14.6.2024 | 11:07
Mót-2. Mosó, 27. maí
Það viðraði vel fyrir gott skor í annarri spilaviku Fram mótaraðarinnar. Hægur vindur og smá blautt á þannig að flatir tóku vel við. Níu spilarar voru mættir til leiks og skorið var yfir 30 hjá öllum nema tveimur og þrír með skor til lækkunar (skv gamla kerfinu) með meira en 36 punkta. Vel gert strax í maí.
Halli spilaði eins og kóngur og sullaði allflestum púttum ofan í sama hversu langt frá holunni boltinn var. Hergeir og Gauti voru einnig að spila mjög vel með 38 og 37 punkta. Tóti er einnig með sterka byrjun á mótaröðinni með gott skor aðra vikuna í röð.
Nú hafa alls 15 spilarar tekið þátt í mótaröðinni og útlit fyrir hörkukeppni. Minnt er á að 10 bestu mót hjá hverjum spilara gilda í sumar. Enn er því tækifæri fyrir gamalkunnug andlit (Beggi, Reynir, Jón Ari,...) sem ekki hafa mætt ennþá að rífa upp settið og mæta til leiks að viku.
Einungis þeir sem eru að spila í mótaröðinni verða metnir til stiga í hverri viku. Þeir sem mæta í gestahlutverki 1-3x yfir sumarið fá því ekki stig og spila sér því til ánægju og fyrir félagsskapinn. Þetta er gert til að skekkja ekki innbyrðis keppni þeirra sem eru í baráttunni yfir sumarið.
Haukur fær aukastig í þessari viku fyrir að halda uppi góðri stemningu á 19. holu þrátt fyrir erfiðan dag á vellinum, þar sem tannmissir og saursýni komu við sögu. Algerlega til eftirbreytni að láta ekki dapurt punktaskor skemma fyrir góða skapinu.
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.