19.5.2020 | 13:56
2.Mót. -Mosó 18.maí-
Það voru frábærar aðstæður til golfleiks á Hlíðavelli í gærkvöldi, logn, blíða og fuglasöngur um allan völl (bæði í náttúrunni og hjá spilurum). Mætingin var með mesta móti eða 16 leikmenn alls. Rafmagns-kerrur og golfbílar settu svip sinn á mótið og minntu tíðindamann á það að þetta er engin unglingamótaröð. Þáttakendur eru þó upp til hópa ungir í anda þrátt fyrir stirða liði og bak-eymsli sem er þó auðvelt að laga, spyrjið bara Reyni Stef. hvað gera skuli ef þið eruð slæmir í bakinu, hann er með svarið .
Skor kvöldsins var frábært. Ljóst að hækkuð vallarforgjöf og nýja forgjafarkerfið spilar þar stóra rullu. Samkvæmt gamla kerfinu hefðu 5 leikmenn lækkað í forgjöf en núna veit enginn hvað gerist, sem er dálítið spennandi í sjálfu sér.
Eins og alltaf er bara einn sem stendur uppi sem sigurvegari og í gærkvöldi var það hinn snjalli mála- og mælingamaður Jón Ari. Jón Ari er illviðráðanlegur þegar kappinn dettur í gírinn og nær sínum frægu "draw and roll" höggum...þá geta aðrir pakkað saman.
Hörkubarátta var um næstu sæti og þurfti marga skrifstofubráðabana til að raða niður í sæti.
Jón Ari hefur tyllt sér á toppinn í bili en margar firnasterkar kanónur fylgja fast á eftir og geta ekki beðið næsta mánudagskvölds.
ÚRSLIT kvöldsins | |||
Sæti | Nafn | Pkt. | Bráðab. |
1 | Jón Ari | 39 | |
2 | Halli | 38 | Last 9. 22 p. |
3 | Hergeir | 38 | |
4 | Tommi | 37 | Last 9. 23 p. |
5 | Óli | 37 | Last 9. 22 p. |
6 | Ragnar | 36 | |
7 | Sig.Egill | 34 | Last 9. 19 p. |
8 | Tryggvi | 34 | |
9 | Haukur | 34 | |
10 | Haffi | 32 | |
11 | Viktor | 31 | Last 3. |
12 | Jói | 31 | |
13 | Reynir | 30 | |
14 | Tóti | 29 | |
15 | Binni | 27 | |
16 | Ingvar | 24 |
-STAÐAN-
Sæti | Nafn | 11.mai | 18.maí | Samtals |
1 | Jón Ari | 44 | 60 | 104 |
2 | Sig.Egill | 60 | 42 | 102 |
3 | Hergeir | 50 | 50 | 100 |
4 | Tryggvi | 54 | 40 | 94 |
5 | Halli | 38 | 54 | 92 |
6 | Haukur | 48 | 38 | 86 |
7-8 | Ragnar | 40 | 44 | 84 |
7-8 | Tommi | 36 | 48 | 84 |
9 | Viktor | 42 | 34 | 76 |
10 | Tóti | 46 | 28 | 74 |
11 | Jói | 30 | 32 | 62 |
12 | Ingvar | 34 | 24 | 58 |
13 | Óli | 46 | 46 | |
14 | Haffi | 36 | 36 | |
15 | Eggert | 32 | 32 | |
16 | Reynir | 30 | 30 | |
17 | Binni | 26 | 26 |
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.