7.6.2016 | 09:45
6. júní....mót nr. 6. -Mosó-
Það voru 11 mættir í dandalablíðu og hita á Hlíðavöll í gærkvöldi. Völlurinn í frábæru ásigkomulagi eftir að hafa verið notaður á Eimskipa-mótröð þeirra næst-bestu um helgina. En eins og allir vita þá er mótaröð þeirra bestu leikin á mánudagskvöldum og engin undantekning var þar á í gær. Allflestir á mjög góðu skori. Kjartan er með fullt hús, tvisvar mætt, tvisvar sigrað. Vel gert Kjartan. Af öðrum má nefna Ragga L Kr. sem er að koma gríðasterkur inn. Á náttborðinu hjá honum er bókin "How to win golf-tournaments" eftir Lance Armstrong. Þar hefur hann lært ýmis brögð t.d. að hætta telja vindhögg og svo það nýjasta að sjá um að skrifa skorið. Þetta hefur fleytt honum á nýja staði í mótinu. Raggi þú ert frábær.
Tíðindamaðurinn varð vitni að mögnuðum leik hjá Tomma á hinni erfiðu 13.holu. Hann byrjaði á því að setja teighöggið sitt í gilið, svona ca. 130-140 mtr frá flöt. Hann sló upp úr gilinu í glompuna fyrir framan flötina. Úr glompunni sló hann boltann inn á flöt ca. 4-5 mtr frá pinna og setti svo að lokum púttið í fyrir pari, takk fyrir túkall. Þetta er svo léttur og einfaldur leikur!
Staðan á þremur efstu er afar jöfn. Eggert leiðir eins tíðindamaðurinn spáði í síðasta pistli.
Úrslit kvöldsins:
Röð | Nafn | Pkt. | Bráðabanar |
1 | Kjartan | 38 | |
2 | Raggi L Kr. | 36 | |
3 | Haffi | 34 | |
4 | Eggert | 33 | |
5 | Tryggvi | 32 | |
6 | Reynir | 31 | 18 |
7 | Ingvar | 31 | 13 |
8 | Viktor | 28 | |
9 | Haukur | 26 | |
10 | Tommi | 24 | |
11 | Hanna | 21 | 13 holur. |
Staðan:
Sæti | Nafn | 2.maí | 9.maí | 16.maí | 23.maí | 30.maí | 6.júní | Samtals |
1 | Eggert | 29 | 27 | 20 | 26 | 26 | 27 | 155 |
2 | Raggi Kr. | 25 | 21 | 25 | 29 | 25 | 29 | 154 |
3 | Haffi | 23 | 30 | 29 | 23 | 20 | 28 | 153 |
4 | Haukur | 30 | 29 | 27 | 28 | 22 | 136 | |
5 | Tommi | 24 | 26 | 24 | 29 | 21 | 124 | |
6 | Halli | 20 | 22 | 28 | 25 | 28 | 123 | |
7 | Sig. Egill | 21 | 24 | 23 | 24 | 21 | 113 | |
8 | Beggi | 28 | 21 | 30 | 79 | |||
9 | Hergeir | 27 | 26 | 24 | 77 | |||
10 | Reynir | 27 | 22 | 25 | 74 | |||
11 | Binni | 22 | 28 | 22 | 72 | |||
12 | Hanna | 25 | 22 | 20 | 67 | |||
13 | Kjartan | 30 | 30 | 60 | ||||
14 | Írunn | 30 | 23 | 53 | ||||
15 | Viktor | 27 | 23 | 50 | ||||
16 | Tryggvi | 19 | 26 | 45 | ||||
17 | Ingvar | 20 | 24 | 44 | ||||
18 | Sig. Óli | 26 | 26 | |||||
19 | Óli | 23 | 23 | |||||
20 | Raggi Hil. | 21 | 21 |
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.