1.10.2021 | 11:40
Las Colinas - leikmannakynning - mjög aldraðir
Þá er komið að næsta meistara í aldraða liðinu. Þetta er aldursforsetinn sjálfur from Kjölur Mosfellsbær MR Hawk Digger Bragason. Það er ánægjulegt að fá þennan snilling aftur í golfferðar hópinn en hann var þó með okkur í Póllandi fyrir C19. Öll lið þyrftu að eiga einn Hauk Braga. Það er mikil ábyrgð á þessum manni í liði aldraðra og ætla ég að tippa á að árangur ellismellana ráðist af frammistöðu hans. Það gæti þó truflað hann að hann mun kynna alla menn til leiks á 1. teig og getur það verið krefjandi og stressandi. Spurning hvaða áhrif það hefur á leik hans. Einnig gæti hann verið lúinn eftir frábæra og mikla vinnu í sumar við að halda utan um Fram mótaröðina þar sem hann stóð sig eins og hetja við utanumhald ásamt því að vinna keppnina. Einn heitur og one to watch.
Ég settist niður með Hauki og Pep og lagði nokkrar spurningar á kappann fyrir ferðina.
- Fullt nafn: Haukur Bragason
- Gælunafn: Diggerinn
- Hæð: ca. 1,8 metri fyri ofan sjávarmál...í sokkum
- Ungir eða gamlir: Gamlir
- Áhugamál: Íþróttir og listir.
- Lýstu sjálfum þér í nokkrum orðum:
- Skemmtileg saga úr þínu lífi: Skrapp einu sinni útá lífið og það var skemmtilegt, Þyrfti að gera það oftar.
- Sturta eða bað: Sturtubað.
- Uppáhaldsfélagslið í ensku: Man City
- Uppáhaldsfélagslið á Íslandi: FRAM
- Forgjöf: 14,7
- Lægsta forgjöf sem þú hefur haft: 8,6, það var nú meira ruglið.
- Besta skor á hring; 77
- Flestir punktar á hring; Man það ekki nákvæmlega en eitthvað á fimmta tuginn einhvern tímann.
- Vandræðalegasta golfmómentið: Braut rúðu í húsi í Súluuhöfða eftir að hafa snapphúkkað á gamla æfingasvæðinu. Var pínu beygður þegar ég bankaði uppá og tilkynnti verknaðinn.
- Uppáhaldsgolfvöllur: Þorlákshöfn kemur alltaf upp í hugann.
- Tegund járnasett: Titleist
- Tegund driver: TaulorMade
- Tegund pútter: Oddisey
- Uppáhaldskylfan í pokanum: Pútterinn á góðum stundum.
- Hefur þú farið holu í höggi: Nei, eitthvað verður maður nú að eiga eftir í þessu golfi. Fór samt holu í höggi á Geysisvellinum í vítishöggi af teig .semsagt gott par.
- Hver er hæfileg refsing fyrir tapliðið á hverju degi í Las Colinas: Drykkur á 19ándu
- Hrýtur þú: Hef ekki heyrt það sjálfur en mér hefur verið tjáð að það jaðri við jarðskjálfta þegar kallinn er kominn í draumaheiminn.
- Hefur þú verið slæmur í baki: Já margoft.
- Ef já, veistu ástæðuna fyrir því: Nei hef mikið reynt að finna út úr því og farið í allskonar stellingar.
- Passar síðasti golfbolur sem þú fékkst í golfferð erlendis: Já það held ég.
- Hvað á að kjósa á laugardaginn: Sósíalista
- Ertu bólusettur: Já við berklum, kíghósta, rauðum hundum,barnaveiki og nýverið gegn kórónuveirunni. Semsagt varinn að framan, aftan og til hliðar.
- Ertu með innkaupalista frá konunni: ZARA er víst gasalega góð og lekker á Spáni. Erum við ekki örugglega að fara að eyða 1-2 dögum inn í Mollinu ?
- Væntingar fyrir Las Colinas 2021: Gott veður og gott golf.
- Hver verður sigurvegari á Las Colinas: Hergeir El. Veit ekki um neinn sem höndlar betur neyslu og golf á sama tíma.
- Hver mun koma mest á óvart: Halli á eftir að starta vel en fær svo brjóstsviða á þriðja degi og þá verður það búið.
- Annað sem þú vilt kom á framfæri: Það verður mikið gaman að kúldrast með ykkur köllunum. Verðum svo að klæða okkur í bikini, fara á ströndina og fá okkur Sangriu.
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 68451
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.