18.6.2024 | 10:08
Mót-5. Mosó. 17.júní.
Þjóðhátíðardeginum 17. júní var fagnað með 5. mótinu á Fram mótaröðinni.
Veðrið var ákaflega stillt, 10 gráður og skýjað og hreyfi vart vind. Spila-aðstæður voru því mjög góðar enda skiluðu allir spilarar sér í hús með yfir 30 punkta með einni undantekningu.
Krían sem hefur verið ansi spök í sumar var komin í mikinn ham og eirði engum sem hætti sér út á varplendur þeirra. Sumir urðu þó verr úti en aðrir í þessari baráttu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd :D
TT var í feiknastuði í dag og landaði 40 punktum og þar með sigrinum í annað sinn í sumar. Hanna skilaði 38 punktum í hús, þar af 22 p. á seinni níu og varð í öðru sæti. Ingvar kom á hæla hennar með 37 punkta en hann nagar sig líklega í handarbökin fyrir lakan endasprett (ala Rory Mcllroy á US open) þar sem núllaði tvær síðustu holurnar.
Fyrsti gestaspilari sumarsins mætti með stæl. Þar var hinn knái Jón Ari á ferðinni í golfbíl. Hann er þekktur fyrir fádæma stabila spilamennsku og skilaði að venju fjölmörgum punktum í hús (36) og ennþá fleiri bröndurum.
Það var dómur spilara á 19. holu að Haffi ætti skilið aukastig fyrir hetjulega baráttu við Kríurnar. Þess má geta að hann þurfti að koma við í Nettó á heimleiðinni að kaupa Ariel Ultra.
Í heildarstigakeppninni er toppbaráttan hnífjöfn og spennandi. Hergeir er með 1 stig forystu á Ingvar og 2ja stiga forskot á Haffa í 3ja sætinu.
Um bloggið
Golfferð til Haren
Tónlistarspilari
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.