5. September....mót nr. 20. - Mosó - RISAmót -

Tuttugasta og síðasta mánudagsmót HOS-mótaraðarinnar fór fram í gærkvöldi á Hlíðavelli í Mosó. 9 spilarar voru mættir í þetta lokamót og var um RISA-mót að ræða. Aðstæður voru dálítið snúnar. Fyrri 9 holurnar voru leiknar við frábærar aðstæður, dandalablíðu og hlýju á meðan seinni níu holurnar voru leiknar í hávaðaroki og kalsa. Má segja að í fyrsta skipti í sumar hafi blásið eitthvað að ráði.

Maður kvöldsins var Binni Stef sem kom inná 39 pkt. og 86 höggum sem er persónulegt höggleiksmet. Menn voru svo undrandi á 19ándu holunni að ekki þurfti færri en 3 endurskoðendur til að fara yfir kortið til að staðfesta kraftaverkið!  Vel gert Binni og innilega til hamingju með þetta.  Kallinn hoppaði upp um nokkur sæti og kom sér vel fyrir ofarlega í töflunni og gerir alvarlega tilkall til köflótta JAKKANS með rússkinsolnbogabótunum laughing.

Þetta sumar er alveg búið að vera einstakt. Ekki hefur þurft að fresta einu móti vegna veðurs þ.a. náðst hefur spila 20 mót sem er nýtt met. 14 sigurvegarar hafa verið krýndir og þar af eru 6 tvöfaldir meistarar.  22 spilarar hafa komið við sögu og fengið skráð stig í mótinu. 14 spilarar hafa náð 10 mótum eða fleiri. Mætingakóngar eru Haukur og Eggert með 16 mætingar. 

Nú tekur við smá óvissuástand þar sem staður og stund lokamótsins hefur ekki verið ákveðin. Menn eru á ferð og flugi í september en reynt verður að finna dagsetningu þar sem flestir komast og þá verður blásið til veislu. En þangað til er montrétturinn hjá TT sem situr efstur með slétt 300 stig.

... but until then, stay classycool.

 

Úrslit kvöldsins:

RöðNafnPkt.Bráðabanar
1Binni39 
2Hergeir34 
3Hanna323
4Haukur32 
5Tryggvi30 
6Ingvar279
7Viktor273
8Sig.Egill27 
9Halli25 

 

Staðan.

SætiNafn2.maí9.maí16.maí23.maí30.maí6.júní13.júní20.júní27.júní4.júlí11.júlí18.júlí25.júlí1.ágúst5.ágúst8.ágúst15.ágúst22.ágúst29.ágúst5.sept.Samtals10 bestu
1Tryggvi    1926  284027272829243229282732396300
2Haukur30292728 222728273423 2630 2624 2834443295
3Halli2022282528    3029   404026 2424336294
4Binni2228 22  30292038182625 22222727 40396292
5-6Eggert292720262627283029 22 27273820 2425 425288
5-6Raggi L.Kr.252125292529   282830  3430213019 374288
7Hanna 2522  20  223630  28 34  2936282282
8Viktor    2723  21 26242926183619 2628303266
9Sig. Egill2124232421     2529  262428263026327261
10Reynir   272225    2025  2838202923 257257
11Haffi233029232028 2723       2525  253253
12Tommi242624 292126 25 1928  2016232321 325249
13Hergeir27 26 24     2123  361430  38239239
14Ingvar   20 24  30 162230  1822 2030232232
15Sig. Óli26     29262626   251628  22 224224
16Írunn  30 23   24  21  3012    140140
17Tóti       25 3224   14     9595
18Beggi28 21 30               7979
19Kjartan   30 30    17         7777
20Raggi Hil.   21          32     5353
21Óli 23                  2323
22Ingólfur                18   1818

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband