1. Mót. -Mosó 11.maí-

HOS skipalestin lagði af stað í vorkalsa og pusi þetta árið. Áhafnarmeðlimir voru þó brattir og var skipstjóri mótaraðarinnar settur í fyrsta holl. Var það sett í hendurnar á honum hvort beygt skyldi af við Blikastaðanes eða gefið í og haldið út á nesið. Þegar tilkom tók skipstjóri af skarið og beygði af. Boðin náðu þó ekki alveg eyrum öftustu áhafnarmeðlima sem óðu útá nes en með snarræði nokkurra háseta miðskips tókst að snúa þeim við. Allir komu í höfn á 19ándu holu misblautir og sumum nokkuð heitt í hamsi yfir þessari ákvörðun. En svona er nú íslenska sumarið, allra veðra von og ekkert við því að segja. 

Þar sem 14 holur voru leiknar þá miðast pkt.fjöldinn við það. En að sjálfsögðu breytast þessir pkt. svo í HOS-stigin mikilvægu.

Skor helmings manna reyndist bara alveg ágætt. Hinir hafa veðrið til afsökunar.

Sigurður Egill kom skemmtilega á óvart og sigraði fyrsta mót sumarsins. Alltof langt síðan að þessi snillingur lét að sér kveða og mætir sterkur til leiks þetta árið. TT fylgdi fast á eftir og gefur ákveðin skilaboð um að hann ætli ekki að vera neinn áhorfandi sumar. 

Nú hefur verið tekið upp nýtt forgjafarkerfi sem og nýtt vallarmat á Hlíðavelli. Undirritaður hvetur menn til að fylgjast vel með forgjöf sinni sem og vallarforgjöf þegar þeir mæta til leiks á mánudögum. Þetta er talsvert öðruvísi kerfi. Sem dæmi þá er ekkert grátt svæði lengur og forgjöfin breytist skv. meðaltali 8 bestu hringja af síðustu 20 sem leiknir hafa verið.  Eitt er þó víst; Þetta verður stórskemmtilegt og æsispennandi eins og alltaf cool

 

ÚRSLIT
SætiNafnPkt.
1Sig.Egill28
2Tryggvi27
3Hergeir26
4Haukur26
5Tóti26
6Jón Ari25
7Viktor23
8Ragnar23
9Halli21
10Tommi21
11Ingvar20
12Eggert20
13Jói17

 

STAÐAN
SætiNafn11.mai
1Sig.Egill60
2Tryggvi54
3Hergeir50
4Haukur48
5Tóti46
6Jón Ari44
7Viktor42
8Ragnar40
8Halli38
9Tommi36
10Ingvar34
11Eggert32
13Jói30

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband