19.10.2015 | 20:36
Daytona, nei Day two
Sælar nær og fjær
Nú er dagur tvö að renna sitt skeið. Við strákanrir sitjum á barnum eftir 18 rétta máltíð, sem var sú besta sem við höfum fengið í svona golfferðum.
Annars byrjaði dagurinn með grenjandi rigningu og ekki golffært. Við notuðum því tímann og ég og Halli skiptum um herbergi og færðu okkur til Roy og Manna (já og reyndar Nonna líka). Það er hurð á milli herbergjana og því talsvert líf á heimilinu núna. ´Við reyndum að fara í golf í dag eftir að það stytti upp en völlurinn var lokaður vegna bleyta og því fengum við ekki að fara í golf. Keppnismaðurinn Túkall henti því í eina keppni á púttflötinni. Liðin voru, Vítamínið og túkallinn á móti Roy og Manna. Á sama tíma voru vígðir nýjir búningar sem ungfrú Þýskaland keypti fyrir afgangs evrur sem hann átti eftir frá því að vann elleftu deildina í handbolta í Þýskalandi en þeir unnu úrslitaleikinn 5-4 á móti "Wunderbar". Hilmar með rautt spjald í þeim leik þegar hann heimtaði að fá forgjöf fyrir leikinn. Til að trompa allt bað svo Herra Roy um forgjöf í dag í púttkeppni, já þið heyrðuð rétt, forgjöf í púttkeppni. Annnars var þetta jafnt og spennandi en á endanum unnu Vítamín og Túkall í bráðabana á 19 holu (ekki barnum samt). Seinni partinn henti hópurinn sér svo í gufuna og pottinn. Þar var bannað að vera í skýlum og því var hópurinn á Evu klæðunum og nokkuð stressaðir. Halli byrjaði að kíkja inn í gufuna til að tékka hvort við værum ekki örugglega einir en þá kom í ljós ung kona um nírætt, brjóst niður fyrir nafla , mis síða samt og Halli hrökklaðist frá hurðinni. Við bitum í okkur kjark aftur og skottuðumst inn. Eftir smá samtal við frúnna kom í ljós að þetta var ungfrú Gíbraltar 1867. Flaggstöngin lyftist mis mikið. EFtir vel heppnaða gufuferð, pantaði Roy sér nudd á miðvikudaginn hjá HERRA MUCLES BOY, hann er víst roslega fær í þessu.
Þessu til viðbótar henti formaður leikjanefndar í nokkra leiki í dag ,HA, sko, vinstri og fleira. Þannig að Halli er búinn að dansa svolítið í dag og orðinn þreyttur. Sitjum núna á barnum með kaffi og konna. Rástími 8.15 í fyrramálið hjá Glanna þannig ég þarf að hætta þessu og fara heim að svæfa hann.
Látum heyra í okkur aftur á morgun.
Knús og kremja á alla okkar vini á skerinu, mömmukoss á hina.
Kveðja
Alcaidesa 2015
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góðir...þetta er að breytast í eldri borgara ferð...eða í besta falli minigolf-ferð :-)
HB (IP-tala skráð) 20.10.2015 kl. 08:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.