11. Mót. -Hveragerði 20. júlí-

Það voru 11 mættir í 11.mót sumarsins sem haldið var á hinum fallega Gufudalsvelli í Hveragerði. Aðstæður voru frábærar. Rjómablíða og hlýtt. Völlurinn í flottu ásigkomulagi og umhverfið engu líkt. Ef gluggað er í annála þá kemur í ljós að síðast þegar HOS-lestin á ferðinni í Hveragerði þá var það árið 2016. Þá sigraði hinn snjalli spilari TT. Í sögustund eftir það mót kom í ljós að TT hafði verið sveitapiltur þarna í Gufudalnum og komið að uppbyggingu vallarins. Það kemur því ekki á óvart að TT skili inn góðu skori á þessum velli þar sem hann þekkir hverja þúfu.

Það dugði þó ekki til í gærkvöldi þar sem Mister Mosó var mættur á stuttbuxum og sportsokkum og nældi sér í 35 pkt. og sinn annan sigur á mótaröðinni þetta sumarið. Í örstuttu spjalli við Tíðindamanninn sagði Misterinn að hann hafi undirbúið sig óvenjuvel fyrir mótið með því að taka sér frí frá vinnu og liggja í sólbaði og heitum potti á ótilteknum stað á suðurlandinu til að ná góðri tengingu við svæðið.

Nú hefur mótaröðin náð á þann stað að 11 mót eru búin og tveir leikmenn klárað þau öll, Hergeir og Jói. Hergeir situr í efsta sætinu og hefur sett viðmið fyrir aðra að ná. Nú byrja þeir félagar að taka til í skori sínu og henda út hringjum. 

Tíðindamaður spáir mikilli stöðuþéttingu eftir því sem á líður. Það lítur út fyrir þetta verði mest spennandi mótaröð frá upphafi og margir verða tilkallaðir en eins og alltaf aðeins einn útvalinn.

 

ÚRSLIT:

SætiNafnPkt.Bráðab.
1Haukur35 
2Tryggvi34Last 9. 20p
3Hanna34Last 9. 16p
4Halli33 
5Gauti32 
6Sig.Egill31Last 9. 22p
7Tóti31Last 9. 17p
8Eggert31Last 9. 16p
9Jói30 
10Hergeir28 
11Tommi24 

 

STAÐAN:

SætiNafn11.mai18.maí25.maí1.jún8.jún15.jún22.jún29.jún6.júl13.jún20.júlSamtals
1Hergeir5050326640546644603836536
2Sig.Egill604228 60608048444644512
3Haukur4838508054 5242384060502
4Viktor42346064504848385060 494
5Tryggvi5440406046445860 2454480
6Jói3032484632365630544838450
7Eggert32 345234385450464440424
8Tóti462854 28306054483242422
9Halli3854 5648 7228 4248386
10Gauti  305030326436 3446322
11Haffi 364448444662  36 316
12Ingvar34244258 284632 50 314
13Tommi36483862 4250   34310
14Jón Ari446026   4446 54 274
15Binni 2636723834 34 26 266
16Hanna   4442  40403050246
17Ragnar404422543640     236
18Reynir 3046  50  4228 196
19Óli 4624        70

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Þór
Haraldur Þór

Um bloggið

Golfferð til Haren

Tónlistarspilari

a_Þórormur - Traustur_vinur

Nýjustu myndböndin

20190908_204608

VID-20160924-WA0013

VID-20160919-WA0023

VID-20160922-WA0008

VID-20160920-WA0027

VID-20160922-WA0005

Driverinn

Hátt og stutt

Himmi beini

Heatland course

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2025-3-B
  • 2025-3-A
  • 2025-2-B
  • 2025-2-A
  • 2025-1-A
  • 2025-1-B
  • mot-18-c
  • mot-18-b
  • mot-18-a
  • mot-17-c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband