29.9.2021 | 22:36
Las Colinas 2021 - leikmannakynning - unglingar
Þá er komið að okkar ástsæla leikmanni Roy í liðinu hjá ungum. Hann er sennilega wild cardið hjá ungum og árangur ungra getur fallið eða dottið með honum. Hægt væri að skrifa endalausa kynningu á þessum mikla meistara en ég ætla að byrja á því að detta í gamla kynningu á honum frá 2012.
Næstum kynnum við til leiks Reynir Stefánsson eða Gorgeir Loftsson eins og hann er oft kallaður. Þessi piltur er meðlimur í Snuddunum og einnig ofvirkur formaður þess félags. Hann er sá sem hefur haldið félaginu gangandi og verið drifkraftur félagsins. Reynir er fæddur 1972 í Framhverfinu og er alinn þar upp. Hann á langan og farsælan handboltaferil að baki sem varamaður á bekknum í yngri flokkum Fram. Eftir þann feril snéri hann sér að þjálfun og náði góðum árangri þar og þjálfaði meðal annars Þór og KA fyrir norðan en hann flutti þangað og bjó þar í nokkur ár, en er nú kominn í bæinn og eyðir flestum sínum frístundum í svefnherberginu og afrekaði það að eignast 2 börn á innan við einu ári. Reynir hefur gert það gott í tölvuheiminum en hann byrjaði hjá Nett á Akureyri en starfar nú sem yfirmaður hjá Advania og sér um að koma öllum vírusum í umferð. Reynir er þekktur fyrir að eiga gullnar setningar eins og ég kem bara hvítur heim, þegar hann var rekinn í bolinn á Spáni eftir að hafa sofnað á maganum í nokkrar tíma í sólbaði. Blöðrurnar á bakinu á honum voru eins og hólarnir í Vatnsdal um kvöldið. Fræg setning er einnig hvað svo þegar við voru komnir niður á strönd á Spáni en hann vissi ekkert hvað átti að gera á strönd. Nokkrum mínútum seinna kom hann æðandi á fjórhjóli fram hjá öllum sem voru í sólbaði. Margir kannast við setningar úr golfinu, þegar einhver á slæm högg, þessi er týndur, þessi er out of bounds, þetta er bara víti.
Eins og margir í hópnum er Reynir harður Liverpool maður og hefur farið á ófá leikina með þeim. Á seinni árum hóf Reynir að stunda golfið og hefur náð góðum árangri þó hann vilji hafa forgjöfina lægri. Ég hef mikla trú á Reyni á Spáni en hann getur verið illviðráðanlegur í punktasöfnun, því hann fær alltaf punkt á hverri holu, sama hver höggafjöldinn er.
Við hittum pilt þar sem hann var að leika í Dressmann auglýsingu og tókum hann tali.
Nú er hann að koma sér upp sumarhúsi á miðjum golfvelli í Öndverðarnesi og á milli hamarshögga er hann að æfa út á velli. Vonandi að þetta skili sér.
Náði í skottið á kauða þegar hann var að undirrita nýja frasa bókina sína sem var að koma út.
Out, hvítur heim, gerðu aftur, létt sport, easy, berðu á bakið mitt......
- Fullt nafn Reynir Stefánsson
- Gælunafn: Retro, Roy, Reynsi
- Hæð: 192 cm
- Ungir eða gamlir: ungir
- Áhugamál: Flestar íþróttir
- Lýstu sjálfum þér í nokkrum orðum: Rólegur, hæglátur, hógvær og aðgætinn á orð.
- Skemmtileg saga úr þínu lífi: Þegar Hilmar fleygði mér út úr golfbílnum þegar fuglinn kom fljúgandi inn í bílinn en golfbíllinn var fleygiferð. Þarna var Hilmar að passa upp á vin sinn en full sterk viðbrögð hjá vini mínum þarna.
- Sturta eða bað, Sturta
- Uppáhaldsfélagslið í ensku: Liverpool
- Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: Fram
- Forgjöf: 22,6
- Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 21
- Besta skor á hring: 93
- Flestir punktar á hring: tvisvar náð 43 punktum
- Vandræðalegasta golfmómentið: Þegar ég vann mánudagsgolfið 5. júlí í sumar með 41 punkt, það var samt meira vandræðarlegt fyrir hina alla sem æfa og spila 7-10 sinnum í viku og ég að spila minn 3ja hringinn í sumar.
- Uppáhaldsgolfvöllur: Öndverðarnes
- Tegund járnasett: Ping
- Tegund driver: Ping
- Tegund pútter: TaylorMade Spider EX
- Uppáhaldskylfan í pokanum: Brautartré nr. 5
- Hefur þú farið holu í höggi: á að gera það, er það eitthvað merkilegt ?
- Hver er hæfileg refsing fyrir tapliðið á hverju degi í Las Colinas: Borga bjórinn á 19. holu
- Hrýtur þú: Nei Siggi og Halli sjá um það
- Hefur þú verið slæmur í baki: Aldrei
- Ef já, veistu ástæðuna fyrir því: Já ég hef verið að aðstoða menn við að laga þessi bakmeiðsli, búinn að skrifa fræðigreinar og leiðbeina mönnum sem eru slæmir í baki
- Passar síðasti golfbolur sem þú fékkst í golfferð erlendis: á eftir að máta
- Hvað á að kjósa á laugardaginn Ásmund Einar
- Ertu bólusettur Já, nema fyrir tónlistinni hans Halla
- Ertu með innkaupalista frá konunni: Nei
- Væntingar fyrir Las Colinas 2021: Vinna golfkeppnina en aðalega skemmta mér konunglega.
- Hver verður sigurvegari á Las Colinas: Reynsi
- Hver mun koma mest á óvart: Jónas með nýja settið
- Annað sem þú vilt kom á framfæri: Þið eruð allir fávitar!
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 68451
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.