15.6.2016 | 11:16
13. júní....mót nr. 7. -Mosó-
Einungis A-liðið var mætt á Stade de Hlíðavöllur s.l. mánudagskvöld til að berjast um stigin. B-liðið var við æfingar í Frakklandi og C-liðið á púttnámskeiði á Tenerife. Sól og blíða heilsaði mönnum við Leirvoginn og aðstæður hinar bestu. Sigurður Óli mætti loks eftir mikla þrautargöngu á Spáni (800 km) og mætti segja manni að 18 holur hringur væri lítið sem ekkert mál héðan í frá. "Defending champion" var greinilega búinn að hlaða batteríið vel og kom inná 80 höggum og 39 pkt. Leiðinda 3-pútt á 17. skemmdi fyrir 79 höggunum. Frábær endurkoma Siggi.
Maður kvöldsins var þó engin annar en Binni Stef. Kappinn jafnaði sitt besta höggleiksskor frá upphafi, 92 högg. Þetta skilaði kalli heilum 40 pkt. og góðri lækkun á forgjöf. Binni hafði, eins og Siggi, verið á Spáni í æfingarbúðum í 2 vikur fyrir þetta mót. Hann hafði þó aðeins hægar um sig í labbinu og skv. Trackwell-appinu þá gekk hann 1,3 km á þessum hálfa mánuði (aðallega útí supermarkað að kaupa bjór). En golf er líka tækni- og hugarsport og var Binninn meira í slíkum æfingum sem eru að skila honum þessari flottu niðurstöðu.
Mótaröðin heldur áfram næsta mánudag og aldrei að vita nema 1-2 leynigestir mæti til leiks enda uppfylla þeir öll skilyrði vel þ.e. gamlir góðir Framarar .
Úrslit kvöldsins:
Röð | Nafn | Pkt. | Bráðabanar |
1 | Binni | 40 | |
2 | Sig. Óli | 39 | |
3 | Eggert | 31 | |
4 | Haukur | 29 | |
5 | Tommi | 28 |
Staðan:
Sæti | Nafn | 2.maí | 9.maí | 16.maí | 23.maí | 30.maí | 6.júní | 13.júní | Samtals |
1 | Eggert | 29 | 27 | 20 | 26 | 26 | 27 | 28 | 183 |
2 | Haukur | 30 | 29 | 27 | 28 | 22 | 27 | 163 | |
3 | Raggi K. | 25 | 21 | 25 | 29 | 25 | 29 | 154 | |
4 | Haffi | 23 | 30 | 29 | 23 | 20 | 28 | 153 | |
5 | Tommi | 24 | 26 | 24 | 29 | 21 | 26 | 150 | |
6 | Halli | 20 | 22 | 28 | 25 | 28 | 123 | ||
7 | Sig. Egill | 21 | 24 | 23 | 24 | 21 | 113 | ||
8 | Binni | 22 | 28 | 22 | 30 | 102 | |||
9 | Beggi | 28 | 21 | 30 | 79 | ||||
10 | Hergeir | 27 | 26 | 24 | 77 | ||||
11 | Reynir | 27 | 22 | 25 | 74 | ||||
12 | Hanna | 25 | 22 | 20 | 67 | ||||
13 | Kjartan | 30 | 30 | 60 | |||||
14 | Sig. Óli | 26 | 29 | 55 | |||||
15 | Írunn | 30 | 23 | 53 | |||||
16 | Viktor | 27 | 23 | 50 | |||||
17 | Tryggvi | 19 | 26 | 45 | |||||
18 | Ingvar | 20 | 24 | 44 | |||||
19 | Óli | 23 | 23 | ||||||
20 | Raggi H. | 21 | 21 |
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 54
- Frá upphafi: 68456
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.