Day 5 - allir komnir í enskuna

Elsku Íslendingar, Snuddur, Haren , SnudduHaren og aðrir.  Þá er dagur 5 að baki í HOS Florida 2014.  Engin færsla var sett inn í gær og einungis staðan send.  Gaman að sjá komment frá fornleifafræðingnum og Tíðindamanninum.  Í gær var spilaður völlur sem heitir Juliette Falls, en sá völlur var valinn 10 besti völlur í USA árið 2012.  Heimsókn HOS mun sennilega koma þessum velli í fyrsta sætið í ár, enda var barist um að fá okkur á vellina hér í USA.  Flestir spiluðu gott golf í gær þar, Óli henti í 41 punkt og voru menn sem enduðu í 33 punktum rassaðir.  Tókum svo 9 holu Texas þar sem 55 ára og eldri unnu kjúklingana.  Gærkvelið endað á ABBABEE og var okkur heilsað "takk fyrir síðast".  Halli and the gang mætt.  Menn byrjuðu á G og T nema Vítamínið og Túkallið hentum í einn 007 kokteil , með 8 kílóum af salt á barminum, dassa af hinum ógleymanlega TEkíla og smá lime.  Ógleymanlegur drykkur en Halli elskaði þetta enda bragðskynið farið á þessum aldri.  Enn og aftur var happyhour, menn pöntuðu tvöfaldan skammt, alveg óvart.  því miður var karokí ekki í boði þetta kveld en engu að síður hélt HOS hópurinn uppi stuðinu.  

 

Ræs and shæn var eldsnemma í morgun þar sem hópurinn átti rás kl 8.   Þetta byrjaði vel í morgun þar sem annar bíllinn var að verða bensínlaus og við á síðasta snúning í að ná rástíma.  Þá voru góð ráð dýr og vildi svo vel til að einn í hópnum var svo mikið mál og "tankaði hann".  Ferðinni var heitið á CItrus Spring sem var valinn annar besti völlur í heiminum, árið 1887.  Hann stóð sannarlega undir nafni.  Svona vel hirtur og flottur völlur hefur maður aldrei séð áður.  Green keeperinn mesti snilingur allra tíma, gráhærður með sítt að aftan í tagl.  Vel gert.  Maður fylltist spenningi og öryggistilfinningu.  Hvað um það menn hófu leik.  Brautirnar voru aðeins í loðnari kantinum en "NORÐAN menn US segja að það sé rosa gott", sagði gráni.  Hér voru hlutirnir að gerast, eftir 18 holur, skelltu 3 í lækkun, Óli formi frændi hent í 38 kvikindi eins og Hvíti hákarlinn.  Þetta var ekki neitt, Haraldur túkall setti upp sýningu og 43 punktum, þannig að hann lækkaði forgjöfin vel í daga og er komin því með 45,1.  Heggi sagði samt eftir hringinn "hann var ekkert sérstakur, þetta var engin flugeldasýning", einmitt.

Nokkrir vildu svo halda áfram en aðrir ekki.  Heggi, Siggi, Reynir, Halli og Hemmi tóku 18 holu Texas á Júlíu Falli.  Hinir fóru í Wallmart, en þar var 2 fyrir 1 af golfboltum og ekki veitti af. 

Endað var í ala Óla Tudda Benn upp í húsi.   Kokkurinn búinn að standa sig eins og hetja.

Nú er í gangi óskalagakeppni, hver fékk að velja eitt lag.  Hemmi valdi Framlagið, Raggi valdi Gullvagninn, Heggi valdi "The Gardener" með Pink Floyd, Halli valdi "kaffibrúsakarlana" og Óli frændi valdi Britney Spears.  Aðrir voru út á túní valalagi.

Þangað til seinna................við erum farnir að sofa or not..............

Kveðja til hinna HOS , Seve , Tíðindamannsins og Begga golfara.  Góða nótt Jenni minn

kveðja

HOS Flordia 2014 

Látum þetta duga í bil 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú eru hlutirnir alldeilis farnir að gerast í Ameríku. Halli er núna orðinn minn maður....go Halli !!!! Spurning hvort Watson hringi í hann og shanghæi hann yfir á Gleneagles... þar eru USA menn að slást við sjank. Halli gæti kennt þeim hvernig á að snúa þvi til betri vegar eða eins og bókin hans gæti heitið "From shank to blank (on Applebee´s), how to shoot low 80´s in USA" Gangi ykkur vel drengir, HOS-mótaröðin er greinilega að skila sínu....hjá flestum :-)

Tíðindamaðurinn (IP-tala skráð) 25.9.2014 kl. 08:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband