16.6.2015 | 19:21
15. júní...HOS nr. 6.
Það voru ekki nema 7 jaxlar sem létu sjá sig í 6. HOS-mótinu sem fór venju samkvæmt fram á Hlíðavelli. Boðið var uppá rúma 15 mtr. á sek. og umtalsverð hlýindi í austanáttinni sem gerðu vistina bærilega. Skor manna var nokkuð í samræmi við aðstæður þ.e. í lægri kantinum. Alltaf skal þó einn standa uppúr og í gærkvöldi var það nýliðinn Daði Hafþórsson eða "Lefty". Sá var nú ekki að pirra sig á austanáttinni og henti í 37 pkt., takk fyrir. Vel gert Daði og til lukku með lækkunina . Við sem fylgdumst með sáum þegar hann vippaði í fyrir fugli á fyrstu holu og þá var ekki aftur snúið.
Tilþrif kvöldsins komu þó frá Óla þegar hann yfirsló greenið á 15. holu um ca. 40 mtr. Vippaði svo tilbaka ca. 60 mtr og ofan í golfpokann sinn. Þetta verður tæplega leikið eftir á þessu ári hið minnsta en hver veit .
Samkvæmt mótastjóra þá stendur til að fara á útivöll næsta mánudag og halda risamót. Þangað til hafið það gott og gleðilega þjóðhátíð
Úrslit kvöldsins:
Sæti | Nafn | Pkt. | Athugasemdir |
1 | Daði | 37 | |
2 | Hergeir | 28 | Betri seinni 9 |
3 | Óli | 28 | |
4 | Haukur | 27 | |
5 | Beggi | 26 | |
6 | Sig. Óli | 25 | |
7 | Haffi | 23 |
Staðan:
Sæti | Nafn | 5.maí | 11.maí | 18.mai | 25.mai | 1.júní | 15.júni | Samtals |
1 | Sig. Óli | 26 | 24 | 24 | 19 | 29 | 25 | 147 |
2 | Haukur | 20 | 21 | 26 | 23 | 24 | 27 | 141 |
3 | Heggi | 32 | 29 | 29 | 19 | 29 | 138 | |
4 | Írunn | 40 | 26 | 27 | 21 | 17 | 131 | |
5 | Óli | 28 | 16 | 25 | 30 | 28 | 127 | |
6 | Sig. Egill | 24 | 30 | 20 | 27 | 25 | 126 | |
7 | Hanna | 34 | 25 | 22 | 28 | 16 | 125 | |
8 | Raggi Kr. | 28 | 19 | 19 | 30 | 26 | 122 | |
9 | Tommi | 22 | 23 | 25 | 22 | 21 | 113 | |
10 | Raggi Hil. | 30 | 20 | 29 | 28 | 107 | ||
11 | Daði | 12 | 15 | 26 | 23 | 30 | 106 | |
12 | Halli | 36 | 18 | 28 | 22 | 104 | ||
13 | Binni | 16 | 22 | 21 | 20 | 20 | 99 | |
14 | Beggi | 10 | 27 | 30 | 26 | 93 | ||
15 | Ingvar | 18 | 18 | 24 | 27 | 87 | ||
16 | Haffi | 14 | 23 | 18 | 24 | 79 | ||
17 | Reynir | 38 | 17 | 55 | ||||
18 | Tryggvi | 18 | 18 | |||||
19 | Axel | 15 | 15 |
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.