2. Mót. -Mosó 13.maí-

Það voru 7 góðir spilarar mættir í blíðuna í Mosó í gærkvöldi. Talsverð afföll urðu á lokametrunum fyrir mótið og geta þeir sem ekki mættu nagað sig í handabökin því aðstæður voru frábærar, dandalablíða og völlurinn í toppstandi.

Mótið sjálft var frekar tíðindalítið en á endanum stóð uppi óvæntur sigurvegari. Spilamennska hans var hálfgert skrípó. Mátti sjá hann hingað og þangað í móanum kringum völlinn en einhvern veginn tókst honum að henda í nokkuð gott skor sem byggðist m.a. á ævintýralegum púttum sem stundum komu úr öðrum póstnúmerum en 270 cool.

Stærstu fréttirnar frá gærkvöldinu voru kannski þær; að á meðan leikar stóðu sem hæst þá fæddist stúlkubarn í Reykjavík. Þar var í heiminn mætt fyrsta afabarn Hergeirs El. Talsverð spenna var í holli Hergeirs þar sem útvíkkunartölur frá Reykjavík bárust jafnóðum og punktar voru reiknaðir. Það gat aldrei endað vel og allt fór í tómt rugl. Þetta þýddi kærur og endurútreikninga, og kom í ljós í morgun að mótið hafði verið mun meira spennandi heldur en fyrstu tölur gáfu til kynna.

Hanna slúttaði svo kvöldinu með feiknagóðu reykspóli þ.a. svifryk var með hæsta móti í höfuðborginni í daglaughing

 

ÚRSLIT
SætiNafnPkt.B.banar
1Haukur35 
2Halli329
3Tommi32 
4Sig Egill289
5Hergeir28 
6Viktor25 
7Hanna23 

 

STAÐAN:

SætiNafn6.mai13.maiSamtals
1Halli6054114
2Tommi5450104
3Haukur386098
4Hergeir484694
5Sig.Egill444892
6Viktor344478
7Jói50 50
8Jón Ari46 46
9-10Óli42 42
9-10Hanna 4242
11Tóti40 40
12Eggert36 36
13Haffi32 32
14Ragnar L.30 30

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband