27.9.2014 | 00:05
Day 7 HOS Florida 2014
Glæsilegu lesendur og aðdáendur Hallahipp.
Viljum byrja á því að þakka öll innlitin og lesninguna á síðunni. Við erum komnir á næst síðasta dag ferðarinnar, shit hvað þetta líður hratt. Öll skrif lágu niðri í gær á síðunni þar sem talvan var í viðgerð í svokölluðu "clean the keyboard" eftir að einn gleymdi að sleppa tölvunni áður en hann kastaði sér í laugina.
Annars var dagurinn í gær nokkuð góður. Farið var á Skyview golf course sem er snilldarvöllur í um 10 mínútna fjarlægð frá okkur. Það var vaknað snemma, áttum rástíma klukkan 8. Ekki voru allir mættir á teig á réttum tíma en Halli gleymdi tíum heima og þurfti að snúa við. Þrír aðrir mættu of seint en þeir voru að koma beint úr verslunarferð í Tampa en þar er ein stærsta undirfatabúð í USA. Annars gekk golfið vel þegar allir voru mættir til leiks. Stöðuna má sjá í færslunni á neðan. Menn voru á rosalegu skori og menn á gráa svæðinu allir kandídadar í rössun. Óli frændi var alveg að meika það og setti í 46 punkta. Aðrir voru í ruglinu þó svo að nokkrir lækkuðu í forgjöf, en það þykir nú ekki merkilegt í þessum hópi. Sumir náðu þó í nokkra puntka í sundlauginni en þar voru gefin 10 punktar fyrir hverja tá sem dýft var í laugina. Nú hófst mikil reikistefna eftir hringinn þar sem 6 manns úr hópnum vildum allir fara í meiri búðir. Eftir mikla samninga tókst að henda saman í 9 holu Texas, þar sem liðin spiluðu bæði undir pari. SVO VAR FARIÐ Í BÚÐIR AFTUR. Gærkveldið var svo í rólegri í kantinum en hent var í eitt pizzupartý. Gamla liðið sofnaði allt eftir 10 fréttirnar en kjúklingarnir voru að standa sig margir hverjir. Siggi og Hemmi enduðu á trúnó til klukkan 6.
Þá að deginum í dag. Heimavöllurinn var spilaður í dag. Menn fengu að lúlla aðeins lengur en vanalega þar sem planið var bara 18 holur. Menn mættu á teig rétt fyrir klukkan 11. Mikil flugeldasýning var í klæðnaði enda búið að detta í nokkrar búðirnar. Frændi var í svo skærum litum að hinir spiluðu allir með sólgleraugu þrátt fyrir að það væri skýjað. Annars gekk golfið bara vel, 2 spiluðu til lækkunar , ÁSINN OG FRÆNDINN. En þess ber að gera að Óli frændi spilaði eins og fífl í dag þrátt fyrir lækkun. Aðrir voru á gráa svæðinu en golfkennarinn okkar Ragnar Lárus var að útskrifa nemendur í dag og slóg því bara með til gamans og gaf ráðleggingar og tips. Svo var kíkt á 19 holuna á eftir en nýji barinn var að opna þar í gær. Í því tilefni var boðið upp á svarta bolta. Þar duttu menn í salatið og baunirnar en skammtarnir af mat þarna voru hálf aumingjallegir. Því var farið beint á Mac Donalds á eftir.
Það er rétt að minnast á það að PGA golfskóla Ragnar Lárusar lauk í dag með útskrift á 3 nemendum. Tveir náðu en einn féll. Námskeiðið er skipt upp í nokkra þætti. Þrátt fyrir að menn náðu prófinu féllu menn í nokkrum þáttum. Óli féll í Anger Management, Axel féll í bóklegu um "tímastjórnun" og Hemmi féll í vélritun. Eins og þið sjáið þá var námskeið mjög fjölbreytt og krefjandi. Næsta námskeið hjá Ragnari er á Jullliete Falls í október en þar verður boðið upp á nýjan þátt en það heitir sjálfstjórnun á barnum og bannað að stara". Þess ber að geta að Ragnar lærður PGA kennari frá Grænlandi með lægstu forgjöf á golfvöllum sem eru þaktir ísi.
Annar þakkar hópurinn fyrir sig, veit ekki hvort það koma fleir færslur þar sem það er ferðadagur á morgun en stefnt er á að spila 18 holur á morgun.
HOS Florida þakkar fyrir sig..................over and out. Kveðja frá strákunum
ps . sérstök kveðja á Tíðindamanninn og Bobby Fischer
ps. ÁSINN er bestur
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.