta sumarið hans með okkur. Honum er líst á mótaröðinni sem sterkbyggðum kylfingi með mikla framtíðarmöguleika að ná langt í golfinu. Forgjöfin er þó enn í hærri kantinum en enda nýbyrjaður í golfinu. Gárungarnir segja þó að hann sé góður að hitta í "holuna".
Fararstjórinn hitti Axel yfir kaffibolla heima hjá honum þar sem hann var á kafi í bleyjuskiptum.
Fullt nafn Axel Eyjólfsson
Gælunafn Alli
Hæð 178
Þyngd 99,999
Áhugamál Kvenfólk
Skóstærð 42
Limastærð Fer eftir ástandi og umhverfi
Mottó Gera hlutina almennilega eða sleppa því.
Uppáhaldsfélagslið í ensku Man.Utd.
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi Breiðablik
Golfklúbbur: GKJ
Forgjöf 36+
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft 36
Besta skor á hring
Flestir punktar á hring 25
Vandræðalegasta golfmómentið Þegar bolti lenti á þaki og svo á veröndina hjá fólki sem var í sólbaði, og skopaði helvítis boltinn á milli þeirra! Gerðist á Spáni.
Uppáhaldsgolfvöllur Kiðjabergsvöllur
Tegund járnasett Taylor Made
Tegund driver Ping
Tegund pútter Tayler Made
Uppáhaldskylfan í pokanum Hálvitinn
Lægsta skor á eina holu: 3
Hvernig gekk á HOS mótaröðinni 2014 Uhh.. hræðilega
Uppáhaldsleikmaður á HOS mótaröðinni Tiger Woods, var hann ekki þarna líka?
Tommi eða Jenni Jenni
Væntingar fyrir Florida 2014 Miklar
Veistu hver er Tíðindamaður HOS mótaraðarinnar Nei
Ertu með langan innkaupalista frá frúnni fyrir Florida ferðina Ekki ennþá.
Þínar hugmyndir hvernig mótið muni þróast erlendis Að ég verði betri og betri og betri..
Finnst þér að það eigi að leggja rassaboltarefsinguna niður Já takk.
Hrýtur þú Auðvitað
Hefur þú verið slæmur í baki Hver hefur það ekki?
Ef já, veistu ástæðuna fyrir því Ójafnvægi að framan.
Ertu hræddur við krókódíla Ekki mikið
Mun Hemmi Haukss fara út fyrir rammann í ferðinni Vonandi
Það verður spennandi að fylgjast með nýliðanum og óskar fararstjórnin honum góðs gengis á Florida.
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.