7.9.2020 | 11:07
5.sept. LOKAMÓT. -Hella og Hellishólar-
Sól skein í heiđi ţegar leikmenn HOS-mótarađarinnar héldu austur yfir Hellisheiđi til ađ berjast í úrslitaorrustu um HAREN-jakkann og til ađ fá nafn sitt greypt á silfurbikarinn fagra sem fylgir sćmdinni. Sumir voru sparibúnari en ađrir í tilefni dagsins og mćtti t.d. mótstjóri í glćsilegu dressi sem hćfđi deginum, alhvítu frá toppi til táar og međ hvít sólgleraugu í stíl. Svalara verđur ţađ ekki.
Létt var yfir mönnum er komiđ var á fyrri leikstađ dagsins sem var Strandavöllur á Hellu. Fyrirkomulagiđ kunnuglegt; Tvö 9 holu mót sem bćđi innihéldu einstaklingskeppni og liđakeppni. Strandavöllur heilsađi međ fremur lágu hitastigi og meiri vind en spár höfđu gert ráđ fyrir. Ţetta lagađist ţó er á daginn leiđ og var komin bongoblíđa ţegar á seinni hluta keppninnar leiđ. Mjög fínt skor sást hjá mörgum leikmanninum. Til ađ mynda kom ríkjandi meistari H.Elíasson inná 21 pkt. á fyrri 9 holunum og hélt í veika von um ađ geta mögulega skákađ tveimur efstu mönnum mótarađarinnar, Tryggva og Sigga.
Tryggvi sem var náttúrulega í bílstjórasćtinu fyrir mót var alveg ískaldur og passađi ađ sjá alltaf til lands og spilađi sitt venjulega örugga golf sem tryggđi honum á endanum góđri forystu fyrir lokaslaginn á seinni leikstađ dagsins sem var á Hellishólum.
Hanna kom svo sterk inn í seinna mótinu á Hellu og skorađi glćsilega 20 pkt. og tryggđi sér sigur ţar.
Liđakeppnin var síđan aldrei spurning, hvorki á fyrri né seinni hring. Ţar sigrađi glćsilegasta klćdda liđ keppninar, Haraldur, Hanna og Írunn örugglega. Bćndur í sveitinni hreinlega stöđvuđu mjaltir til ađ líta dýrđina augum; Halli eins og stórstjarna frá Hollywood, strollađi um völlinn međ tvćr dömur sér viđ hliđ.
Á međan leikmenn nćrđu sig á ungverskri gúllassúpu reiknuđu mótastjóri og töflumeistari út stöđuna og röđuđu í liđ fyrir seinni hluta dagsins. Eftir talsverđa útreikninga og marga skrifstofubráđabana lágu úrslit eftir Hellu ljós fyrir; Halli og Írunn höfđu sigur í samanlögđu stigaskori. H.Elíasson kom svo ţriđji.
Var nú haldiđ í Fljótshlíđina nánar tiltekiđ á Ţverárvöll á Hellishólum. Ţar skyldi síđasti bardaginn háđur. Fyrirkomulagiđ var tveggja manna TEXAS-scramble.
Veđur var orđiđ hiđ besta, hlýtt og stillt. Thule-inn var farinn ađ fljúga og menn ađ heldur betur farnir ađ kćtast. Sá hvítklćddi var nú kominn međ sólgula peysu yfir axlirnar og hafđi ţá lúkkkiđ breyst úr Hollywood stjörnu yfir í sólbrúnan Svía á skútu í sćnska skerjagarđinum.
Skemmst er frá ţví ađ segja ađ eftir hörkuspennandi keppni og nokkra skrifstofubráđabana sigruđu Jói og Hanna TEXAS-inn.
Ţar međ var allt ráđiđ og nú var haldiđ í fordrykk til Ingvars og Kristínar sem hafa byggt sér glćsilega ađstöđu í Fljótshlíđinni. Ţar var ekki í kot vísađ. Smurt og međ ţví var á bođstólum eins og tíđkast í sveitum landsins og var veitingunum gerđ góđ skil. Hafđu ţökk fyrir Ingvar...ţetta var alveg 100% hjá ţér.
Enn og aftur var haldiđ af stađ og nú var nćsti áningarstađur, Kötlusel sem er stórglćsilegur búgarđur Tomma og Írunnar. Á ţessum tíma voru menn orđnir söngglađir og enn voru mjaltir truflađar í sveitinnni en nú međ fögrum söng ţegar tekiđ var hressilega undir laginu "Take on me" međ norsku hljómsveitinni AHA.
Í Kötluseli var slegiđ í stórkostlega lokahátíđ. Nautasteik međ alles, skolađ niđur međ rauđu. Írskt kaffi og ađ lokum ómćlt G & T. Viđ ţökkum Tomma og Írunni kćrlega fyrir móttökurnar. Ţađ er ómetanlegt ađ geta fengiđ inni í svona glćsilegum vistarverum ţegar mótiđ er gert upp.
Eftir ađ menn höfđu gert veitingum skil hófst svo verđlaunaafhendingin.
Meistari síđađasta árs H.Elíasson afklćddist nú jakkanum og fćrđi golfmeistara ársins 2020, Tryggva Tryggva, í HAREN-jakkann. Mótstjóri afhenti svo meistaranaum bikarinn til varđveislu í eitt ár. Ţađ var ekki laust viđ tár sćjust á hvarmi hjá mönnum viđ athöfnina. Tryggvi hélt stutta og hnitmiđađa ţakkarrćđu ţar sem hann sagđist afar stoltur af afrekinu enda löng og erfiđ leiđ farin til ađ sigra ţetta mót. Ađ vísu hafđi síđar á orđi nánar tiltekiđ ţegar komiđ var heim til höfđuborgarinnar og menn ýmist sofnađir eđa orđnir sauđdrukknir ađ hann hefđi eiginlega veriđ ađ vinna fyrstu alvöru Rónakeppnina !
Í fyrsta sinn í sögu mótsins var dregiđ úr skorkortum og var ţađ vel til fundiđ hjá formanni afhendingarnefnda, Sig.Agli, ađ koma ţessum ómissandi liđ allra golfmóta ađ. Ef einhverjir voru svekktir ađ missa af jakkanum ţá var ţađ heldur betur bćtt upp ţarna.
Eftir allt ţetta tóku viđ almenn fagnađarlćti. DJ Dr. Gauti sá tónlistavaliđ og ţađ ţýddi bara eitt...menn fóru út á pall ađ dansa. Tíđindamann rekur ekki í minni ađ dansađ hafi veriđ áđur á lokahófinu og vonandi er sú hefđ komin til ađ vera. Ekkert jafnendurnćrandi en góđur dans viđ félagann eftir erfiđan dag á golfvellinum.
Ađ lokum kvaddi Tommi hópinn međ gítarslćtti og söng ţar sem allir tóku undir í "Ferđalokum".
Stemmingin var fullkomnuđ ţar og frábćr endir á góđu golfsumri.
HELLA | |||||||||
Einstaklingskeppni | Liđakeppni | ||||||||
Liđskipan á Hellu | Sćti | Nafn | Mót-1. | Mót-2. | Mót-1. | Mót-2. | Stig á Hellu | ||
Mót-1 (fyrri 9) | Mót-2 (seinni 9) | 1-2 | Írunn | 50 | 56 | 40 | 40 | 186 | |
1-2 | Halli | 52 | 54 | 40 | 40 | 186 | |||
Tryygvi-Haffi | Tryggvi-Tommi | 3 | Hergeir | 60 | 52 | 32 | 36 | 180 | |
Sig.Egill-Tommi | Sig.Egill-Haffi | 4 | Hanna | 36 | 60 | 40 | 40 | 176 | |
5 | Tryggvi | 58 | 46 | 36 | 32 | 172 | |||
Haukur-Eggert | Haukur-Raggi | 6 | Tommi | 54 | 58 | 24 | 32 | 168 | |
Tóti-Raggi | Tóti-Eggert | 7 | Jói | 56 | 42 | 28 | 36 | 162 | |
8 | Haffi | 44 | 44 | 36 | 28 | 152 | |||
Hergeir-Gauti | Hergeir-Jói | 9 | Sig.Egill | 46 | 50 | 24 | 28 | 148 | |
Viktor-Jói | Viktor-Gauti | 10 | Tóti | 48 | 40 | 20 | 24 | 132 | |
11 | Gauti | 42 | 36 | 32 | 20 | 130 | |||
Halli-Írunn-Hanna | Halli-Írunn-Hanna | 12 | Eggert | 38 | 48 | 16 | 24 | 126 | |
13 | Viktor | 32 | 34 | 28 | 20 | 114 | |||
14 | Haukur | 40 | 38 | 16 | 16 | 110 | |||
15 | Ragnar | 34 | 32 | 20 | 16 | 102 | |||
16 | Ingvar | 0 |
HELLISHÓLAR | |||||
TEXAS SCRAMBLE | |||||
Sćti | Liđ | Nettó högg | Bráđabanar. Fćrri högg á síđustu 3. | Stig | |
1 | Jói | Hanna | 26 | 60 | |
2 | Haukur | Gauti | 27 | 56 | |
3 | Halli | Tommi | 28 | 52 | |
4 | Sig.Egill | Raggi | 29 | 10 | 48 |
5 | Tryggvi | Írunn | 29 | 11 | 44 |
6 | Viktor | Haffi | 29 | 13 | 40 |
7 | Hergeir | Ingvar | 30 | 36 | |
8 | Eggert | Tóti | 33 | 32 |
LOKASTAĐA 2020 | |||||
Sćti | Nafn | 11 bestu | Hella | Hellishólar | Samtals stig |
1 | Tryggvi | 658 | 172 | 44 | 874 |
2 | Sig.Egill | 654 | 148 | 48 | 850 |
3 | Hergeir | 602 | 180 | 36 | 818 |
4 | Jói | 590 | 162 | 60 | 812 |
5 | Haukur | 622 | 110 | 56 | 788 |
6 | Tóti | 610 | 132 | 32 | 774 |
7 | Halli | 520 | 186 | 52 | 758 |
8 | Tommi | 536 | 168 | 52 | 756 |
9 | Viktor | 592 | 114 | 40 | 746 |
10 | Haffi | 542 | 152 | 40 | 734 |
11 | Gauti | 546 | 130 | 56 | 732 |
12 | Eggert | 522 | 126 | 32 | 680 |
13 | Hanna | 440 | 176 | 60 | 676 |
14 | Jón Ari | 476 | 0 | 0 | 476 |
15 | Ingvar | 434 | 0 | 36 | 470 |
16 | Binni | 462 | 0 | 0 | 462 |
17 | Ragnar | 262 | 102 | 48 | 412 |
18 | Írunn | 0 | 186 | 44 | 230 |
19 | Reynir | 196 | 0 | 0 | 196 |
20 | Beggi | 174 | 0 | 0 | 174 |
21 | Óli | 70 | 0 | 0 | 70 |
Til heiđurs HAREN-meistara ársins 2020:
R | O | L | E | X | ||||||||
W | E | L | L | P | L | A | Y | E | D | |||
T | R | Y | G | G | V | I | ||||||
S | E | E | Y | O | U | |||||||
A | T | |||||||||||
H | L | Í | Đ | A | V | Ö | L | L | U | R | ||
M | O | S | F | E | L | L | S | B | Ć | |||
2 | 0 | 2 | 1 |
Ţáttakendur í sveitinnni hjá Ingvari:
Um bloggiđ
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.