25.5.2021 | 12:55
4.Mót. -Mosó 24.maí-
Það voru 15 mættir á Hlíðavöll á öðrum degi hvítasunnu til að berjast um stigin dýrmætu. Ekki leit neitt sérstaklega vel út með veðrið í upphafi, ausandi rigning en þó hlýrra en undanfarna mánudaga. Svo rættist úr þessu öllu eftir ca. hálftíma með dandalablíðu og fínum aðstæðum til að leika gott golf. Menn létu ekki segja sér það tvisvar og ævintýralegt skor var gert upp að loknum hringnum.
Það var enginn annar Vilbergur Flóvent, sem mætir alltof sjaldan, sem fagnaði sigri á glæsilegu skori eða 42 pkt. Að vísu þurfti bráðabana til því Viktor skilað einnig inn 42 pkt. en það dugði því miður ekki til í þetta sinn þar sem Beggi skilaði inn betra skori á seinni 9.
Þeir sem sáu til síkáta flugmannsins Begga, segja að pútterinn hafi verið á "autopilot"...öllu stýrt beint til lendingar í holunni.
Fleiri voru að gera góða hluti. Jói segist búinn að leysa gátuna með púttinn þ.a. búast má við miklu úr þeirri átt í næstu mótum. Tommi vaknaði til lífsins og komi inná 38 pkt. og hefur vafalaust skilað inn góðu skori í höggleik.
Gauti heldur áfram að leika vel og er aftur sestur á toppinn. Þegar menn mæta til leiks í rauðum buxum þá má búast við einhverju miklu.
Baráttan heldur áfram næsta mánudag og ef ég þekki mótstjórann rétt að þá verður slegið í RISA-mót. Það má enginn láta það framhjá sér fara. Meira um það síðar.
Úrslit kvöldsins:
Sæti | Nafn | Pkt. | Bráðabanar |
1 | Beggi | 42 | 24.pkt. á seinni 9 |
2 | Viktor | 42 | 23.pkt. á seinni 9 |
3 | Jói | 40 | |
4 | Gauti | 39 | |
5 | Tommi | 38 | |
6 | Haukur | 37 | |
7 | Halli | 35 | |
8 | Sig.Egill | 33 | 14 pkt. á síðustu 6 |
9 | Hanna | 33 | 12 pkt. á síðustu 6 |
10 | Hergeir | 32 | 19. pkt á seinni 9 |
11 | Ingvar | 32 | |
12 | Tryggvi | 31 | 20 pkt. á seinni 9 |
13 | Haffi | 31 | |
14 | Jón Ari | 30 | |
15 | Eggert | 29 |
STAÐAN:
Sæti | Nafn | 3.mai | 10.mai | 17.mai | 24.mai | Samtals |
1 | Gauti | 60 | 54 | 50 | 48 | 212 |
2 | Tóti | 50 | 60 | 60 | 170 | |
3-6 | Eggert | 46 | 50 | 46 | 26 | 168 |
3-6 | Tommi | 40 | 28 | 54 | 46 | 168 |
3-6 | Jói | 36 | 34 | 48 | 50 | 168 |
3-6 | Viktor | 38 | 32 | 44 | 54 | 168 |
7 | Jón Ari | 48 | 48 | 38 | 28 | 162 |
8 | Sig.Egill | 30 | 46 | 42 | 40 | 158 |
9-10 | Tryggvi | 44 | 36 | 34 | 32 | 146 |
9-10 | Hergeir | 32 | 42 | 36 | 36 | 146 |
11 | Haukur | 54 | 44 | 44 | 142 | |
12 | Halli | 42 | 40 | 42 | 124 | |
13-14 | Haffi | 38 | 30 | 68 | ||
13-14 | Ingvar | 34 | 0 | 34 | 68 | |
15 | Beggi | 60 | 60 | |||
16 | Írunn | 40 | 40 | |||
17 | Hanna | 38 | 38 | |||
18 | Ólafur | 30 | 30 |
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.