15.9.2014 | 13:26
Leikmaður númer 2 á HOS Florida 2014
Næst kynnum við til leiks, annan nýliða á HOS mótaröðinni. Þetta er Ólafur frændi nokkur Arnarsson. Óli er mun þekktari fyrir ódrepandi áhuga á veiði en þar sem hann hefur ekki veitt fisk í 5 ár, ákvað hann að snúa sér að golfinu. Konan var óorðin frekar pirruð á að karlinn kæmi alltaf með öngulinn í rassinum og engin fiskur til að elda fyrir krakkana. Það varð svo úr að hann hætti í veiðinni en fékk að passa drukkna veiðimenn í sumar og gefa þeim góð ráð hvar væri ómögulegt að ná í fisk.
Sögur segja að frændi sé mikill dellukarl og þegar hann tekur sér eitthvað fyrir hendur er það gert almennilega. Hann er kominn með allt það nýjasta í græjum sem golfheimurinn býður upp á ásamt vikulegri ráðgjöf hjá sálfræðingi.
Óstaðfestar fréttir herma einnig að hann verði með kylfusvein á Florida.
Við náðum tali af kauða þegar hann var að smíða innréttingar í nýja húsið sitt, en þegar ég hitti hann var hann að endurmæla eldhúsinnréttinguna þar sem uppþvottavélin passaði engan vegin í innréttinguna.
Fullt nafn: Ólafur I Arnarson
Gælunafn: King Olaf
Hæð: 1800mm
Þyngd: 86 KG
Áhugamál: Veiði, Golf, Handb, Fótbolti
Skóstærð: 43
Limastærð: Fer eftir ástandi
Mottó: Þú færð kraft úr kókómjólk
Uppáhaldsfélagslið í ensku: LFC
Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: FRAM
Golfklúbbur:GKG/GKJ
Forgjöf:33,8
Lægsta forgjöf sem þú hefur haft:33,3
Besta skor á hring: 114
Flestir punktar á hring: 36
Vandræðalegasta golfmómentið: Tók happy Gilmore og skaut boltanum í stein og fékk hann síðan til baka í mig.
Uppáhaldsgolfvöllur: Leirdalur
Tegund járnasett: Taylor Made
Tegund driver: Ping G25
Tegund pútter: Taylor Made
Uppáhaldskylfan í pokanum: Ping G25
Lægsta skor á eina holu: Fugl
Hvernig gekk á HOS mótaröðinni 2014: Afleitlega
Uppáhaldsleikmaður á HOS mótaröðinni:
Tommi eða Jenni: Jenni
Væntingar fyrir Florida 2014: Miklar
Veistu hver er Tíðindamaður HOS mótaraðarinnar:Nei
Ertu með langan innkaupalista frá frúnni fyrir Florida ferðina: Nei
Þínar hugmyndir hvernig mótið muni þróast erlendis: Ég mun vinna þetta
Finnst þér að það eigi að leggja rassaboltarefsinguna niður. Nei
Hrýtur þú: Já
Hefur þú verið slæmur í baki: Já
Ef já, veistu ástæðuna fyrir því: Nei
Ertu hræddur við krókódíla: Nei
Mun Hemmi Haukss fara út fyrir rammann í ferðinni: Klárlega
Fararstjórinn óskar Ólafi góðs gengis á Florida
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 48
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.