Spáð í spilin fyrir Florida 2014.

Við fengum fyrrverandi meistara á Snuddu Haren mótaröðinni til að gefa álit sitt á ferðinni ásamt því að við fáum að kynnasta meistaranum aðeins betur.  Honum verður sárt saknað úr ferðinni og sennilega verður enginn kynning á leikmönnum á teig á fyrsta degi.

 

Fullt nafn: Haukur Bragason

Gælunafn:  Stundum kallaður tíðindamaðurinn...veit ekki afhverju.

Hæð: u.þ.b 180 cm (held að ég sé farinn að ganga eitthvað saman :-)

Þyngd: u.þ.b. 80 kg.

Áhugamál:  Já.

Skóstærð: 42

Limastærð: Nær a.m.k. meðaltali EU.

Mottó:  Þetta kemur bara á næstu holu :-)

Uppáhaldsfélagslið í ensku: Manchester City

Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Fram

Golfklúbbur: GKJ

Forgjöf: 12,4

Lægsta forgjöf sem þú  hefur haft: 8,5 í einhverju vallarmatsrugli hér um árið (tók mig 2 ár að leiðrétta það á golfvellinum :-)

Besta skor á hring:  77 í Mosó.

Flestir punktar á hring:  44 pkt. í Mosó.

Vandræðalegasta golfmómentið: Var að vinna í slæsmálum á æfingasvæðinu í Mosó um árið...breytti uppsetningunni og tók svakalegt húkk til vinstri og braut rúðu í húsi í Svöluhöfða :-). Þegar ég knúði dyra hafði húsbóndinn legið steinsofandi sófanum og hélt að krakkaandskotarnir hefðu verið eitthvað djöflast :-)

Uppáhaldsgolfvöllur:   Einhvern veginn fæ ég ekki leið á Mosanum...alltaf jafnmikill áskorun að spila hann.  Síðan er hinn frábæri HAREN-völlur í Þýskalandi eftirminnilegur.

Tegund járnasett:  Callaway

Tegund driver:  Núna, 12 ára gamall Ping G2 (helvíti solid kylfa).

Tegund pútter:  Odissey sem ég hef átt í ástar- og hatursambandi í s.l. 8 ár.

Uppáhaldskylfan í pokanum:  Pútterinn þegar hann og ég erum í stuði.

Lægsta skor á eina holu:  Örsjaldan fengið 0 pkt. á eina holu :-)

Uppáhaldsleikmaður á Snuddu Haren mótaröðinni:  Maður gerir ekki upp á milli barnanna sinna!

Fallegastur á Snuddu Haren mótaröðinni:  Sigurður getur verið stundum smekklegur en stundum er hann alveg ferlegur...segi bara Halli þegar hann er grænu terlín-buxunum sem þorna á 10 mín. eftir að hafa rennblotnað...það er eitthvað svo fallegt við það :-)

Hvernig fer HOS Florida 2014:  Þarna mun eðlisfræði flata skipta miklu máli (þá er ég að meina yfirborðsflata kroppa en ekki golf-flata).   Ég held að Halli og Reynir verði að berjast við uppþornun sökum yfirborðsflatarmáls.   Samkvæmt eðlisfræðinni ættu stóru mennirnir Raggi, Heggi og Hemmi að hafa hagstæðasta yfirborðsflatarmálið o.þ.l. að höndla best innbyrta drykki og útgufunina sem síðan leiðir til skynsamlegrar hugsunar sem aftur hjálpar til við spila viðundnandi golf.  Restin af hópnum er síðan algjörlega óráðin stærð.

Hver telur þú að muni drepast fyrstur á Florida:  Ef Halli þyrfti ekki að keyra fyrsta daginn myndi hann örugglega detta út úr bílnum á áfangastað…eitthvað segir mér að Siggi eigi eftir að dotta í sófanum.

Hverjar eru þínar væntingar til Floridafarana:  Að menn komir nú útiteknir tilbaka.

Mun tíðindamaðurinn vera með fréttir frá Íslandi: Hver er það ??

Þínar hugmyndir hvernig mótið muni þróast erlendis:  Þarna komum við aftur að vökvafræðinni.  Sá sem getur haldið sér seigfljótandi alla daga án þess að verða timbraður og getur komið morgunmat í sig á hverjum degi...hann mun sigra :-)

Finnst þér að það eigi að leggja rassaboltarefsinguna niður:  Bara alls ekki.  Þar sem þið eru staddir í landi skrýtna fótboltans legg ég til að keyptur verður amerískur knöttur sem notaður verði til þess arna…Þegar líður tekur á ferðina gæti jafnvel, einhverjum, hugsanlega, þótt nokkuð gott að fá hann Í SIG. :-)

Ertu sáttur við þína spilamennsku í sumar:  Ekki alveg… forgjöfin hefur farið upp sem segir allt.

Ertu stundvís:  Alltaf mættur 20-30 sek. fyrir tee-off.

Hverjir verða rassaðir fyrst á Florida: Stóru mennirnir munu rassa litlu mennina...og kyssa svo á bágtið :-)

Veist þú hver Tíðandamaðurinn á HOS er:  Ekki grænan….kannski Hanna?

Hver vinnur Florida 2014:  Tippa á Axel eða Óla.

Verða menn meira í golfi eða mollinu á Florida:  Er þetta ekki golfferð ????

Ert þú hræddur við krókódíla:  Jebb...heilræði til ykkar; "ball in waterhazard stays in a waterhazard"

Fallegust fyrir utan konuna:  Það toppar ekkert Hönnu.

Munt þú mæta sterkur til leiks í næstu golfferð:  Alltaf sterkur.

Einhver lokaorð til Florida farana:  “Sláið í gegn og ykkur mun farnast vel”   Góða ferð!!! 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband