12.5.2015 | 10:53
11. mai...HOS nr. 2.
"Hann hefur tekið alltof krappa beygju, á of lítilli ferð og flogið of lágt" sagði flugmaðurinn Vilbergur Flóvent horfandi útá Leirvoginn þar sem flak flugvélar lá. Svo flaug Begginn af stað og skoraði 20 pkt á fyrri hring. En eins og með flugmanninn, sem var á kafi í drullu í Leirvognum, missti kjötiðnaðarmaðurinn Beggi einbeitinguna, fór að hugsa um kjötfars og bjúgu á seinni níu og bætti ekki nema 11 við. Engu að síður frábær endurkoma eftir hafa þurft að hætta í miðjum hring á fyrsta mótinu.
Annars voru 13 mættir í þetta annað mót sem hófst í blíðskaparveðri og sól. Fljótlega tók þó að blása og kólna verulega. Það hafði enginn áhrif á snillingana; Sigurð Egil, Hegga og Óla formann sem kláruðu sig inná gráa svæðið. HOS-meistari 2014 ætlar greinilega að halda fast í Jakkann og hefur komið sér þægilega fyrir, á milli stelpnanna...og leiðist það ekki neitt ef maður þekkir gamla sjarmatröllið rétt .
Úrslit kvöldsins:
Nafn | Pkt. | Athugasemdir |
Sig.Egill | 34 | Betri á síðustu 3 |
Hergeir | 34 | |
Óli | 32 | |
Beggi | 31 | |
Írunn | 30 | |
Hanna | 28 | Betri á seinni 9 |
Sig. Óli | 28 | |
Tommi | 28 | |
Binni | 27 | |
Haukur | 26 | |
Raggi Hil. | 25 | |
Raggi Kr. | 24 | |
Halli | 23 |
Staðan eftir 2 umferðir:
Sæti | Nafn | 5.maí | 11.maí | Samtals |
1 | Írunn | 40 | 26 | 66 |
2 | Heggi | 32 | 29 | 61 |
3 | Hanna | 34 | 25 | 59 |
4 - 5 | Sig. Egill | 24 | 30 | 54 |
4 - 5 | Halli | 36 | 18 | 54 |
6 - 7 | Sig. Óli | 26 | 24 | 50 |
6 - 7 | Raggi Hil. | 30 | 20 | 50 |
8 | Raggi Kr. | 28 | 19 | 47 |
9 | Tommi | 22 | 23 | 45 |
10 | Haukur | 20 | 21 | 41 |
11 | Reynir | 38 | 38 | |
12 | Binni | 16 | 22 | 38 |
13 | Beggi | 10 | 27 | 37 |
14 | Óli | 28 | 28 | |
15 | Ingvar | 18 | 18 | |
16 | Haffi | 14 | 14 | |
17 | Daði | 12 | 12 |
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.